Fréttablaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 16
16 8. júlí 2011 FÖSTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 HALLDÓR Með okkar augum hóf göngu sína í Ríkis-sjónvarpinu síðastliðinn mánudag. Ég fylgdist spenntur með enda nýmæli á ferð í íslenskri dagskrárgerð. Við stjórnvölinn er fólk með þroskahömlun sem fjallar um mál- efni líðandi stundar með sínum augum og opnar þar sýn sem alla jafna stendur sjón- varpsáhorfendum ekki til boða. Efnistök fyrsta þáttar voru í sjálfu sér ekki framandi. Saman fóru stuttar fréttaskýringar í bland við léttara efni og framsetningin kunnugleg úr hefðbundnum magasínþáttum. Til umfjöll- unar voru málefni sem miklu varða í lífi fólks með fötlun en einnig atriði sem eru jafnt á áhugasviði fatlaðs fólks sem ófatlaðs og varða okkur öll í stóru og smáu. Umfjöllun um Fjölmennt var áhugaverð og augljóst hvað miklu skiptir að fólki með fötlun gefist kostur á að mennta sig og þjálfa færni sína svo það fái notið sín sem best í samfélaginu. Réttur til náms þarf að vera öllum tryggður og ávinningur er ávallt fyrir hendi hver sem á í hlut sé áhuginn er fyrir hendi. Blindur faðir sem rætt var við lýsti stöðu sinni miðað við sjáandi feður og sagðist hlusta á son sinn vaxa úr grasi. Þótt auðvitað væri sitthvað honum erfiðara að annast í upp- eldinu hefði hann margt annað að gefa syni sínum sem væri ekki síður mikils virði. Umfjöllunarefni þáttarins áttu sam- merkt að umsjónarmennirnir drógu fram á einfaldan en skýran hátt að öll erum við að fást við það sama þegar allt kemur til alls, þótt áherslur séu mismunandi eftir einstak- lingum, aðstæðum þeirra og lífsreynslu. Umsjónar mennirnir sinntu verkefnum sínum vel, jafnt tæknifólkið á bak við tjöldin og fólk- ið fyrir framan myndavélarnar. Áhugi spyrla á viðfangsefnunum leyndi sér ekki, spurning- um var vel fylgt eftir en þó fór saman ein- beiting og afslappað og þægilegt viðmót. Ég hef ekki mikinn áhuga á tísku en þótti sann- færandi umfjöllun um klæðaburð sumarsins hjá þeim sem vilja fylgjast með og mat- reiðsluhornið fékk mig til að sleikja út um. Með okkar augum er tímamótaþáttur í íslensku sjónvarpi og vonandi er með honum sleginn tónn sem fær að hljóma áfram. Það er svo mikilvægt að undirstrika fjölbreytileika samfélagsins og sýna hve það er miklu ríkara einmitt vegna hans. Ég nota líka tækifærið og rifja upp slagorð fatlaðs fólks: Ekkert um okkur án okkar! nokkuð sem allir ættu að hafa hugfast sem á einhvern hátt fjalla um tilhögun mála sem varða fatlaða. Ég þakka öllum þeim sem gerðu mögulega framleiðslu þessara þátta sem enginn ætti að missa af í Ríkissjónvarpinu á mánudögum kl. 18.30. Ég hvet fólk líka til að heimsækja þátt- inn á fésbók: facebook.com/medokkaraugum. Ekki missa af þessu! Málefni fatlaðra Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra M ikilvægt skref er stigið í átt til sáttar um hvar má virkja á landinu og hvar ekki með skýrslu verkefnis stjórnar rammaáætlunar um verndun og nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Verkefnis- stjórnin skilaði af sér í fyrradag og hefur raðað í forgangsröð 66 virkjunarmöguleikum af alls 84 sem voru til umfjöllunar. Um afganginn skorti vísindaleg gögn, þannig að þeir virkjunarkostir verða metnir síðar. Röðun virkjunarkostanna byggist á mati á gífurlegu magni gagna sem fjórir undirhópar hafa yfirfarið og rannsakað, meðal annars út frá sjónar- hornum orkunýtingar, náttúru- verndar, ferðamennsku, efna- hags- og samfélagsáhrifa og verndar fornleifa og menningar- minja. Á listanum sem verkefnis- stjórnin hefur stillt upp kemur út af fyrir sig ekki margt á óvart. Vænlegustu virkjunarkostirnir eru sagðir þeir sem þegar eru komnir vel á veg, til dæmis Hellisheiði, Blönduveita og Reykjanes