Fréttablaðið - 27.07.2011, Blaðsíða 36
27. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Íslensk brúðuleikhús eru að slá í gegn
í Rússlandi. Hallveig Thorlacius með
sýninguna Minnsta tröll í heimi og
Bernd Ogrodnik með Umbreytingu
sóttu rússnesku brúðuhátíðina Baltic
Sea Countries Puppet Theatre Festi-
val í Sankti Pétursborg í Rússlandi á
dögunum. Viðbrögðin létu ekki á sér
standa og þeim hafa borist mörg til-
boð um sýningar í Rússlandi.
„Ég er að fara með brúðusýningu til
Múrmansk í september,“ segir Hall-
veig Thorlacius brúðuleikari og bætir
við að hún eigi eftir að vinna úr fleiri
tilboðum um sýningar í Rússlandi á
næsta ári. „Það er mikil hefð fyrir
brúðuleikhúsi í Rússlandi og virð-
ing borin fyrir því,“ segir Hallveig
sem fengið hefur gæðastimpil á leik-
hús sitt í Rússlandi. Hallveig segir að
Rússar séu óvanir því að fólk leiki eitt.
„Þetta eru stór leikhús en þeir eru að
læra af okkur því við höfum reynslu í
að vera fá,“ útskýrir Hallveig
Sýningu Hallveigar í Sankti Péturs-
borg sóttu aðallega fullorðnir. Hall-
veig segir hlæjandi að einungis þrjú
börn hafi verið á staðnum. „Það gerði
ekkert til, það var bara dásamlegt,“
segir Hallveig sem lék í Dostojevskí-
safni. „Frá því að ég kom inn á sviðið
og þar til ég fór út aftur þá var ég með
óskipta athygli áhorfenda.“ Áhorfend-
ur taka þátt í sýningu Hallveigar. „Ég
læt börnin, vanalega, hjálpa söguhetj-
unni að bjarga sér úr klónum á Grýlu
en í þetta skiptið mátti ég hafa mig
alla við til að leyfa börnunum að taka
þátt af því að fullorðna fólkið var svo
fljótt að grípa tækifærið.“
Dóttursonur Hallveigar, Úlfur Elí-
asson, átta ára, fór til Sankti Péturs-
borgar með henni. Honum fannst það
mikil upplifun en komst að þeirri nið-
urstöðu að Grýla myndi ekki vera
spennt fyrir því að borða Rússa. „Af
því þeir voru alltaf að reykja.“
martaf@frettabladid.is
HALLVEIG THORLACIUS: BRÚÐURLEIKHÚS HENNAR EFTIRSÓTT Í RÚSSLANDI
Rússnesk tilboð streyma inn
VINSÆL Í RÚSSLANDI Úlfur Elíasson fór ásamt ömmu sinni Hallveigu Thorlacius til Rússlands og komst að því að Grýla myndi ekki vera spennt
fyrir að borða Rússa, sem reykja mikið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ALEXANDRE DUMAS (1824-1895) rithöfundur fæddist þennan dag.
„Hamingjan er eins og þeir staðir í ævintýrunum sem vaktaðir
eru af drekum, við verðum að berjast til að öðlast hana.“
Elskuleg eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
Ása Kristinsdóttir
Grenimel 43,
sem andaðist mánudaginn 11. júlí, verður jarð-
sungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 28. júlí
kl. 15.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim
sem vildu minnast hennar er bent á styrktarfélagið
Göngum saman (gongumsaman.is, eða sími
Krabbameinsfélagsins: 5401990).
Svavar Björnsson
Ásta Svavarsdóttir Tómas R. Einarsson
Sigrún Svavarsdóttir
Kristín Svavarsdóttir Sæmundur Runólfsson
Björn Þór Svavarsson Sigrún Jóna Andradóttir
og barnabörn
Yndislega eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Róshildur Stefánsdóttir
Ljósuvík 14, Reykjavík,
sem lést aðfaranótt fimmtudagsins 21.júlí, verður
jarðsett föstudaginn 29. júlí kl. 11 frá Grafarvogskirkju.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Líknardeild
Landspítalans í Kópavogi.
Birkir Þór Gunnarsson
Gunnar Birkisson Jóhanna Bergmann
Þórhallsdóttir
Stefán Hjálmar Birkisson Margrét Björk Kjartansdóttir
Dagný Björk Stefánsdóttir Steindór Hjartarson
Aron Birkir Stefánsson
Hanna Björt Stefánsdóttir
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför okkar ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Sigurðar Úlfarssonar
Teigagerði 16.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar A6
á Landspítalanum Fossvogi.
Margrét K. Björnsdóttir
Björn Úlfar Sigurðsson Ósk Halldórsdóttir
Sigríður Margrét Sigurðardóttir Ágúst Benediktsson
barnabörn og langafabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma
Guðlaug Eggertsdóttir
Andrésbrunni 12, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 29. júlí kl. 13.00.
Kristján Ragnarsson
Gunnar S. Jónsson
Þuríður M. Jónsdóttir Kristján Gunnarsson
Heiða Björk Jónsdóttir
Þröstur I. Jónsson Kolbrún Jónsdóttir
ömmubörn og langömmubörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Guðrún Ágústa
Sigurjónsdóttir
Árskógum 2,
áður Norðurgarði, Vestmannaeyjum,
andaðist föstudaginn 22. júlí á Hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ. Jarðarförin auglýst síðar.
Ólafur R. Guðnason Kristín A. Schmidt
Helgi Þ. Guðnason Guðlaug K. Einarsdóttir
Ása F.M. Guðnadóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Herdís Guðrún
Ólafsdóttir
Brúnavegi 9, Reykjavík,
sem andaðist fimmtudaginn 21. júlí, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. júlí kl. 15.
Viðar Gunnarsson Guðbjörg Bergs
Ómar Þór Gunnarsson Guðný Ólafsdóttir
Ástríður Ólöf Gunnarsdóttir Kjartan Hrafn Helgason
Bjarni Matthías Gunnarsson Hulda Björk Erlingsdóttir
Elskuleg móðir okkar, amma, dóttir,
systir og mágkona,
Ástríður Karlsdóttir
Klapparstíg 14, 101 Reykjavík,
andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi,
laugardaginn 23. júlí.
F.h. aðstandenda,
Dóra Sif Tynes
Hrefna Tynes.
Faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur
og afi,
Guðmundur Helgason
Sæbólsbraut 23, Kópavogi,
sem lést fimmtudaginn 21. júlí, verður jarðsunginn frá
Kópavogskirkju föstudaginn 29. júlí kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Ljósið.
Helgi Ragnar Guðmundsson Jóna Heiða Hjálmarsdóttir
Sölvi Rúnar Guðmundsson
Þorsteinn Rafn Guðmundsson
Þorsteinn Helgason Ástfríður Árnadóttir
og barnabörn.