Fréttablaðið - 24.06.2011, Síða 38
24. júní 2011 FÖSTUDAGUR26
folk@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 24. júní 2011
➜ Tónleikar
20.00 Friðrik Ómar og Jógvan með
tónleika í Húsavíkurkirkju. Aðgangs-
eyrir er kr. 2.000.
20.00 Orion með tvenna Master of
Puppets tribute tónleika á Sódómu.
Fyrri eru kl. 20 og þeir seinni kl. 24.
Aðgangseyrir er kr. 2.000.
23.00 Hellvar, Nóra og Vigri með tón-
leika á Faktorý. Aðgangseyrir er kr. 500.
➜ Leiklist
20.00 Þórunn Erna Clausen flytur ein-
leikinn Ferðasaga Guðríðar í Tjarnar-
bíói. Miðaverð er kr. 2.500.
➜ Opnanir
16.00 Nýr sýningarsalur Listasafns
Hornafjarðar opnar í gömlu slökkvi-
stöðinni með sýningu á verkum Svav-
ars Guðnasonar.
➜ Myndlist
21.00 Grapevine Grassroots kvöld á
Hemma og Valda þar sem listamenn
taka fyrir gjörningalist.
6000 DALI þurfti Jennifer Lopez að greiða fyrir hreinsun á sundlauginni sinni eftir að sonur
hennar kúkaði í hana.
Kanadíska hjómsveitin Caribou
ætlar að gera aðra tilraun til að
koma hingað til lands í næstu viku.
Tónleikar með sveitinni eru fyrir-
hugaðir á Nasa 28. júní. Hún ætlaði
að spila þar 22. maí en tónleikun-
um var frestað vegna eldgossins í
Grímsvötnum. Hljómsveitin Sin
Fang, sem er með útgáfusamning
við Morr Music í Berlín, hitar upp.
Caribou er sviðsnafn stærðfræði-
doktorsins Daniels Victors Snaith
sem einnig er þekktur undir nafn-
inu Manitoba. Miðasala á tón-
leikana fer fram á Midi.is og kost-
ar 3.800 kr. inn.
Taka tvö hjá Caribou
CARIBOU Hljómsveitin Caribou kemur hingað til lands í næstu viku.
Leikkonan Jennifer Aniston
fær stjörnu á frægðarstéttina
í Hollywood á komandi ári.
Aniston, sem hóf ferilinn sem
Rachel í Friends, hefur geng-
ið vel að landa hlutverkum í
rómant ískum gamanmyndum
frá því að Friends-ævintýrinu
lauk og þykir kominn tími til
að gefa henni stjörnu í stéttina
frægu.
Aniston fær stjörnu
KOMINN TÍMI Á STJÖRNU Jennifer
Aniston er komin í stjörnuhópinn.
Réttarhöldin yfir tískuhönnuð-
inum John Galliano eru hafin í
París. Hann var ákærður vegna
niðrandi ummæla í garð gyðinga
á opinberum vettvangi. Svar hans
við ákærunni er einfalt, hann man
hreinlega ekkert eftir atvikinu.
Umrætt atvik átti sér stað á
barnum La Perle í Le Marais
hverfinu í París í vetur og náð-
ist á myndband. Galliano sat á
barnum og sagðist elska Hitler
og að allir gyðingar hefðu átt að
drepast í helförinni. Galliano var
í kjöl farið kærður fyrir niðrandi
ummæli í garð minnihlutahópa og
missti vinnu sína sem yfirhönn-
uður Dior tískuhússins.
Hönnuðurinn mætti svart-
klæddur til að útskýra mál sitt
og var skjálfraddaður þegar
hann greindi dómaranum frá
því að hann ætti við áfengis- og
verkjalyfjafíkn að stríða. „Ég
er fíkill á batavegi og hef verið
undir mikilli pressu síðastliðin
ár,“ útskýrði Galliano en hann er
núna í meðferð á leynilegri stofn-
un í Sviss.
Skjálfandi Galliano
STRESSAÐUR Tískuhönnuðurinn John
Galliano mætti svartklæddur í réttarsal
í París og útskýrði mál sitt með titrandi
röddu. NORDICPHOTO/AFP
Rihanna og fyrrum kærasti
hennar, söngvarinn Chris
Brown, endurnýjuðu vinskap
sinn á samskiptasíðunni Twitter
fyrir stuttu. Nú halda aðdáend-
ur söngkonunnar að þau hafi
tekið aftur saman, en Rihanna
sleit sambandi þeirra í byrjun
árs 2009 eftir að Brown lagði
hendur á hana.
Aðdáendur Rihönnu telja
að þau séu tekin aftur saman
vegna Twitter-samskipta þeirra.