virkjun. Mest ástæða þykir til að vernda Torfajökuls- svæðið, Kerlingarfjöll og Vonarskarð. Virkjanirnar í neðri hluta Þjórsár, þótt umdeildar séu, þykja með vænlegri virkjunarkostum að teknu tilliti til allra áðurnefndra þátta. Að sjálfsögðu verða ekki allir sammála um forgangsröðunina. Það er engin leið að byggja virkjun án þess að það hafi einhver áhrif á náttúruna. En jafnvel hörðustu náttúruverndarsinnar halda því ekki fram að hvergi megi virkja. Með því að nýta orkuna í háhitasvæðum og vatnsföllum er einhverju alltaf fórnað. Með því að láta orkulindir landsins ósnertar væri líka færð mikil efnahagsleg og samfélagsleg fórn. Hér þarf því augljóslega að gera málamiðlanir. Vinnan við rammaáætlunina skilar því ekki sízt að ákvarð- anir um þær málamiðlanir verði byggðar á greinargóðum upp- lýsingum og rannsóknum og faglegum samanburði á ólíkum virkjunarkostum út frá mörgum sjónarhornum. Vinnunni er ekki lokið; niðurstöður verkefnisstjórnarinnar verða settar í búning draga að þingsályktunartillögu, sem almenningur, hagsmuna- aðilar og félagasamtök hafa þrjá mánuði til að gera athugasemdir við. Alþingis bíður svo það verkefni að setja virkjanakostina í orkunýtingarflokk, þ.e. þar sem má virkja, verndarflokk, þar sem má ekki virkja, og biðflokk þar sem safna þarf meiri upplýsingum til að geta tekið ákvörðun um verndun eða nýtingu. Þetta er ekki einfalt verkefni og búast má við að loka- ákvörðunin verði umdeild en við færumst þó nær sæmilegri sátt um virkjanir og vernd sem gerir okkur kleift að hagnýta orku- auðlindir landsins með sem minnstum skaða fyrir umhverfið. Þegar ákvörðun Alþingis liggur fyrir er von til þess að hægt verði að setja nýjan kraft í orkuvinnslu í landinu. Skýrsla um nýtingu og verndun hugsanlegra virkjanasvæða er mikilvægur áfangi. Skref í átt að sæmilegri sátt Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN NJÓTTU SUMARSINS TILBOÐSDAGAR Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is ÆGIR TJALDVAGN 1.279.000. *Afsláttur -200.000. Verð kr. 1.079.000. með fortjaldi PALOMINO COLT 2.559.000. *Afsláttur -369.000. Verð kr. 2.190.000. með fortjaldi KÍKTU VIÐ OG GERÐU GÓÐ KAUP Í startholunum? Þekkt aðferð stjórnmálamanna til að kanna möguleika sína er að lauma spurningu með í skoðanakönnunum. Hvort slíkt er á ferðinni núna skal ósagt látið, en ófáir hafa þó fengið upphringingu frá Gallup þar sem þeir eru spurðir um hver ætti að vera formaður Sjálfstæðisflokksins, sem heldur landsfund í haust. Valmöguleikarnir eru athyglis- verðir; Bjarni Benediktsson, Ólöf Nordal, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Kristján Þór Júlíusson. Spennandi verður að sjá útkomuna, ef hún þá verður einhvern tímann birt. Opinber leynd Opinber hlutafélög eru nokkur hér á landi og hefur löngum staðið styr um það rekstrarform. Sumir telja það fyrsta skref í átt til einkavæðingar og aðrir gagnrýna að með því formi skjóta menn sér undan upplýs- ingalögum. Því er það rifjað upp að trekk í trekk hafa forsvarsmenn opinbera hlutafélagsins ISAVIA undanfarið neitað blaða- mönnum um upplýsingar um siðareglur fyrirtækisins, en þær hafa verið í umræðu vegna niðurtekningar auglýsinga í Leifsstöð. Bleikt og blátt Björn Ingi Hrafnsson situr ekki auðum höndum og rekur nú umfangsmikið fjölmiðlaveldi ásamt vefverslun fyrir hjálpartæki ástar- lífsins. Enn virðist Björn Ingi ætla að færa út kvíarnar. Samkvæmt skrán- ingu á fyrirtæki hans, Vef pressan, lénið blatt.is en nokkur umræða hefur verið um opnun þess vefjar. Björn Ingi á fyrir svæðið bleikt.is svo nú hefur hann, auk ástartól- anna, yfir lénunum Bleikt og Blátt að ráða, en það var einmitt heiti á erótísku tímariti sem eitt sinn kom út hér á landi. kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.