Fréttablaðið - 24.06.2011, Síða 40
28 24. júní 2011 FÖSTUDAGUR
Ég verð að viðurkenna að ég veit
engin deili á Guðmundi Þóri Sig-
urðssyni, en eftir því sem ég
kemst næst er Guðmundur hans
fyrsta sólóplata. Á henni eru níu
lög og textar eftir hann, en þau
voru hljóðrituð hjá Benzín bræðr-
um í Sýrlandi í ágúst í fyrra. Guð-
mundur syngur lögin, en þeir
Börkur og Daði Birgissynir. Stef-
án Már Magnússon, Kristinn S.
Agnarsson og Björn Ingason sjá
um hljóðfæraleikinn og Margrét
Eir bakraddar.
Tónlistin á plötunni er hrjúft og
kraftmikið rokk. Rödd Guðmund-
ar minnir töluvert á Iggy Pop og
tónlistin er ekki ólík tónlist Iggys,
t.d. í lögunum Show Me The Light,
Fever og Safe on the Line, en það
síðastnefnda er mjög Stooges-legt.
Áhrifa gætir einnig frá öðrum
stórmennum í rokksögunni.
Guðmundur er ekki sérstaklega
frumleg rokkplata, en hún er samt
flott. Lagasmíðarnar eru ágætar,
útsetningar, söngur og hljóðfæra-
leikur eru fyrsta flokks og hljóm-
urinn er góður. Lögin eru flest
kraftmikil, en sum þeirra hafa
aðeins léttara og poppaðra yfir-
bragð, t.d. There Are You, Fever
og Does it Feel Alright. Hljóð-
færaleikararnir skila sínu allir
vel, en eins og hæfir svona tónlist
fá gítarleikararnir stærsta hlut-
verkið og þeir fara á kostum.
Textarnir á plötunni eru á ensku
og forsíðumyndin er tekin á járn-
brautarstöð. Ekki mjög íslenskt,
en kannski er skýringin sú að
miðað við upplýsingar af netinu
býr Guðmundur í Kanada. Á heild-
ina litið er þessi fyrsta sólóplata
Guðmundar Þóris Sigurðssonar
fín rokkplata þó að hún brjóti ekki
blað í rokksögunni. Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Ágæt rokkplata frá Guðmundi.
Íslenskur Iggy Pop
GUÐMUNDUR Fyrsta plata Guðmundar
Þóris Sigurðssonar er ekki frumleg en
flott engu að síður.
Enn á ný er George Cloo-
ney laus og liðugur. Þessi
eftirsótti piparsveinn hefur
verið við margar konur
kenndur en hann á erfitt
með langtímasamböndin.
Hinn nýlega fimmtugi leikari,
George Clooney, er hættur með
kærustu sinni Elisabettu Canal-
is eftir tæplega tveggja ára sam-
band. Aðeins tvær vikur eru
síðan hin ítalska Elisabetta lét
hafa eftir sér í viðtali að hún væri
hamingjusöm með Clooney og
að ævintýri hennar héldi áfram.
Það kom því töluvert á óvart
þegar parið gaf út yfirlýsingu
um sambandsslitin á miðviku-
dag. Í yfirlýsingunni stóð: „Við
erum ekki lengur saman. Þetta
er mjög erfitt og persónulegt.“
Það er ansi athyglisvert að skoða
ástarsambönd George Clooney.
Frá árinu 1987 hefur leikarinn
verið kenndur við tíu konur og því
líftími ástarsambanda hans ekki
langur. Árið 1987 hóf Clooney að
hitta leikkonuna Kelly Preston,
sem síðar átti eftir að giftast John
Travolta. Sambandi þeirra lauk
tveimur árum síðar. Í kjölfarið
kynntist Clooney þrítugu leikkon-
unni Taliu Balsam og giftu þau sig
árið 1989. Parið skildi árið 1993 og
sagði Clooney í viðtali við tímarit-
ið Vanity Fair að hann hefði ein-
faldlega ekki átt að vera í hjóna-
bandi á þessum tímapunkti og gaf
það síðar í skyn að hann myndi
aldrei aftur kvænast.
Árið 1996 var Clooney staddur í
Frakklandi við tökur á kvikmynd-
inni The Peacemaker. Þar kynnt-
ist hann franska laganemanum
Celine Balitran og nokkrum mán-
uðum síðar flutti Balitran inn til
Clooney í Los Angeles. Sambandið
rann sitt skeið árið 1999. George
Clooney kynntist svo ensku fyrir-
sætunni og þáttastjórnandanum
Lisu Snowdon árið 2000 og voru
þau ýmist saman eða í sundur til
ársins 2005, en á þessum fimm
árum var Clooney einnig kenndur
við leikkonurnar Reneé Zellweger,
Taylor Howard og Kristu Allen,
sem og norsku fjölmiðlakonuna
Mariellu Frostrup. Árið 2007 átti
hann árslangt samband við Fear
Factor keppandann Söruh Larson
en það var svo árið 2009 sem Cloo-
ney kynntist ítölsku fyrirsætunni
Elisabettu Canalis. Margir töldu
að samband þeirra Clooney og
Canalis myndi endast og héldu
ítalskir fjölmiðlar því margoft
fram að þau myndu gifta sig.
