Fréttablaðið - 24.06.2011, Side 42
24. júní 2011 FÖSTUDAGUR30
sport@frettabladid.is
PEPSI-DEILD KARLA hefst á nýjan leik í kvöld eftir EM-fríið.
Aðeins einn leikur er á dagskrá og sá leikur er í Vestmannaeyjum. Þá taka
heimamenn í ÍBV á móti Stjörnunni. Leikurinn hefst klukkan 20.00.
Valitor-bikar karla:
KR-FH 2-0
1-0 Gunnar Örn Jónsson (51.), 2-0 Grétar
Sigfinnur Sigurðarson (87.)
BÍ/Bolungarvík-Breiðablik 4-1
0-1 Arnór Sveinn Aðalsteinsson (21.), 1-1
Oluwatomiwo Ameobi (72.), 2-1 Sölvi Gylfason
(107.), 3-1 Andri Rúnar Bjarnason (114.), 4-1 Sölvi
Gylfason (120.).
Pepsi-deild kvenna:
Stjarnan-ÍBV 2-1
0-1 Kristín Erna Sigurlásdóttir (23.), 1-1 Ashley
Bares (66.), 2-1 Ashley Bares (75.)
Þór/KA-Afturelding 3-1
0-1 Kristrún Halla Gylfadóttir (12.), 1-1 Rakel
Hönnudóttir (59.), 2-1 Rakel Hönnudóttir (74.),
3-1 Mateja Zver (90.+1).
Fylkir-Þróttur R. 2-1
1-0 Anna Björg Björnsdóttir (11.), 2-0 Ruth
Þórðardóttir (31.), 2-1 Margrét María Hólmars-
dóttir (43.)
Valur-Breiðablik 3-1
1-0 Caitlin Miskel (4.), 2-0 Hallbera Guðnú
Gísladóttir (46.), 3-0 Dagný Brynjarsdóttir (52.),
3-1 Greta Mjöll Samúelsdóttir (75.)
Grindavík-KR 1-1
0-1 Margrét Þórólfsdóttir (17.), 1-1 Shaneka
Gordon (31.).
1. deild karla:
ÍA-Fjölnir 6-0
Hjörtur Júlíus Hjartarson 3, Gary Martin 2 (eitt
víti), Mark Doninger.
Leiknir-Haukar 1-2
Pape Mamdou Faye - Ísak Örn Þórðarson, Hilmar
Trausti Arnarsson.
Selfoss-Víkingur Ó. 3-1
Babaca Sarr, Endre Ove Brenne, Ibrahima
Ndiyate - Edin Beslija.
Upplýsingar fengnar að hluta frá fótbolti.net.
ÚRSLIT
Föstudagurinn 24. júní.
Sunnudagurinn 26. júní.
ÍBV - Stjarnan kl.20.00
Hásteinsvöllur
Fylkir - Þór kl.17.00
Fylkisvöllur
Valur - Víkingur R. kl.19.15
Vodafonevöllurinn
Grindavík - KR kl.19.15
Grindavíkurvöllur
FÓTBOLTI Stjarnan varð fyrsta liðið
til að sigra ÍBV í sumar í Pepsí-
deild kvenna þegar Stjarnan lagði
Eyjapæjur 2-1 á heimavelli sínum
í Garðabæ í gær.
Fyrir leikinn hafði ÍBV haldið
hreinu í fimm fyrstu umferðum
deildarinnar og var liðið á toppi
deildarinnar, stigi á undan Stjörn-
unni en með jafn mörg stig og
Valur. ÍBV byrjaði leikinn betur
og komst yfir með marki Kristínar
Ernu Sigurlásdóttur á 23. mínútu.
Eftir að Birna Berg Haralds-
dóttir hafði haldið marki sínu
hreinu í 515 mínútur fann Ashley
Bares leiðina fram hjá henni, eða
á 66. mínútu leiksins. Ashley var
aftur á ferðinni á 75. mínútu eftir
sjaldséð mistök Birnu í markinu og
tryggði Stjörnunni sigurinn.
