Fréttablaðið - 27.07.2011, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 27.07.2011, Blaðsíða 40
27. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR28 BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. íþrótt, 6. frá, 8. skír, 9. fljótfærni, 11. hætta, 12. kompa, 14. iðja, 16. skóli, 17. skjön, 18. fuglahljóð, 20. tveir, 21. meiri. LÓÐRÉTT 1. leikur, 3. pot, 4. fugl, 5. af, 7. hjáguð, 10. sæti, 13. framkoma, 15. ekki margir, 16. frjó, 19. fyrir hönd. LAUSN LÁRÉTT: 2. golf, 6. af, 8. tær, 9. ras, 11. vá, 12. klefi, 14. starf, 16. fg, 17. ská, 18. rop, 20. ii, 21. æðri. LÓÐRÉTT: 1. hark, 3. ot, 4. lævirki, 5. frá, 7. falsgoð, 10. set, 13. fas, 15. fáir, 16. fræ, 19. pr. Treystu mér, Abdúl. Ef þú kaupir þennan pýramída á 100 gullpeninga geturðu selt hann aftur til fimm mann- eskja á 500 gullpeninga. Er ég búin að bæta á mig? Já! Í alvöru? Þú ert í ruglinu! En þú ert heppin, ég veit um bestu aðferðina til að bræða í burtu fituna. Var það eitthvað? Nei! Hvað ertu að gera hérna? Hanga með bróður þínum, hað ert þú að gera? Læra. Ég er viss um að þú getur ekki sagt mér hvað sjö sinnum níu er. Sextíu og þrír. En átta sinnum níu? En níu sinnum níu?? Sjötíu og tveir. Áttatíu og einn. Vá! Ég gæti rústað þriðja bekk! Fyrsta pýramída- svindlið Þetta eru freknur, ekki húðflúr. Í íþróttaleikjum er hægt að krýna menn sigurvegara einungis fyrir það að standa best að vígi á einhverjum ákveðn- um tímapunkti. Þannig er það óumdeilt að það lið sem hefur skorað fleiri mörk í fót- bolta að 90 mínútum liðnum er sigurveg- ari. En í lífinu sjálfu gengur þetta ekki eins vel því tíminn stoppar aldrei sama hvaða dómari blæs í flautuna. Menn geta því gengið til náða sem hetjur en vaknað sem skúrkar eða dáið halloka en síðan verið minnst í sögunni sem sigurboga andans. BESTA dæmið um þetta er mesta ástarsaga allra tíma. Hún er frá ell- eftu öld en þá varð Frakkinn Pierre Abélard ástfanginn af henni Heloise. Hún var undir verndarvæng Fulberts frænda sem jafnframt var háttsettur maður innan kirkjunnar. Turtil- dúfurnar stungu af frá ofur- valdi Fulberts í París og var svo vingott með þeim á flóttanum að Heloise óx á þverveginn. Létu þau svo pússa sig saman á laun. FULBERT frændi brást hinn versti við og lét hafa upp á þeim. Þegar hann kom höndum yfir Abélard vildi hann ráðast að rót vand- ans svo hann lét gelda hann. Ég er ansi hræddur um að íþróttafréttamaðurinn Henry Birgir Gunnarsson myndi segja að við svo búið væri leik lokið með sigri Fulberts. En í lífinu sjálfu er ekkert sig- urmark til. Hvort sem við höfum himin höndum tekið eða misst allt lóðrétt niðr- um okkur þá liggja úrslitin enn ekki fyrir. ABÉLARD gengur í klaustur enda fátt um fína drætti þegar hér er komið sögu. Þar sem lífið var búið í brókunum snéri hann sér að bókunum og varð mikill fræði- maður. Þó að Heloise gengi heil til rekkju gekk hún líka í klaustur. Engir urðu endurfundir en þau skrifuðust á til ævi- loka. ÁSTARBRÉF þeirra eru talin með perl- um heimsbókmenntanna og rennur tár á hvarmi jafnvel hrjúfustu manna sem þau lesa. Fulbert reyndi hins vegar eins og rjúpa við staur að eigna sér einhver tónverk en fátt skilur hann eftir sig sem heimsbyggðin hefur áhuga á. SJÖ öldum eftir andlát þeirra voru menn svo innblásnir af ástarbréfum þessara ólánsömu elskenda að þeir ákváðu að sam- eina jarðneskar leifar þeirra í sömu gröf. Hvað segir Henry Birgir um það? Ástarleikur allra tíma
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.