Fréttablaðið - 06.07.2011, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 06.07.2011, Blaðsíða 23
H A U S MARKAÐURINN Ú T T E K T 5MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2011 dvelja hér yfirleitt skemur en þeir sem koma að sumri og eru oft í leit að sérhæfðari afþrey- ingu. Því er ekki talið nóg að auglýsa áfanga- staðinn einan og sér heldur þurfi viðburði og afþreyingu að auki. „Við bjóðum upp á mjög breiða línu afþrey- ingar og ferða. Við erum mikið í hellaferðum og norðurljósaferðum og svo leitum við uppi heitar baðlaugar. Þá erum við með jeppaferðir upp á hálendið og vélsleðaferðir,“ segir Björn Hróarsson, framkvæmdastjóri Extreme Ice- land, um afþreyingu fyrir vetrarferðamenn og bætir við: „Við verðum vör við mikinn áhuga. Það eru alltaf nokkur hundruð manns á landinu á veturna og þegar mest lætur jafnvel einhver þúsund. Þetta er vissulega þungur róður en þeir sem hér eru sýna okkar þjónustu mikinn áhuga. Flestallir eru gríðarlega ánægðir með það sem við höfum upp á að bjóða. Það vant- ar ekki, þeir eru bara ekki nægilega margir.“ ÝMIS TÆKIFÆRI TIL STAÐAR Meðal sóknarfæra sem bent hefur verið á þegar kemur að vetrarferðamennsku er að markaðssetja Ísland betur í Asíu en ferða- mynstur Asíubúa er ekki jafn árstíðabundið og ferðamynstur evrópskra og bandarískra gesta hér á landi. Til að mynda eru janúar og febrúar vinsælir heimsóknarmánuðir hjá jap- önskum ferðamönnum. Það takmarkar hins vegar fjölda asískra ferðamanna að ekki er boðið upp á beint flug milli Asíu og Íslands en margir ferðamenn leggja mikið upp úr því. Þá hefur gefið góða raun að koma á fót við- burðum sem höfða til sértæks en þó stórs hóps ferðamanna en Iceland Airwaves er senni- lega best heppnaða viðleitnin í þá átt enn sem komið er. „Við höfum unnið að því markvisst í sam- vinnu við aðra að komið verði upp frekari af- þreyingu og aðdráttarafli við gullna hringinn. Við komum að uppbyggingu Laugarvatn Font- ana baðstaðarins. Annað dæmi eru hesta dagar í Reykjavík sem er viðburður sem fellur að áhuga sértæks markhóps sem er engu að síður mjög stór í Evrópu,“ segir Hildur Ómars dóttir. Þá bendir hún á að tækifæri séu til staðar til að auka hér fjölda ferðamannahópa á vegum fyrirtækja en slíkir hópar verji yfirleitt mikl- um fjármunum í heimsóknum sínum. Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, talar á svipuðum nótum. Hægt sé að stækka ráð- stefnu- og hvataferðamarkaðinn, sem á sér einkum og sér í lagi stað utan háannar, og halda áfram að byggja upp heilsuferðaþjón- ustu sem hefur gefist vel. Þá telur Ólöf enn vera mörg tækifæri til staðar til að markaðs- setja vetrarævintýraferðir. Loks hrósar hún nýrri ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar en þar eru meðal annars settar fram áætlanir um aukna markaðssetningu borgarinnar sem ferðamannastaðar og stækkun viðburðadaga- tals hennar. Þá er talið nauðsynlegt að auka markaðs- setningu á Íslandi sem ferðamöguleika yfir vetrartímann auk þess sem margir telja að aukið sætaframboð í flugferðum hingað til lands myndi jafnframt auka fjölda ferða- manna. Það gæti hins vegar reynst flugfélög- unum dýrt fyrst um sinn. Nokkur hluti þeirra sem hingað hafa komið síðustu vetra hefur nýtt sér tilboð á flugferðum og reynslan er að með auknu sætaframboði koma fleiri ferðamenn. „Það er alveg ljóst að það eru gríðarlega miklir möguleikar til staðar. Það hefur líka margt áunnist en ef við ætlum að rífa af al- vöru upp heilsársþjónustuna þá þarf senni- lega að leggja það á sig um tíma að bjóða upp á mun meiri þjónustu en áður þrátt fyrir