Jón Ólafur Daníelsson þjálfari
ÍBV sagði að það væri vitað mál að
það kæmi að því að liðið fengi á sig
mark en hann var ekki ánægður
með varnarleik stelpnanna sinna í
mörkunum sem Stjarnan skoraði.
„Það sem er sorglegast í þessu er
að það eru skelfileg varnarmis-
tök sem valda þessum mörkum,
sérstaklega fyrra markinu. Við
fórum yfir þetta fyrir leikinn og
aftur í hálfleik en svo gera þær
sig sekar um þessi mistök sem var
búið að ræða að gera ekki,“ sagði
Jón Ólafur eftir leikinn en hann
sagðist ekki búast við öðru en að
lið sitt yrði fljótt að komast yfir
vonbrigðin sem fylgja því að tapa
fyrsta leiknum.
„Stjörnuliðið er hrikalega gott
fótboltalið. Þær eru líkamlega
sterkar og kunna á þetta gervi-
gras. Þetta var frábær leikur og
það er ekkert um þetta að segja.
Við gerðum tvenn varnarmistök
og Stjarnan skoraði, við förum
heim og grátum það og höldum svo
ótrauðar áfram.“
Þorlákur Árnason þjálfari
Stjörnunnar var mjög ánægður
með hvernig lið hans lék í seinni
hálfleik. „Við gerðum smá breyt-
ingar, færðum liðið í hálfleik. Við
spiluðum illa í fyrri hálfleik en
fengum engu að síður tvö þrjú
mjög góð færi. Það er bara svo
mikill karakter í þessu liði, það
er aldrei hægt að afskrifa okkur,“
sagði Þorlákur. - gmi
Birna Berg Haraldsdóttir sigruð eftir að hafa haldið marki sínu hreinu í heilar 515 mínútur:
Stjarnan upp fyrir ÍBV og með pressu á Val
LOKSINS SIGRUÐ Birna Berg er búin að vera ótrúleg í marki ÍBV í sumar en varð að
játa sig sigraða í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Lærisveinar Guðjóns
Þórðarsonar í BÍ/Bolungar-
vík gerðu sér lítið fyrir í gær og
slógu út Íslandsmeistara Breiða-
bliks í Valitor-bikarnum. Lokatöl-
ur 3-1 eftir framlengingu.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
kom Blikum yfir með glæsilegu
marki.
Blikar voru fullværukærir í
síðari hálfleik og um miðjan hálf-
leik náði Ameobi að skora eftir
krafs í teignum. Það reyndist
lokamarkið í venjulegum leiktíma
og því varð að framlengja.
Sölvi Gylfason skoraði gull af
marki í upphafi seinni hálfleiks
framlengingar. Þrumufleygur
fyrir utan teig sem söng í netinu.
Andri Rúnar skoraði svo þriðja
markið þegar Blikarnir voru
flestir komnir fram á völlinn.
Rétt fyrir leikslok kom fjórða
markið og niðurlæging Íslands-
meistaranna var fullkomnuð.
- hbg
Óvænt úrslit í bikarnum:
Sveinar Guð-
jóns lögðu Blika
FÓTBOLTI KR-ingar hefndu í gær
fyrir ófarirnar í bikarnum á síð-
ustu leiktíð gegn FH með sigri, 2-0,
á Fimleikfélaginu í 16-liða úrslit-
um Valitor-bikarkeppni karla, en
leikið var í Frostaskjólinu.
KR-ingar mættu grimmari til
leiks og voru með góð tök fyrstu
tuttugu mínútur leiksins en það
var ekki sjón að sjá FH í byrjun
leiksins. Leikur þeirra var tilvilj-
unarkenndur og menn áttu erfitt
með að halda boltanum innan liðs-
ins. Heimamenn fengu ákjósanleg
færi í fyrri hálfleiknum en náðu
ekki að setja mark sitt almenni-
lega á leikinn. Fimleikafélagið
vaknaði aðeins til lífsins þegar líða
tók á fyrri hálfleikinn en staðan
var samt sem áður 0-0 í hálfleik.
