Fréttablaðið - 06.07.2011, Blaðsíða 38
6. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR26
MORGUNMATURINN
„Í morgunmat fæ ég mér
hafragraut og tek svo Omega 3
fiskiolíu.“
Ísak Freyr Helgason förðunarfræðingur
„Ég er hættur, seldi minn hlut í desember,“
segir Logi Geirsson, leikmaður FH í hand-
bolta. Hann er hættur afskiptum af hár-
gelsfyrirtækinu Silver sem hann stofnaði
ásamt Björgvin Páli Gústavssyni, markverði
íslenska landsliðsins.
Logi segir ýmsar ástæður fyrir því að
hann sé hættur í gelbransanum; hann hafi
ekki náð að sinna þessu eins og hann vildi og
þá hafi aðrir hlutir átt hug hans að undan-
förnu. Leikmaðurinn hóf fyrir skemmstu
störf hjá Asics á Íslandi og þá hefur hann
verið að jafna sig á erfiðum meiðslum í öxl
sem héldu honum utan vallar nánast allt síð-
asta tímabil. Lítil virkni hefur verið á Silver-
síðunni, thesilver.is, að undanförnu en síð-
asta færsla var sett inn fyrir hálfu ári. Logi
segist ekki hafa hugmynd um hvert Silver
stefni, það sé alfarið í höndum Björgvins.
Það vakti mikla athygli þegar þeir Logi og
Björgvin settu á markað hárgel undir vöru-
merkinu Silver. Nafnið vísaði til glæsilegs
árangurs íslenska landsliðsins á Ólympíu-
leikunum í Peking 2008. Jafnframt rættist
langþráður draumur Loga, sem hafði í mörg
ár blandað sitt eigið gel og hafði lýst því
yfir í fjölmiðlum að hann langaði til að leyfa
öðrum að njóta þess. - fgg
Logi Geirs hættur í Silver
HÆTTUR Logi Geirsson er hættur í Silver-fyrirtækinu,
sem hann stofnaði ásamt Björgvin Páli Gústavssyni.
Hann seldi sinn hlut í desember.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Jú, þetta er rétt. Við ætlum að endurvekja fótbolta-
útsendingar þarna og bjóða upp á boltavænan mat og
svo verður bara sígilt stuð um helgar,“ segir Guðfinn-
ur Karlsson, oftast kallaður Finni á Prikinu.
Finni hefur keypt gamla Glaumbar við Tryggva-
götu og hyggst ráðast í gagngerar endurbætur á
honum. Finni ætlar jafnframt að dusta
rykið af starfstitlinum „skemmtana-
stjóri“ en það þótti ábyrgðarmikið starf
hér áður fyrr. „Ég er að fara að hitta
nokkra náunga á næstu dögum og við
ættum að geta gengið frá þessu von
bráðar.“
Umsvif Finna í veitingabrans-
anum aukast þar með enn. Hann
hefur um árabil rekið Prikið
og fyrir skemmstu opnaði
hann Frú Berglaugu
við Laugaveg. Glaum-
bar bætist svo í hópinn
innan tíðar.
Glaumbar naut
mikilla vinsælda hér
á árum áður og samkvæmt tilkynningu sem send
var út í vikunni stendur til að endurvekja gömlu
Glaumbars-stemninguna. Þá ætti það að vera mörg-
um í fersku minni þegar myndbandi af Julian Ass-
ange, stofnanda Wikileaks, var lekið á netið en þar
sást hann dansa á Glaumbar við taktfasta tóna. - fgg
Finni kaupir Glaumbar
ENDURBÆTUR Guðfinnur Karlsson, eða Finni, hefur keypt
Glaumbar og hyggst færa staðinn aftur til fyrra horfs þar sem
boltinn var í beinni og sígilt stuð um helgar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Félagi minn sagði einu sinni við
mig að þar sem peningarnir eru
þar gerast hlutirnir. Fjörið er
búið hér á Íslandi og í Danmörku.
Nú tekur Noregur við,“ segir Jói
Kjartans, ljósmyndari og grafísk-
ur hönnuður. Hann hyggst leggja
land undir fót í haust og flytja til
Noregs ásamt kærustu sinni Hildi
Hermannsdóttur en hún er þegar
komin út.
