Fréttablaðið - 08.08.2011, Síða 10

Fréttablaðið - 08.08.2011, Síða 10
8. ágúst 2011 MÁNUDAGUR10 FRÉTTASKÝRING: Hver er staða ríkisfjármálanna? Nokkuð hefur verið rætt undanfarið um skulda- stöðu íslenska ríkisins og árangur stjórnvalda í glímunni við fjárlagahalla ríkissjóðs. Hefur því verið haldið fram að hér hafi náðst betri árangur en víð- ast hvar annars staðar en einnig að íslenskum stjórn- völdum hafi gengið verr en öðrum að ná jafnvægi í ríkisfjármálunum. Eins og kunnugt er var staða ríkis- sjóðs mjög góð í alþjóðlegum sam- anburði um miðjan síðasta áratug. Var sú staðreynd talin meðal helstu styrkleika íslenska hagkerfisins þar sem hið opinbera hefði mikið olnbogarými til að koma til dæmis íslensku bönkunum til hjálpar ef eitthvað færi úrskeiðis. Skuld- ir ríkissjóðs tóku að aukast á ný tveimur árum fyrir fall bankanna og má tengja það aðdraganda fjár- málakreppunnar, segir í riti Seðla- bankans frá því í febrúar: Hvað skuldar þjóðin? Hrunið haustið 2008 hefur vald- ið ríkissjóði miklum kostnaði og hefur skuldastaðan versnað sem því nemur. Þá drógust tekjur ríkis- sjóðs verulega saman vegna minni umsvifa í hagkerfinu sem olli veru- legum halla á fjárlögum. Ástæðulaust er að fara nánar út í ástæður skuldsetningar ríkissjóðs hér. Hugmyndin er frekar að skoða hvernig gengur að koma á sjálf- bærni í ríkisfjármálunum og jafn- framt bera stöðu Íslands saman við stöðu nokkurra Evrópuríkja sem einnig fóru illa út úr alþjóð- legu fjármálakreppunni. Fjárlagahallinn enn ansi hár Ríkisreikningur ársins 2010 var gefinn út í síðustu viku. Þar kom í ljós að halli ríkissjóðs á árinu 2010 jafngilti 8 prósentum af lands- framleiðslu. Til samanburðar var hallinn 9,3 prósent árið 2009 og 14,6 prósent árið 2008. Ríkissjóð- ur skilaði hins vegar afgangi árið 2007 sem nam 6,8 prósentum af landsframleiðslu. Ríkisreikningurinn er gerður upp á rekstrargrunni en erfitt er að nálgast gögn fyrir önnur ríki á rekstrargrunni úr helstu gagna- grunnum. Því er varhugavert að bera þessar tölur hrátt saman við tölur frá öðrum ríkjum. Séu tölur Eurostat yfir fjárlaga- halla í ríkjum Evrópu skoðaðar kemur í ljós að meðalfjárlagahalli í ESB á árinu 2010 var 5,4 prósent af landsframleiðslu. Ísland er í þeim tölum skráð með fjárlagahalla upp á 6,2 prósent af landsframleiðslu árið 2010 en sú tala er að öllum líkindum of lág þótt Eurostat gefi reyndar upp tölur á öðrum bók- haldsgrunni en notast er við í rík- isreikningnum. Fjárlagahalli Íslands virðist því vera nokkuð yfir meðaltali í ESB. Samkvæmt tölum Eurostat var fjárlagahalli Íslands árið 2008 hins vegar 13 prósent af landsfram- leiðslu samanborið við 2,5 prósent að meðaltali í ESB þannig að nokk- uð virðist hafa áunnist. Markmið um hallalaus fjárlög árið 2013, eins og stefnt var að, er þó ólíklegt til að nást. Góðar horfur með frumjöfnuð Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gaf í apríl síðastliðnum út skýrslu sem nefnist Shifting Gears: Tackling Challenges on the Road to Fiscal Adjustment. Í skýrslunni er fjallað um stöðu ríkisfjármála víða um heim og gefur hún nokkra innsýn í stöðu íslenska ríkisins samanborið við önnur ríki. Í skýrslu AGS má finna tölur um frumjöfnuð opinbera geirans, það er ríkis og sveitarfélaga. Frum- jöfnuður er skilgreindur sem jöfn- uður tekna og gjalda ríkisins að fjármagnstekjum og -gjöldum und- anskildum. Frumjöfnuður er því mælikvarði á hinn eiginlega rekst- ur ríkisins. Gefur jákvæður frum- jöfnuður því til kynna að rekstur ríkisins sé á sjálfbærum grunni. Það er, að ríkið sé ekki að eyða um efni fram í rekstur. Samkvæmt ríkisreikningi ársins 2010 var frumjöfnuður neikvæður um 5,5 prósent af landsframleiðslu. Árið 2009 var hann neikvæður um 6,6 prósent. Samkvæmt spám AGS ætti frumjöfnuður opinbera geir- ans að verða jákvæður á árinu 2011 en óvíst er hvort það mark- mið næst. AGS spáði því að frum- jöfnuður opinbera geirans yrði 2,5 prósent á árinu 2010 en það virðist ekki hafa náðst. AGS virðist samt sem áður vera bjartsýnn á horfurn- ar hér og spáir ríflegum afgangi á frumjöfnuði eftir 2011. Takist það er það árangur sem fá lönd munu geta státað af. Skuldastaðan viðráðanleg Fjárlagahalla og stöðu frumjöfn- uðar ber alltaf að skoða í ljósi skuldastöðu ríkisins. Ríki með miklar skuldir má vitaskuld síður við miklum fjárlagahalla en ríki með litlar skuldir. Að sama skapi ALLIR SAMAN NÚ TIL GÓÐS HLAUPUM ... og svo tek ég við og tek næstu tíu... Ég tek fyrstu tíu í boðhlaupinu ... ... gaman að ná heilu maraþoni með félögunum ... Prósent af landsframleiðslu Heimild: AGS Frumjöfnuður -30 -25 -20 -15 -10 -5 0% 5 10 Ísland Ítalía Þýskaland Belgía Grikkland Portúgal Frakkland Spánn Bretland Írland 2007 2008 2009 2010 2011 (Spá AGS 2012 (Spá AGSFjárlagahalli samkvæmt ríkisreikningi 9 6 3 0% -3 -6 -9 -12 -15 2007 2008 2009 2010 Prósent af landsframleiðslu Ríkisfjármálin hægt og rólega að komast í ja

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.