Heimamenn komust yfir í byrj-
un síðari hálfleiks með marki frá
Gunnari Erni Jónssyni, leikmanni
KR, en hann skallaði boltann í
netið eftir magnaða fyrirgjöf frá
Magnúsi Má Lúðvíkssyni. Virki-
lega vel útfærð sókn hjá KR-ing-
um og þeir komnir verðskuldað
með yfirhöndina í leiknum.
FH-ingar virkuðu andlausir og
oft á tíðum mjög svo pirraðir en
það gekk erfiðlega fyrir gestina
að skapa sér hættuleg færi og það
hafði greinilega slæm áhrif á leik-
menn liðsins.
Heimamenn voru fastir fyrir og
vörn þeirra var þétt á meðan sókn-
arleikur FH-inga var hugmyndas-
nauður og löng skot utan af velli
virtist vera það eina sem gestirnir
höfðu upp á að bjóða.
Rétt fyrir lok venjulegs leiktíma
fékk Tommy Nielsen, leikmaður
FH, að líta sitt annað gula spjald
og var sendur í bað. Strax í kjölfar-
ið náði Grétar Sigfinnur Sigurðar-
son, leikmaður KR, að gulltryggja
sigurinn með fínu skallamarki.
Frábær sigur KR-inga staðreynd
gegn slöku liði FH í Vesturbænum
í gær.
„Þetta var virkilega ánægjulegt
í kvöld, en maður verður að vinna
alla leikina í þessari keppni til
að eiga möguleika á að lyfta doll-
unni,“ sagði Rúnar Kristinsson,
þjálfari KR, eftir sigurinn í gær.
„Við vorum sterkari aðilinn
lengst af í leiknum og náðum að
skora snemma í síðari hálfleik sem
var mikilvægt. FH-ingar áttu sína
spretti í leiknum og það var erfitt
að ráða við þá að köflum. Við féll-
um aðeins til baka eftir að fyrsta
markið datt fyrir okkur, en það var
mikilvægt að standast áhlaup FH-
inga og ná síðan að skora mark-
ið sem gerði út um leikinn. Við
náðum að æfa vel í hléinu og leik-
menn mínir vita að það er mikil
samkeppni í liðinu og allir verða
að vera á tánum,“ sagði Rúnar.
„Þetta er auðvita mikið svek-
kelsi og alltaf leiðinlegt að tapa
leikjum hér,“ sagði Ólafur Páll
Snorrason, leikmaður FH, eftir
leikinn í gær.
„Mér fannst við eiga meira skil-
ið út úr þessum leik og sumt féll
bara ekki með okkur, en þá er ég
sérstaklega að tala um vítaspyrnu
sem við áttum að fá þegar leik-
maður KR ver boltann á línu með
hendi. Þetta datt bara með þeim í
kvöld og við verðum bara að rífa
okkur upp af rassgatinu og byrja
að einbeita okkur að deildinni.
Það er ekkert hvaða lið sem er
sem kemur hingað á KR-völlinn
og skapar sér fullt af færum og
við áttum í erfiðleikum með það í
kvöld, en samt náðum við að skapa
nokkur færi sem við áttum að nýta
betur“. - sáp
Valdataflið að snúast við á ný
Eftir áralangt tak FH-inga á KR virðist taflið loksins vera að snúast við. KR hafði ekki unnið FH á heima-
velli í átta ár fyrir sumarið en er nú búið að leggja FH í Frostaskjólinu í tvígang á skömmum tíma. Að
þessu sinni 2-0 í Valitor-bikarnum. FH átti að fá víti í lokin en fékk ekki. KR var betra liðið.
Í SVIÐSLJÓSINU Gunnar Jarl dómari
dæmdi ekki augljósa hendi á KR. Þar
hefði FH átt að fá víti og Diogo rautt.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BARÁTTA Það var hart tekist á þegar KR tók á móti FH í gær eins og sjá má á þessari mynd. KR vann FH öðru sinni á skömmum
tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON