Fréttablaðið - 14.09.2011, Side 2
14. september 2011 MIÐVIKUDAGUR2
SLYS Sjö ára gamall drengur missti
framtönn og hluta úr annarri tönn
auk þess sem hann slasaðist í
andliti þegar róla sem hann var
í slitnaði. Atvikið átti sér stað í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í
byrjun mánaðarins.
„Hann lendir á andlitinu á tré-
girðingu, brýtur framtönn og
rótin á henni kýlist upp og skekk-
ist. Hann fékk stórt sár á tann-
holdið og það brotnaði upp úr ann-
arri tönn. Svo er hann með skurð í
andlitinu,“ segir Ágúst Birgisson,
faðir drengsins. Drengurinn var í
garðinum ásamt átján ára bróður
sínum. „Þetta er svo mikill óþarfi.
Svona finnst mér að eigi ekki að
geta komið fyrir,“ segir Ágúst, en
hann lagði til að garðinum yrði
lokað á meðan komist væri að því
hvað nákvæmlega gerðist.
Tómas Óskar Guðjónsson, for-
stöðumaður garðsins, segir að
nýlega hafi verið farið yfir ról-
una og yfirmaður verkstæðis þar
hafi ekki séð neitt athugavert við
hana. „Það var festing sem gaf
sig.“ Hann segir ljóst að slysið sé á
ábyrgð garðsins og afskaplega leitt
sé að það hafi orðið. Mestu skipti
að drengurinn nái sér.
Faðir hans segir hins vegar að
hann hafi hlotið varanlegan skaða
eftir slysið. „Við vitum ekki enn
hvort tönnin lifir. Hann er með
varanleg ör og meiðsli.“
Lögregla var kölluð á staðinn og
tekin skýrsla um atvikið. Að sögn
Tómasar var síðan Vinnueftir-
litinu og Heilbrigðiseftirlitinu gert
viðvart og málið er nú í rannsókn.
Á meðan á rannsókninni stendur
hefur rólan verið tekin úr umferð.
Samkvæmt reglugerð um öryggi
leikvallatækja og leiksvæða og eft-
irlit með þeim á að framkvæma
aðalskoðun á leiksvæðum árlega.
Það er ítarleg ástandsskoðun sem
gerð er af fagaðilum. Rekstrar-
skoðun felst í viðhaldi og viðgerð-
um og hana eiga rekstraraðilarnir
sjálfir að framkvæma að minnsta
kosti á þriggja mánaða fresti.
Reglubundna yfirlitsskoðun á svo
að framkvæma daglega til viku-
lega, eftir því hversu mikið svæðið
er notað.
Að sögn Herdísar Storgaard,
verkefnastjóra Árvekni, á að fram-
kvæma slíka skoðun áður en fólki
er hleypt inn á svæðið. „Svona
lagað gerist ekki nema eftirlitinu
sé ábótavant. Rólur slitna ekki
undan börnum.“
thorunn@frettabladid.is
Drengur missti tönn
þegar róla slitnaði
Festing gaf sig í rólu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum með þeim afleiðingum
að sjö ára drengur missti tönn og slasaðist í andliti. Skaðinn er varanlegur, segir
faðir drengsins. Rólan hefur verið tekin úr umferð meðan málið er rannsakað.
ÚR GARÐINUM Forstöðumaður garðsins segir að nýlega hafi verið farið yfir róluna. Yfirmaður verkstæðisins í garðinum hafi ekkert
séð að henni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
AFGANISTAN, AP Hópur talibana skaut bæði flugskeyt-
um og riffilskotum að sendiráði Bandaríkjanna og
höfuðstöðvum alþjóðaliðs NATO í Kabúl, höfuðborg
Afganistans, í gær. Einnig var gerð sjálfsvígsárás á
lögreglustöð skammt frá.