Brotthvarf þeirra frá landinu er
mikill sjónarsviptir fyrir miðbæ
Reykjavíkur, en þau Hildur og
Jói hafa sett skemmtilegan blæ á
mannlífið síðustu ár. Jói er þekkt-
ur fyrir skemmtilegar götumyndir
og hefur gefið út ljómyndabókina
Joi de Vivre.
Jói og Hildur eru bæði mennt-
aðir grafískir hönnuðir frá Lista-
háskóla Íslands og ekki hefur
gengið sem skyldi að fá vinnu við
fagið á Íslandi. „Við vorum bæði
atvinnulaus og orðin vonlaus um
að finna vellaunaða vinnu hér.
Þess vegna leitaði hugur okkar út
en það var nú eiginlega fyrir til-
vijun sem við ákváðum að flytja
til Ósló,“ segir Jói, en hugmynd-
in kom upp þegar hann sá auglýst
eftir 300 bílstjórum til Noregs. „Þá
hugsaði ég að þetta væri eina land-
ið sem ég vissi um þar sem nóga
vinnu er að fá. Bæði hér heima og
í Danmörku er offramboð á fólki
og litla vinnu að fá. Svo er Osló á
leiðinni að verða jafn skemmtileg
og Reykjavík held ég.“
Hildur er komin til Noregs, þar
sem hún vinnur á bar og í fatabúð
en Jói ætlar að flytja með haust-
inu. „Við tókum okkar þátt í góð-
ærinu eins og flestir. Við reiknuð-
um það út að með því að fara út og
vinna værum við í eitt ár að borga
niður skuldir í staðinn fyrir þrjú
ár hér heima. Hér fara laun bara
lækkandi og vöruverð hækkandi.“
Jói ætlar samt ekki að leggja
linsuna á hilluna og heldur áfram
að taka myndir í Noregi. Hann er
hins vegar tilbúinn að skipta um
starfsvettvang eftir að hafa setið
á skrifstofum auglýsingastofa
undan farin ár. „Ég væri alveg til
í að vinna í fiski eða keyra rútu,
svona til tilbreytingar. Ég byrja
samt örugglega á að sækja um
á hönnunarstofunum í Ósló. Við
hugsum þetta bæði sem hálfgerð-
ar vinnubúðir, í eitt ár til að byrja
með. Svo sjáum við bara hvern-
ig okkur líkar lífið hjá frændum
okkar í Noregi.“ alfrun@frettabladid.is
JÓI KJARTANS: LITLA VINNU AÐ FÁ Á ÍSLANDI
Halda í víking til Noregs
YFIRGEFUR KREPPUNA Ljósmyndarinn Jói Kjartans og grafíski hönnuðurinn Hildur
Hermanns yfirgefa kreppuna á Íslandi og halda í víking til Noregs.
Sýningar: fim. 7. júlí, fös. 8. júlí, lau. 9. júlí,
fim. 14. júlí, fös. 15. júlí, lau. 16. júlí,
fim. 21. júlí, fös. 22. júlí
HÁRIÐ
Söngleikurinn sem sló í gegn á Akureyri
er loksins kominn suður!
Frumsýning í Hörpu 7. júlí
SILFUR TUNGLIÐ
„Algjör snilld“
Júlíus Júlíusson, Mbl. Miðasala á harid.is
– ÞVÍ X ER EKKI NÓG!
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU YKKUR SIRKUS SÓLEY
MIÐASALA
Í TJARNARBÍÓI,
Á MIÐI.IS OG
Í SÍMA 527 2102
SÝNT Í TJARNARBÍÓI Í JÚLÍ
S I R K U S
Í S L A N D S
K Y N N I R
HÖFUM BÆTT VIÐ
FLEIRI SÝNINGUM!
miðvikudag 6. júlí kl. 18
fimmtudag 7. júlí kl. 18
föstudag 8. júlí kl. 18
laugardag 9. júlí kl. 14 og 18
sunnudag 10. júlí kl. 14 og 18
„Húmor, metnaður og
skemmtun í hávegum höfð“
—Kidda, Pressunni
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
KOMDU Í ÖLL HELSTU
PARTÝIN MEÐ OKKUR
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.