Fréttablaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 36
8. júlí 2011 FÖSTUDAGUR24 Þjóðleikhúsinu hefur verið boðið að sýna uppfærslu sína á Lé konungi á alþjóð- legu Shakespeare-hátíðinni í London að ári. Hátíðin er hluti af hátíðarhöldum vegna Ólympíuleikanna í London næsta sumar. Uppfærslu Þjóðleikhússins á Lé konungi hefur verið boðið að taka þátt í The World Shakespeare Festival í London á næsta ári. Konunglega Shakespeare-leik- húsið stendur að hátíðinni í sam- starfi við nokkur helstu leikhús í Bretlandi, svo sem Roundhouse, Barbican og breska þjóðleikhúsið sem og breska ríkisútvarpið BBC. Á hátíðinni eru sýndar framúr- skarandi uppfærslur á verkum Shakespeares frá 37 löndum. Tinna Gunn- laugsdóttir, þjóðleikhús- stjóri, segir það heilmikið fyrir- tæki að flytja sýninguna á mi l l i la nda , enda var hún mikið sjónar- spil. „Núna ætlum við að kanna hvort það sé raunhæfur möguleiki fyrir okkur að þiggja þetta góða boð. Við munum auðvitað róa að því öllum árum, enda er þetta bæði mikil upphefð og tækifæri fyrir Þjóðleikhúsið.“ Tinna býst við að ákvörðun liggi fyrir að loknum sumarleyfum. Þetta er enn ein fjöðrin í hatt sýningarinnar, sem sópaði til sín sex Grímuverðlaunum á dögun- um, meðal annars sem besta sýn- ingin, auk þess sem Arnar Jónsson var valinn besti aðalleikarinn og Benedict Andrews hlaut Grímuna fyrir leikstjórn. Tinna segir í ljósi þess meðbyrs sem sýningin hefur fengið ekki loku fyrir það skotið að verkið fari aftur á fjalirnar í Þjóð- leikhúsinu. „Verkið yrði flutt á íslensku og ef við þurfum á annað borð að æfa það aftur upp væri mögulega hægt að nota tækifærið og sýna það aftur hér.“ Shakespeare-hátíðin stendur frá apríl fram í september. Hún verður óvenju vegleg að ári enda er hún einn af hápunktum Cultural Olympiad, umfangsmikillar fjög- urra ára menningarhátíðar sem haldin er í tilefni af Ólympíuleik- unum í London næsta sumar. bergsteinn@frettabladid.is 24 menning@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Föstudagur 8. júlí ➜ Tónleikar 17.30 Hljómsveitin Rökkurró heldur síðdegistónleika í verslun 12 Tóna við Skólavörðustíg. Aðgangur er ókeypis. 20.00 Hljómsveitin Thin Jim með tónleika í kirkjunni á Sauðarkróki. Aðgangseyrir er kr. 1.500 20.30 Lára Sóley Jóhannsdóttir fiðla og Eyþór Ingi Jónsson harmóníum verða með tónleika í Hömrum, Hofi. Miðaverð er kr. 2.000 en aðgangur er ókeypis fyrir 16 ára og yngri, öryrkja og eldri borgara. 22.00 Varsjárbandalagið heldur tónleika á Græna hattinum. Aðgangs- eyrir er kr. 2.000. 22.00 Hljómsveitirnar Ofvitarnir, Gang Related og tónlistarmaðurinn Þórir Georg koma fram á tónleikum á Dillon. Aðgangseyrir er enginn. 23.00 Hljómsveitin Orphic Oxtra með styrktartónleika á Faktorý. Ásamt þeim spila Valdimar og Of Monsters and Men. Aðgangseyrir er kr. 1.000. ➜ Leiklist 18.00 Sirkus Íslands sýnir Ö-faktor í Tjarnarbíói. Aðgangseyrir er kr. 1.900. ➜ Opnanir 20.00 Gallerí Klósett, nýtt sýningarrými á Hverfisgötu 61, er opnað með sýningu Páls Hauks Björnssonar á verkinu Garður. Allir velkomnir. ➜ Hátíðir 14.00 Jafningjafræðsla Hins hússins heldur götuhátíð á Austurvelli. Þekktir tónlistarmenn, fatamarkaður, pylsur, gos, candyfloss og klifurveggur. Allir velkomnir. ➜ Tónlistarhátíð 21.00 Besta útihátíðin hefst. Meðal hljómsveita eru Gus Gus, Quarashi og Valdimar. Miðaverð í forsölu er kr. 7.900, verð við hlið er kr. 9.500. 18 ára aldurstakmark nema í fylgd forráða- manna. Frítt fyrir 13 ára og yngri. ➜ Myndlist 16.00 Listakonan Hulda Hlín verður viðstödd sýningu sína í Ráðhúsinu til kl. 19. Síðasta sýningarhelgi. ➜ Útivist 19.00 Kvöldganga um Skólavörðu og Vaðlaheiði undir leiðsögn Grétars Grímssonar. Farið frá Strandgötu 23. Þátttökugjald er kr. 500, ókeypis fyrir félagsmenn Ferðafélags Akureyrar. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. LÉR KONUNGUR Sýningin hlaut sex Grímuverðlaun á dögunum, þar á meðal var Arnar Jónsson valinn besti leikari í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á titilpersónunni. Lé boðið á Shakespeare- hátíðina í London að ári TINNA GUNN- LAUGSDÓTTIR Franska forlagið Autrement hefur tryggt sér útgáfuréttinn á skáldsögunni Skaparanum eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Autrement er partur af Flammarion- samsteypunni, fjórða stærsta útgáfufyrir- tæki Frakk- lands, og er með höfunda á borð við Margaret Atwood á sínum snærum. Franska út- gáfan kemur út í október á næsta ári. Skaparinn kom út hér á landi 2009 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Hún hefur þegar komið út í Þýska- landi, Bandaríkjunum, Bretlandi, Ítalíu og nú síðast Finnlandi. Skaparinn til Frakkalands GUÐRÚN EVA MÍNERVUDÓTTIR ÚTSALA 38 ÞREP Laugavegi 49 / sími 561 5813 – ÞVÍ X ER EKKI NÓG! FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU YKKUR SIRKUS SÓLEY MIÐASALA Í TJARNARBÍÓI, Á MIÐI.IS OG Í SÍMA 527 2102SÝNT Í TJARNARBÍÓI Í JÚLÍ S I R K U S Í S L A N D S K Y N N I R AUKASÝNINGAR! í kvöld 8. júlí kl. 18 laugardag 9. júlí kl. 14 og 18 sunnudag 10. júlí kl. 14 og 18 „Húmor, metnaður og skemmtun í hávegum höfð“ —Kidda, Pressunni FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN ÞAÐ ERU FLEIRI PARTÝ OG MEIRA FJÖR Á VÍSI Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. SÍÐUSTU FORVÖÐ Frestur til að sækja um þátttökustyrk fyrir Menningarnótt 2011 rennur út sunnudaginn 10. júlí næstkomandi. Menningarnótt verður haldin í sextánda sinn 20. ágúst næstkomandi. Yfirskrift hátíðarinnar er „Gakktu í bæinn“, sem vísar til gestgjafahlutverks miðborgarinnar þennan dag og hvetur gesti til að skilja bílinn eftir heima. Þá verður glerhjúpur Hörpunnar vígður á Menningarnótt.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.