Árásirnar kostuðu að minnsta kosti einn afgansk-
an lögreglumann og einn almennan borgara lífið,
auk þess sem tveir árásarmannanna létust. Að
minnsta kosti níu manns særðust, þar á meðal ung
stúlka sem var með hópi fólks fyrir utan sendiráð
Bandaríkjanna að bíða eftir afgreiðslu vegabréfs-
áritunar.
Árásirnar virðast eiga að sýna fram á getu
talibanahreyfingarinnar til að ráðast á helstu valda-
stofnanir Vesturlanda í Afganistan, þrátt fyrir
nærri tíu ára hernað helstu hervelda Vesturlanda
gegn hreyfingunni.
Bandaríkjamenn eru vel á veg komnir með að
undirbúa brotthvarf herliðs síns frá Afganistan. Í
árslok 2014 eiga afganskir hermenn og lögreglu-
menn að taka við af erlenda herliðinu.
Þetta er þriðja stóra árás talibana í Kabúl síðan
í júní. Árásarmennirnir komust fram hjá strangri
öryggisgæslu í þessum hluta borgarinnar og upp í
hálfbyggt háhýsi, þaðan sem þeir höfðu bæði sendi-
ráð Bandaríkjanna og höfuðstöðvar fjölþjóðaliðsins
í skotfæri. - gb
Árás á höfuðstöðvar herliðs NATO og sendiráð Bandaríkjamanna í Kabúl:
Talibanar sýna hvað þeir geta
LÖGREGLAN Í KABÚL Afganskir lögreglumenn á vettvangi
árásanna í Kabúl. NORDICPHOTOS/AFP
Kostnaður 3,5 milljarðar
Kostnaður ríkisins vegna Landeyja-
hafnar er kominn upp í 3,5 milljarða
króna. Það er hærri upphæð en áætl-
anir gerðu ráð fyrir að þyrfti að greiða
til ársins 2014. Þetta kom fram í svari
innanríkisráðherra við fyrirspurn
Eyglóar Harðardóttur.
SAMGÖNGUR
IÐNAÐUR Stofnun ríkisolíufélags
sem tæki þátt í olíuleit á Dreka-
svæðinu er til skoðunar í iðnaðar-
ráðuneytinu. Fyrirtækjaráðgjöf
PricewaterhouseCoopers hefur
hvatt íslensk stjórnvöld til þessa
en fyrirtækið hefur rannsakað
útboð vegna olíuleitar.
Halldór Þorkelsson, sviðsstjóri
fyrirtækjaráðgjafar, segir stofnun
ríkisolíufélags vera farsæla leið
til að þekking í tengslum við olíu-
iðnað verði eftir í landinu. Annað
olíuleitarútboð stjórnvalda vegna
olíuleitar á Drekasvæðinu hefst í
byrjun næsta mánaðar. - kmu
Olíuleitarútboð í október:
Skoða stofnun
ríkisolíufélags
OLÍULEIT Búist er við áhuga á öðru
olíuleitarútboði stjórnvalda vegna
Drekasvæðisins en það hefst í október.
NORDICPHOTOS/GETTY
11
-0
56
8
/
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
...hvert er
þitt eftirlæt
...endilega f
Hrísmjólkin frá MS fæ
ljúffengum bragðtegu
rifsberja- og hindberj
og gömlu góðu kanils
SPURNING DAGSINS
Þorsteinn, var hún alveg ær?
„Ja, hún var að minnsta kosti ekki
alveg ærleg þar sem hún braut
reglur.“
Þorsteinn Ólafsson dýralæknir segir enga
aukningu í því að sauðfé hlaupi milli
landsvæða þó að ein kind hafi villst frá
Fljótshlíð allt norður í land á dögunum.
FINNLAND Læknar í Turku í Finn-
landi hafa fengið 5.500 miða á
menningarviðburði sem þeir eiga
að afhenda sjúklingum. Turku
er menningarhöfuðborg Evrópu
2011 og í tilefni þess var ákveð-
ið að leggja áherslu á tengsl þátt-
töku í menningarlífi og góðrar
líkamlegrar og andlegrar heilsu.