að það skapi kannski ekki mikinn hagnað fyrst um sinn,“ segir Friðrik Pálsson. MARKAÐSÁTAK Í VÆNDUM Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna ný- samþykktra kjarasamninga er kveðið á um að næstu þrjú árin verði árlega varið 300 milljónum króna í markaðs- og þróunarátak til að fjölga hér ferðamönnum yfir vetrartím- ann. Stefnt er að fjölgun þeirra um 50 þús- und en þannig er talið að það megi skapa í það minnsta eitt þúsund störf. Þá er gert ráð fyrir að sama fjárhæð komi til verkefnisins frá sveitarfélögum og einkaaðilum. Í nýrri ferða- málaáætlun fyrir árin 2011 til 2020 eru einnig sett fram markmið um markaðs setningu er- lendis og uppbyggingu og þróun innanlands með það fyrir augum að fjölga vetrarferða- mönnum. Ólöf Ýrr Atladóttir segir að í anda ferða- málaáætlunarinnar sé margt í bígerð. „Nýju glæsilegu ráðstefnuhúsin; Harpa í Reykjavík og Hof á Akureyri munu hjálpa okkur við að laða hingað að ráðstefnu- og hvataferðamenn. Í heilsuferðaþjónustunni var til að mynda verið að opna glæsilega heilsulind í nýuppgerðu Hótel Loftleiðum. Auk þess má nefna Laugar- vatn Fontana heilsulaugarnar, jarðböðin á Mý- vatni og margt fleira,” segir Ólöf Ýrr og bætir við: „Það er þó auðvitað margt sem enn er eftir. Það þarf að þétta viðburðadagskrá, það þarf að tryggja að fyrirtæki, söfn og annað slíkt geti tekið á móti gestum bæði rétt utan háannar en líka á veturna og það þarf byggja upp fjölbreyttari afþreyingu í gegnum vöru- þróun og nýsköpun. Ég myndi hins vegar ekki kalla þetta hindranir, þetta eru miklu frekar viðfangsefni. Það er verk að vinna en það er ekkert til að missa móðinn yfir. Sóknarfærin eru nefnilega mýmörg.” „Það eru gríðarleg tækifæri í þessu fyrir þjóðarbúið. Við getum tekið við miklu meiri fjölda á v e t - urna. Við höfum gisti- rýmin og þjón- ustuna. Þannig a ð m e ð því að fá hingað fleiri ferða- menn á veturna getum við aflað mikils gjaldeyris og skapað fjölda starfa, það er ekki spurning,“ segir Björn Hróarsson, framkvæmdastjóri Extreme Iceland. B J Ö R N H R Ó A R S S O N , F R A M K V Æ M D A S T J Ó R I „Það á auðvitað að byggja vetrarferðamennskuna upp á sömu grundvallaratriðum og alla aðra þjónustu. Að selja það sem þú getur verið stolt- ur af og veist að þú ert að gera vel. Þá koma viðskipta- vinirnir,“ segir Friðrik Páls- son, framkvæmdastjóri Hótels Rangár og stjórnar formaður Íslandsstofu. „Það miki lvægasta er að markaðssetja Ísland erlendis af meiri krafti en áður, allan ársins hring. Þá er ekki hægt a ð e f l a ferða- þjón- ustuna með því að skatt- leggja hana, það getur valdið miklum skaða,“ segir Hildur Ómarsdóttir, markaðsstjóri Icelandair Hotels. H I L D U R Ó M A R S D Ó T T I R , M A R K A Ð S S T J Ó R I F J Ö L D I F E R Ð A M A N N A E F T I R M Á N U Ð U M 100.000 80.000 60.000 40.000 20.000 0 janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 Meðal verkefna sem unnið er að hér á landi til að auka aðdráttarafl landsins með tilliti til vetrarferðamennsku er gerð ísganga og hella í Langjökli. Icelandair Group í sam- starfi við verkfræðistofuna Efla standa að verkefninu en það er enn á hugmyndastigi. Stefnt er að því að grafa rannsóknargöng um 150 til 200 metra inn í ísinn með það fyrir augum að skera úr um hvort verkefnið sé raunhæft. Í kynningarskjali um það segir að það falli vel að þeim áherslum sem hafi verið innan ferðaþjónustunnar um aukningu ferðalaga til Íslands á veturna. Í S G Ö N G Í L A N G J Ö K L I F R I Ð R I K P Á L S S O N , F R A M K V Æ M D A S T J Ó R I

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.