Fyrir stuttu sendi Brown söng-
konunni eftirfarandi skilaboð:
„Fékkstu myndina sem ég sendi
þér?“ Augnabliki síðar eyddi
Brown skilaboðunum af síðunni
en ekki áður en aðdáendur
Rihönnu náðu að mynda skila-
boðin og þar með breiða út boð-
skapinn. Söngkonan vill þó ekki
kannast við að hafa tekið aftur
saman við Brown og skrifaði
á Twitter-síðu sína: „Þetta er
Twitter, ekki altarið.“
Aftur í samskiptum
SPJALLAR VIÐ BROWN Rihanna hefur
verið að fylgjast með fyrrverandi
kærasta sínum, Chris Brown, á Twitter.
NORDICPHOTOS/GETTY
Kaupmannahöfn hefur allt-
af heillað unga Íslendinga
og sumarið í ár er engin
undantekning því íslensk
ungmenni hafa fjölmennt til
gamla höfuðstaðarins.
„Við vorum ekkert mjög mörg
hér fyrsta sumarið, en Íslend-
ingunum hefur fjölgað rosalega í
ár,“ segir Davíð Örn Símonarson,
21 árs gamall Íslendingur sem
búsettur er í Kaupmannahöfn
í sumar. Mikill fjöldi íslenskra
ungmenna hefur lagt land undir
fót og sest að í Kóngsins Kaup-
mannahöfn yfir sumarið og
Davíð segir ástæðuna einfalda.
„Við fáum borgað í dönskum
krónum, svo öll launin okkar
tvöfaldast í raun og veru út af
genginu.
Við fáum hörkulaun fyrir litla
vinnu,“ segir Davíð, sem vinn-
ur við skúringar í Ráðhúsinu í
Kaupmannahöfn. Þar er vinnu-
tíminn frá klukkan sex á morgn-
ana og er Davíð oft kominn heim
um ellefu, fimm tímum síðar.
„Um leið og maður klárar
vinnuna er allur dagurinn fram
undan, svo þetta er í raun og
veru eins og að vera í launuðu
sumarfríi.“
Davíð segir erfitt að áætla
hversu margir Íslendingar séu
í borginni í sumar, þar sem ein-
hverjir eru í námi og aðrir búa í
borginni allt árið um kring. „Við
erum svona um og yfir fimmtán
sem vinnum í Ráðhúsinu, og það
er bara einn vinnustaður af fjöl-
mörgum,“ segir Davíð, en þetta
er þriðja sumarið hans í Kaup-
mannahöfn.
Kristján Egill Karlsson er
framkvæmdastjóri á Íslendinga-
barnum Jolene í Kaupmanna-
höfn. Hann segir erfitt að meta
fjölgunina sem á sér stað yfir
sumartímann, en heldur þó að
flestir sem komi til Kaupmanna-
hafnar séu einmitt þeir sem eru
að leita sér að sumarvinnu. Hann
segir Íslendingana jafnframt
mjög skemmtanaglaða.
„Það er stór hópur af Íslend-
ingum sem eru fastakúnnar hér
á Jolene. Aðal Íslendingaholan
hér í Kaupmannahöfn myndi
ég þó segja að væri skemmti-
staðurinn Blasen. Annars er allt
morandi af Íslendingum hérna,“
segir Kristján Egill. - ka
LJÚFA LÍFIÐ Í KAUPMANNAHÖFN Davíð Örn Símonarson, 21 árs Íslendingur, er búsettur í Kaupmannahöfn í sumar. Hann segir að
Íslendingunum í Kaupmannahöfn hafi fjölgað gríðarlega undanfarin sumur.
Þeir Íslendingar sem koma til
Danaveldis í sumar verða varla
einmana ef marka má tölur
dönsku hagstofunnar, því sam-
kvæmt henni voru frá og með 1.
janúar á þessu ári 8.959 Íslend-
ingar skráðir í Danmörku.
Margir þekktir Íslendingar hafa
sest að í Danmörku. Þar má nefna
Dóru Takefusa, sem rekur Íslend-
ingabarinn Jolene í Kaupmanna-
höfn, Friðrik Weisshappel sem
rekur tvö Laundromat kaffihús í
Köben, Marín Möndu Magnús-
dóttur sem rak barnafataverslun-
ina Baby Kompagniet, Bjössa úr
hljómsveitinni Mínus og Hafrúnu
Öldu Karlsdóttur sem gefur út
veftímaritið Bast Magazine.
ÍSLENDINGAR
Í DANMÖRKU
UNGIR ÍSLENDINGAR NJÓTA
LÍFSINS Í KAUPMANNAHÖFN
– ÞVÍ X ER EKKI NÓG!
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU YKKUR SIRKUS SÓLEY
S Ý N T Í
T J A R N A R B Í Ó I
Í J Ú L Í
MIÐASALA Í TJARNARBÍÓI, Á MIÐI.IS OG Í SÍMA 527 2102
S I R K U S
Í S L A N D S
K Y N N I R
NÆSTU SÝNINGAR
föstudaginn 1. júlí kl. 19:30 (frumsýning)
laugardaginn 2. júlí kl. 14 og 18
sunnudaginn 3. júlí kl. 14 og 18