Fréttablaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 28
6. september 2011 ÞRIÐJUDAGUR20 BAKÞANKAR sr. Sigurðar Árna Þórðarsonar Bættu um betur – Húsasmí›i / Bifélavirkjun / Bifrei›asmí›i / Bílamálun / Múrarai›n er tilraunaverkefni sem mi›ar a› flví a› meta færni sem vi›komandi b‡r yfir inn í skólakerfi›, óhá› flví hvernig hennar hefur veri› afla›. Markmi›i› er a› flátttakendur í verkefninu ljúki sveinsprófi. Áhugasömum er bent á a› hafa samband vi› I‹UNA – fræ›slu- setur í síma 590-6400 og fá frekari uppl‡singar um verkefni›. fiar er einnig hægt a› skrá sig á kynningarfund sem ver›ur haldinn í dag 6. september kl. 17.00 a› Skúlatúni 2, 6. hæ›, 105 Reykjavík. Nánari uppl‡singar er a› finna á www.idan.is. Einnig er hægt a› senda tölvupóst á netfangi› radgjof@idan.is. Hefur flú starfa› vi› húsasmí›i, bifvélavirkjun, bifrei›asmí›i, bílamálun e›a múrarai›n og vilt ljúka námi í greinunum? 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. búsmali, 6. ógrynni, 8. með- vitundarleysi, 9. hald, 11. guð, 12. traðk, 14. drabb, 16. kusk, 17. kvk. nafn, 18. munda, 20. skammstöfun, 21. málmur. LÓÐRÉTT 1. sog, 3. rún, 4. undirbúningspróf, 5. borða, 7. pest, 10. frostskemmd, 13. mas, 15. maður, 16. umrót, 19. í röð. LAUSN LÁRÉTT: 2. búfé, 6. of, 8. rot, 9. tak, 11. ra, 12. tramp, 14. slark, 16. ló, 17. lóa, 18. ota, 20. fr, 21. stál. LÓÐRÉTT: 1. tott, 3. úr, 4. forpróf, 5. éta, 7. farsótt, 10. kal, 13. mal, 15. karl, 16. los, 19. aá. Þessir hrægammar sem fljúga í hring yfir mér munu verða mér til bjargar Fleiri sögur af of mikilli bjartsýni... Úff! Erfiður seðill þessa vikuna. Nú? Ég hélt að einhverfi kollurinn á þér hefði svar við öllu! Hversu lengi hefurðu sagt þetta? Það eru meiri líkur á því að gamall og sorglegur róni sem hangir niður við höfn hitti á alla rétta en þú! ... og svo krotarðu bara þarna við 1, X eða 2. Slepptu þessum yfir- lýsingum vinur minn! Einn daginn mun ég vera með alla leikina rétta og verða brjálæðislega ríkur! Það er ekkert að gerast í kvöld svo við ætlum bara að horfa á mynd. Ef það er það sem þið viljið kalla það. Barnablús málsháttur Grasið er alltaf grænna á hnjánum á hvítu buxunum sem sonur þinn var að fá Úps Paul Ricoeur var einn áhugaverðasti heimspekingur Frakka á tuttugustu öld. Bækur hans rötuðu víða og hugmyndir hans höfðu áhrif í mörgum fræðagreinum. Áður en hann lét af störfum var hann til dæmis um tíma prófessor við guðfræði- deild Chicago-háskóla. Fræðasvið Rico- eurs var vítt og hér verður aðeins vikið að hvernig hann ræddi um tvær víddir í gagn- rýni hugmynda. RICOEUR talaði um meistara tortryggni og hvernig nýta má niðurbrot þeirra í heimi hugmyndanna til endurheimtar og endur- byggingar. Meistarar tortryggninnar eru þau, sem þora að efast um viðtekin sann- indi, andmæla því, sem ekki stenst skoðun og leggja til aðrar túlkunar- leiðir en hinar hefðbundnu. Dæmi Ricoeur um tortryggnisspekinga eru Marx, sem lagði grunn að samfélagsrýni, og Freud, sem uppgötvaði dýptir sálarinnar og atriði sem stýrðu hegðun, veru og vitundarlífi manna. Þriðji meistari tortryggninnar var síðan Nietzsche, sem hafnaði ýmsum hugmyndakerfum sem honum þóttu ekki standast, til dæmis í trúarhugsun. Öflugir tor- tryggjendur skafa burt hið ónýta og rök þeirra varða sannleiksleitendur – af hvaða sauðahúsi sem þeir eru. EN TORTRYGGNI er ekki nóg, hlutverk andans er ekki bara að brjóta niður, stinga í kýli og hleypa út galli blekkinga. Hugur þjónar ekki aðeins hreingerningu sálar- innar heldur velferð fólks. Hugsun er ekki bara fyrir gagnrýni heldur líka lífsrýni. Hlutverk skynsemi er bæði að rífa niður, en líka byggja upp, að veita næringu og leyfa vaxtarsprotum að dafna. Þess vegna er hugsun endurheimtar mikilvæg, spekin skoðar hvað af hugmyndum má endurnýta. Jesús Kristur er að mínu viti besta dæmið um speking, sem bæði tortryggði og endur- tryggði, reif niður það sem hindraði fólk til frelsis en endurbyggði líka ríki elskunnar. VIÐ MEGUM vera tortryggin til dæmis þegar við lesum goðsögur og góðar bók- menntir, en ættum ekki að henda þeim bara af því að þær fjalla um verur sem eru ekki til. Stóru sögur mannkynsins fjalla alltaf um líf í heiminum, fólk, átök og mik- ilvæg atriði. Goðmögn, handanverur og einstaklingar eru ekki aðalatriði þessara sagna, heldur viskan um líf og lífsmögu- leika í heimi. Hið sama gildir um Biblíuna, trúarbragðaefni og heimspekiefni aldanna. Hið mikilvæga er að endurheimta dýptar- viskuna. Tortryggjum hefðir og kreddur, en hugsum speki og einnig trúarefni til lífs. Hver maður ætti að temja sér tor- tryggjandi huga en elskandi afstöðu, kald- an huga og hlýtt hjarta. Kaldur hugur og hlýtt hjarta Ný fjölmiðlakönnun Capacent Gallup staðfestir vinsældir Fréttablaðsins. Rúmlega 72% íbúa höfuðborgarsvæðisins á aldrinum 18-49 lesa að meðaltali hvert tölublað Fréttablaðsins - nær þrefalt fleiri en lesa næsta dagblað þar á eftir. Fólkið í landinu les Fréttablaðið Allt sem þú þarft... Prentmiðlakönnun Capacent Gallup. Apríl til júní 2011, meðallestur á tölublað.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.