Hvort George Clooney gangi
einhvern tímann aftur upp að
altarinu verður tíminn að leiða í
ljós en þangað til getur fimmtugi
piparsveinninn huggað sig við það
að vera einn þriggja heimsþekktra
fola sem tvisvar hefur hlotið tit-
ilinn „Kynþokkafyllsti maður
alheims“ í tímaritinu People.
kristjana@frettabladid.is
Stutt gaman með Clooney
BÚIÐ SPIL George Clooney og hin ítalska Elisabetta Canalis eru hætt saman eftir tæplega tveggja ára samband.
Auðæfi George
Clooney eru metin
á um 165 milljón
dali, en það sam-
svarar tæplega
19,3 milljörðum
íslenskra króna.
VELLAUÐUGUR
BAD TEACHER 6, 8 og 10
MR. POPPERS PENGUINS 4, 6 og 8
BRIDES MAIDS 4, 6.30, 9 og 10
KUNG FU PANDA 2 3D 4 - ISL TAL
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
-BOX OFFICE MAGAZINE
T.V. - kvikmyndir.is
www.laugarasbio.is
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
þ.þ fréttatíminn
FRÁ ÞEIM SÖMU OG GERÐU
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
E.T WEEKLY
ÁLFABAKKA EGILSHÖLL
14
12
12
12
12
12
12
10
10
10
10
L
LL
L
L
L
L
L
V I P
AKUREYRI
BEASTLY kl. 4 - 6 - 8 - 10:10
SUPER 8 kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:20
SUPER 8 Luxus VIP kl. 8 - 10:20
THE HANGOVER 2 kl. 5:50 - 8 - 10:20
KUNG FU PANDA 2 M/ ísl. Tali Sýnd í 3D kl. 4 - 6
KUNG FU PANDA 2 M/ ísl. Tali Sýnd í 2D kl. 4 - 6
KUNG FU PANDA 2 ensku. Tali Sýnd í 2D kl. 10:20 M/texta
PIRATES 4 Sýnd í 2D kl. (5:20 VIP) - 8 - 10:40
SOMETHING BORROWED kl. 8
DÝRAFJÖR Sýnd í 2D kl. 3:40
12
12
12
12
10
L
L
L
KRINGLUNNI
SELFOSS
VANESSA HUDGENS ALEX PETTYFER NEIL PATRICK HARRIS
Frábær mynd sem kemur skemmtilega á óvart.
Nútíma útgáfa af Beauty and the Beast
MIAMI HERALD
MYNDUNUM, ÞÚ MUNT
TWILIGHT
EF ÞÚ HAFÐIR GAMAN AF“
„FALLA FYRIRBEASTLY
S.F. CHRONICLE
FRÁBÆR FJÖLSKYLDU-OG GAMANMYND MEÐ JIM
CARREY Í FANTAFORMI. SUMARSMELLURINN Í ÁR!
BEASTLY kl. 6 - 8
KUNG FU PANDA 2 með ísl tali kl. 6
SUPER 8 kl. 8 - 10:20
HANGOVER 2 kl. 10:20
SUPER 8 kl. 3 - 5.30 - 8 - 10.30
MR. POPPER’S PENGUINS kl. 3 - 5.30 - 8 - 10.20
HANGOVER PART II kl. 8 -10.25
X-MEN: FIRST CLASS kl. 8 -10.45
KUNG FU PANDA 2 ísl tal 3D kl. 3 - 5.30
PIRATES OF THE CARIBBEAN 3D kl. 5
BRIDESMAIDS kl. 8 - 10:30
SUPER 8 kl. 5:50 - 8 - 10:20
KUNG FU PANDA 2 M/ ísl. Tali kl. 6
BEASTLY kl. 4 - 6 - 8 - 10
SUPER 8 kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10
KUNG FU PANDA 2 M/ ísl. Tali Sýnd í 3D kl. 4 - 6
KUNG FU PANDA 2 M/ ensku. Tali Sýnd í 3D kl. 8 Ótextuð
THE HANGOVER 2 kl.10:20
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
GLERAUGU SELD SÉR
NÁNARI UPPLÝSINGAR
OG MIÐASALA Á
- FRÉTTATÍMINN
BAD TEACHER KL. 6 - 8 - 10 14
MR. POPPER´S PENGUINS KL. 6 - 8 L
BRIDESMAIDS KL. 10 12
BAD TEACHER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14
MR. POPPER´S PENGUINS KL. 5.50 - 8 - 10.10 L
X-MEN: FIRST CLASS KL. 5.20 - 8 - 10.40 12
WATER FOR ELEPHANTS KL. 5.30 L
PAUL KL. 8 12
FAST FIVE KL. 10.10 12
BAD TEACHER KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 14
BAD TEACHER Í LÚXUS KL. 5.50 - 8 - 10.10 14
MR. POPPER´S PENGUINS KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 L
MR. POPPER´S PENGUINS Í LÚXUS KL. 3.40 L
SUPER 8 KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
BRIDESMAIDS KL. 8 - 10.40 12
KUNG FU PANDA 2 ÍSLENSKT TAL 3D KL. 3.40 - 5.50 L
KUNG FU PANDA 2 ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.40 L
BARA GÓÐAR MYNDIR www.bioparadis.is
MONSTER
MARY AND MAX
THE MYTH OF THE AMERICAN SLEEPOVER
SÍÐASTI VALSINN (MEÐ ENSKUM TEXTA)
THE GOOD HEART
DANSINN (MEÐ ENSKUM TEXTA)
18:00, 20:00, 22:00
18:00, 20:00, 22:00
18:00, 20:00
18:00
20:00
22:00
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
BAR
&
CAFÉ
Tónlist ★★★
Guðmundur
Guðmundur