Fréttablaðið - 06.09.2011, Qupperneq 20
6. SEPTEMBER 2011 ÞRIÐJUDAGUR
Öflugir TUDOR High Tech
rafgeymar fyrir jeppa.
Það skiptir máli hvaða blað fólk gefur sér tíma til að lesa. Ný Prentmiðlakönnun
Capacent Gallup staðfestir að lesendur á aldrinum 12-59 ára gefa sér lengri
tíma til að lesa Fréttablaðið en Morgunblaðið. Við hlökkum til að færa ykkur
fleiri góðar stundir í framtíðinni.
Lesendur gefa sér
góðan tíma í Fréttablaðið
Allt sem þú þarft...
20 mín
15 mín
10 mín
5 mín
0 mín
12-14
ára
15-19
ára
20-24
ára
25-29
ára
30-34
ára
35-39
ára
40-44
ára
45-49
ára
50-54
ára
55-59
ára
MBL
FBL
Meðal lestími
í mínútum
á hvert eintak*
*Prentmiðlakönnun Capacent Gallup. Mældur er tími sem fer í lestur hvers eintaks
Morgunblaðsins og Fréttablaðsins hjá lesendum á aldrinum 12-59 ára á öllu landinu.
Árleg stikuferð jeppaklúbbsins
4x4 var farin um nýliðna helgi.
Þar hjálpuðust 35 manns að
við að merkja ákveðnar leiðir
á hálendi Íslands með stikum,
samtals yfir hundrað kílómetra
að lengd.
V ið stikuðum þekktar leiðir á hálendinu sem eru sums staðar illa sýnilegar í tor-
færu landslagi. Þátttakendurn-
ir voru 35 á öllum aldri, dugleg-
ir og skemmtilegir.“ Þannig byrj-
ar Sæbjörg Richardsdóttir, kölluð
Didda, að lýsa vinnuferð jeppa-
klúbbsins 4x4 sem farin var um
síðustu helgi. Hún segir varasamt
að hafa hálendisleiðir illa merkt-
ar því þá geti myndast villuslóðar
sem bæði geti afvegaleitt fólk og
valdið skaða á landinu. „Stikurn-
ar hjálpa fólki að rata rétta leið.
Það er jákvætt fyrir alla,“ segir
hún og bætir því við að klúbbur-
inn greiði allan kostnað.
Didda er ein þeirra kvenna
sem hafa gaman af jeppaferð-
um. Hún er formaður umhverfis-
deildar 4x4 og sá um undirbúning
stikuferðarinnar. „Fyrsta skref-
ið er alltaf að fá leyfi hjá sveit-
arfélögum, að þessu sinni hjá
Hrunamannahreppi og Skeiða-
og Gnúpverjahreppi. Þar mætt-
um við miklum skilningi. Vega-
gerðin er líka elskuleg og bjargar
okkur stundum með endurskins-
merki til að setja á stikurnar. Við
mætum ljúfmennsku hvar sem
við komum,“ segir hún.
Leiðin sem stikuð var ligg-
ur upp með Þjórsá vestanverðri,
um Gljúfurleit, framhjá Norð-
lingaöldu og inn Fjórðungssand
að Hofsjökli. „Þetta er leið sem
er talsvert ekin af 4x4 því inn
við Hofsjökul á félagið skála sem
heitir Setrið. Þangað eru um 80
kílómetrar frá Sultartanga,“
segir Didda. „Leiðin var stik-
uð fyrir nokkrum árum en allar
stikur gefa eftir á endanum og við
kjósum að hafa þær úr tré til að
þær verði að jarðvegi þegar þær
eyðileggjast. Við endurnýtum
þær sem hægt er og síðan bætum
við í skörðin.“
Næsti leggur var frá Setrinu í
Kerlingarfjöll að sögn Diddu, en
þar höfðu erlendir sjálfboðaliðar
nýlega reist við stikur.
Eftir ljúffenga súpu hjá Kerl-
ingarfjallabændum hélt jeppa-
flokkurinn niður á Hrunamanna-
afrétt þar sem merktir voru 12 til
15 kílómetrar í viðbót í Leppis-
tungum. „Það var gott að hafa
svona marga í þessari ferð, við
vorum með fólk sem lagfærði
veginn, fólk á járnkörlum, stiku-
hömrum og heftibyssum og mikil
jákvæðni og vinnusemi ríkti í
hópnum,“ segir Didda sem sjálf
var í forystu flokksins og flutti
stikurnar.
gun@frettabladid.is
Hjálpa fólki að
rata rétta leið
Áin Kisa var ljúf og malaði þegar bílarnir fóru yfir. En hún á líka til að hvæsa og setja
upp kryppu, þannig að eins gott er að bera virðingu fyrir henni.
Um 700 stikur voru teknar með, þar af voru 640 notaðar. Tvo bíla þurfti til að flytja staflann og þarna er verið að að umstafla af
„Jakanum“ yfir á kerruna.
Didda nýlega komin heim úr stikuferðinni. „Ég er lítið fyrir að keyra með kerru aftan í
þannig að ég var í farþegasæti í þessari ferð,“ segir hún. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA