Fréttablaðið - 06.07.2011, Blaðsíða 28
6. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR16
BAKÞANKAR
Sifjar
Sigmars-
dóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hvað erum
við að
tala um?
Hvaðan
kom þessi
brúskur?
Við erum búin að
greina sýnin og
þetta er það sem
við óttuðumst.
„Nætursamruni
augnabrúna.“
Sem
þýðir?
Að þú verður
með samvaxnar
augabrúnir
það sem
eftir er.
Og það
er engin
lækning til
við þessu?
Ég mæli með
brennivíni, það
kemst næst því
að lækna!
Hvað ertu
að gera
Palli?
Teygja á
hryggnum.
Í alvöru?
Að hanga á hvolfi
vinnur gegn áhrifum
þyngdaraflsins.
Ég hlýt að
geta rakað
þetta...
Smá
skurð?
Þær vaxa
aftur saman
yfir nótt.
Ekki séns!
Þetta gengur vel!
Allt á
áætlun! Hver vill
fara að
sofa?
Við erum búin að borða,
allir búnir að fara í bað og
komnir í náttfötin!
Paaabbbi,
klukkan
er bara
sjö og
sólin er
enn á
lofti.
Nú. Ókei, hver
vill borða
kvöldmat
aftur?
LÁRÉTT
2. íþrótt, 6. frá, 8. vefnaðarvara, 9. far-
vegur, 11. umhverfis, 12. laust bit, 14.
framvegis, 16. berist til, 17. þjálfa, 18.
eyrir, 20. persónufornafn, 21. slabb.
LÓÐRÉTT
1. þungi, 3. pot, 4. peningar, 5.
óðagot, 7. fáskiptinn, 10. dorma, 13.
frjó, 15. kvið, 16. hryggur, 19. guð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. golf, 6. af, 8. tau, 9. rás,
11. um, 12. glefs, 14. áfram, 16. bt,
17. æfa, 18. aur, 20. ég, 21. krap.
LÓÐRÉTT: 1. farg, 3. ot, 4. lausafé, 5.
fum, 7. fálátur, 10. sef, 13. fræ, 15.
maga, 16. bak, 19. ra.
Hrói höttur
og
herramennirnir
hans
Bresku kaupkonunni Jenny Paton varð um þegar hún veitti eftirtekt manni
sem gægðist inn um stofuglugga heimilis
hennar í Dorset þar sem hún sat og púslaði
með dætrum sínum. Hana fór að gruna að
ekki væri allt með felldu nokkrum dögum
síðar þegar ókunnugur bíll veitti henni
eftirför er hún ók dætrunum í skólann.
Það sem Jenny vissi ekki var að yfirvöld
njósnuðu um hana í skjóli hryðjuverkalaga.
Hver meintur glæpur Jennyar var hefði
hún aldrei getað gert sér í hugarlund.
EN að Íslandsströndum: Nýverið var nem-
endum 10. bekkjar tilkynnt hvar þeir hefðu
hlotið framhaldsskólavist. Gremju hefur
gætt meðal nemenda, foreldra og skóla-
stjórnenda í kjölfar þess að framhalds-
skólum var meinað að hleypa inn nemend-
um einungis eftir getu heldur skyldu þeir
metnir eftir búsetu; 40% plássa skóla
eru frátekin fyrir umsækjendur úr
hverfinu. Góðar einkunnir eru því ekki
lengur málið. Skólastjóri Verzlunar-
skóla Íslands, Ingi Ólafsson, hefur
greint frá því að hann hafi þurft
að taka inn í skólann nemendur
úr hverfinu með 6,9 í meðal-
einkunn meðan nemendum með
allt að 8,75 var vísað frá.
HVERS vegna það er farið að
þykja feimnismál að fólk komist
áfram á verðleikum er óskiljan-
legt. Er eðlilegt að hæfileika-
ríkur nemandi úr Breiðholtinu komist ekki
inn í MR en nemandi með lágar einkunnir
úr 101 fljúgi sjálfkrafa inn? Vafalítið hefur
ásetningur yfirvalda sem komu þessari
stefnu á verið góður. Ófyrirséðar afleið-
ingar hennar geta þó orðið geigvænlegar.
GLÆPURINN sem Jenny Paton var gef-
inn að sök var að ljúga til um heimilisfang
sitt. En hvers vegna skyldi hún gera það? Í
Bretlandi er grunn- og framhaldsskólastig-
ið bundið hverfaskipulagi. Afleiðingarnar
hafa reynst þær að slegist er um húsnæði
kringum góða skóla sem er allt að 11% dýr-
ara en meðalhúsnæðið. Það eru því helst
efnaðir foreldrar sem hafa tök á að tryggja
börnum sínum gott nám. Tekið hefur að
bera á því að foreldrar sem ekki hafa efni
á slíkum munaði ljúgi til um heimilisfang í
skólaumsóknum barna sinna. Til að nappa
„svikarana“ hafa hin ýmsu bæjaryfirvöld
nýtt sér lagaheimildir um njósnir sem upp-
haflega áttu að góma hryðjuverkamenn og
dópsmyglara.
HÆTTA er á sambærilegri þróun hér á
landi; húsnæðisverð hækkar kringum
góða skóla og góð menntun verður mun-
aður ríkra. Í raun væri það verðugt athug-
unarefni að skoða hvort íbúðar húsnæði
kringum góða skóla sé ekki nú þegar
hærra en annars staðar. Stjórnvöldum
kann að þykja hæfni vondur mælikvarði
við inngöngu í framhaldsskóla. Efnahags-
legir yfirburðir eru þó enn verri.
Góð einkunn ekki málið
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt.