Fréttablaðið - 06.07.2011, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 06.07.2011, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 6. júlí 2011 23 Pepsi-deild kvenna Fylkir - ÍBV 2-0 1-0 Anna Björg Björnsdóttir (56.), 2-0 Anna Björg Björnsdóttir (90.) Þór/KA - Þróttur R. 4-2 1-0 Mateja Zver (11.), 2-0 Rakel Hönnudóttir (13.) víti, 3-0 Manya Janine Makoski (27.), 3-1 Fanny Vago (38.), 3-2 Vago (51.) víti, 4-2 Makoski (64.) Valur - KR 3-1 1-0 Rakel Logadóttir (18.), 2-0 Rakel Logadóttir (32.), 3-0 Mist Edvardsdóttir (33.), 3-1 Kristín Sverrisdóttir (66.). Afturelding - Breiðablik 0-3 0-1 Fanndís Friðriksdóttir (5.), 0-2 Hlín Gunn- laugsdóttir (17.), 0-3 Ásta Eir Árnadóttir (50.) Stjarnan - Grindavík 2-1 1-0 Inga Birna Friðjónsdóttir (33.), 1-1 Dernelle L. Mascall (36.), 2-1 Ashley Bares (46.), 3-1 Bares 83. Upplýsingar að hluta frá fótbolti.net ÚRSLIT STAÐAN: Valur 8 7 1 0 23-7 22 Stjarnan 8 7 0 1 21-6 21 ÍBV 8 5 1 2 17-5 16 Þór/KA 8 5 0 3 18-20 15 Fylkir 8 4 1 3 11-11 13 Breiðablik 8 3 1 4 12-14 10 KR 8 1 4 3 6-9 7 Þróttur R. 8 1 2 5 10-19 5 Afturelding 8 1 1 6 6-22 4 Grindavík 8 0 1 7 7-21 1 Eyddu í nýjan sparnað Volvo R-Design Komdu í Brimborg Vo lvo C 30 , V ol vo S 40 o g Vo lvo V 50 e r h æ gt a ð fá í R -D es ig n sp or tú tfæ rs lu Brimborg | Bíldshöfða 6 | Sími 515 7000 | volvo.is FÓTBOLTI Fylkir sigraði ÍBV 2-0 á heimavelli sínum í Pepsi-deild kvenna í gærkvöld, þar sem segja má að leikaðferð Fylkis hafi gengið fullkomlega upp. ÍBV var sterkari aðilinn framan af en átti í vandræðum með að skapa sér marktækifæri og náði ekki að stríða markverði Fylkis í þeim hálffærum sem liðið skapaði sér í fyrri hálfleik. ÍBV hóf seinni hálf- leik af krafti og komst í tvö góð marktækifæri og virtist markið liggja í loftinu þegar Fylkir komst í sína fyrstu skyndisókn eftir tíu mínútur og Anna Björg Björns- dóttir kom heimaliðinu yfir. „Það er greinilegt í seinni hálf- leik að leikur inn á laugardaginn sat í leikmönnum. Við vorum í sókn þar í 120 mínútur við mjög erfiðar aðstæður og það sat í okkar mönnum,“ sagði Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, eftir leik- inn, en lið hans féll úr bikarkeppn- inni á laugar daginn eftir fram- lengingu og vítaspyrnukeppni. „Við byrjum seinni hálfleik- inn frábærlega og mér fannst við spila fyrri hálfleikinn vel líka en svo ákveður einn leikmaður hjá mér að gefa þeim þetta mark og þá var loftið úr okkur. Ég óttaðist að leikurinn á laugardaginn myndi sitja allt of mikið í okkur og eftir þetta mark var þetta búið,“ sagði Jón Ólafur, sem ætlar að reyna að krækja í framherja þegar leik- mannaglugginn verður opnaður. Fylkir réð lögum og lofum á vellinum eftir markið og hefði getað verið búinn að bæta við mörkum áður en Anna Björg skor- aði annað mark sitt rétt áður en flautað var til leiksloka. Hrafn- hildur Hekla Eiríksdóttir, miðju- maður Fylkis, var að vonum ánægð í leikslok. „Þetta gekk virkilega vel upp hjá okkur. Við ákváðum að vera mjög þéttar á miðjunni því þær eru með spræka framherja og sterka skotmenn. Við ætluðum að beita skyndisókn- um og nýta þeirra mistök, sem við gerðum.“ „Þegar við tökum boltann niður erum við með mjög vel spilandi lið og það gekk mjög vel. Mér fannst við vera mjög skipulagðar og halda boltanum vel. Við getum unnið hvaða lið sem er, tímabilið fór brösuglega af stað en þetta er á góðri leið, höfum unnið fimm leiki í röð,“ sagði Hrafnhildur að lokum. Heil umferð fór fram í Pepsi-deild kvenna í gær. Breiða- blik vann Aftureldingu 3-0 á úti- velli undir stjórn Ólafs Brynj- ólfssonar, sem tók við liðinu á dögunum. Valur vann KR 3-1 og Stjarnan fylgir Val eins og skugg- inn eftir 3-1 sigur gegn Grindavík á heimavelli. Á Akureyri vann Þór/KA lið Þróttar úr Reykjavík, 4-2. - gmi Leikaðferð Fylkis gekk upp Sigurganga Fylkis heldur áfram og ÍBV fatast flugið. Valur enn á toppnum eftir 3-1 sigur gegn KR. Blikar unnu sinn fyrsta leik undir stjórn nýs þjálfara. Góður sigur Þórs/KA í markaleik. BARÁTTA Leikmenn Fylkis gáfu ekkert eftir gegn ÍBV í gær og uppskáru 2-0 sigur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Ellen White og Rachel Yankey skoruðu mörk Englands í 2-0 sigri liðsins gegn Japan á HM kvenna í fótbolta í gær. Englend- ingar unnu þar með B-riðilinn og Japan komst einnig í átta liða úrslit. Heimsmeistaralið Þjóð- verjar lagði Frakka 4-1 og mætir Japan í átta liða úrslitum. Eng- land mætir liði Frakka. HM kvenna í fótbolta: Englendingar fóru áfram

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.