Finnskur læknir segir það
einkum þunglyndissjúklinga og
sjúklinga með króníska verki
sem þurfi á menningu að halda. Í
leikhúsi eða á tónleikum gleymdu
þeir um stund vanlíðan sinni. - ibs
Læknar í menningarátaki:
Sjúklingar fá
miða í leikhús
DÓMSMÁL Fjögur ungmenni hafa
verið ákærð fyrir að brenna
Krýsuvíkurkirkju til grunna
aðfaranótt 2. janúar í fyrra. Kirkj-
an hafði verið friðuð í tuttugu ár.
Samkvæmt ákæru Ríkissak-
sóknara helltu ungmennin, tveir
menn fæddir 1990 og tvær stúlkur
fæddar 1993, bensíni yfir innviði
kirkjunnar og báru eld að. Kirkjan
gereyðilagðist í brunanum.
Þau eru einnig ákærð fyrir
þjófnað, en í safnaðarbauknum
sem þeim er gefið að sök að hafa
stolið voru 4.000 krónur.
Þrjú ungmennanna mættu við
þingfestingu málsins í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Þau tóku
sér öll frest til að taka afstöðu til
sakarefnisins. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins hafa þau
ekki játað brotin skýlaust á fyrri
stigum málsins.
Krýsuvíkurkirkja var smíðuð
1857 og var ein minnsta kirkja
landsins. Hún tilheyrði húsasafni
Þjóðminjasafns Íslands, og gerir
safnið skaðabótakröfu á hendur
sakborningunum upp á um 8,7
milljónir króna. - sh
Þjóðminjasafnið krefur fjögur ungmenni um níu milljónir fyrir Krýsuvíkurkirkju:
Ákærð fyrir að brenna friðaða kirkju
RÚMLEGA 150 ÁRA GÖMUL Krýsuvíkur-
kirkja var ein minnsta kirkjan á landinu.
Nú er hún horfin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DANMÖRK Á milli 70 og 80 prósent
danskra ungmenna telja sig leggja
jafn mikið eða meira á sig við nám
og störf en jafnaldrar þeirra í
öðrum löndum. Þetta kemur fram
í könnun sem gerð var fyrir sam-
tök atvinnulífsins þar í landi og er
fjallað um á vef DRK.
Þau koma hins vegar verst út
með tilliti til tíma sem varið er
við nám eða vinnu í öllum þeim 22
löndum sem könnunin tekur til.
Talmaður atvinnurekenda telur
niðurstöðurnar bera vott um dap-
urt vinnusiðferði, en uppeldis-
fræðingur segir að ungmennin
dönsku gætu mögulega komið
jafn miklu í verk og þau sem
verja til þess meiri tíma. - þj
Ungmenni í Danmörku:
Telja sig dugleg
en eru það varla
LÖGREGLUMÁL Ölvaður maður á
fertugsaldri stakk mann með
hnífi á Lækjartorgi í miðbæ
Reykjavíkur um kvöldmatarleytið
í gær. Þolandinn, sem er fæddur
1981, er ekki alvarlega slasaður
en var fluttur á sjúkrahús til
aðhlynningar.
Gerandinn reyndi að flýja af
vettvangi en lögregla hafði uppi
á honum á vafri um miðbæinn.
Hann var handsamaður í kjölfarið
og verður yfirheyrður á morgun
og ákærður í kjölfarið. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglu
þekkjast mennirnir tveir og eru
þeir báðir í óreglu. - sv
Alvarleg líkamsárás í miðbæ:
Stakk mann á
Lækjartorgi
ÍRAK Íraska lögreglan hefur
fundið gröf með líkamsleifum
40 leigubílstjóra í bænum Dujail
sem er í um 60 km fjarlægð frá
Bagdad. Leigubílstjórarnir voru
fórnarlömb bílaþjófagengis sem á
undanförnum tveimur árum hafa
rænt 40 leigubílstjórum í Bagdad
og síðan drepið þá.
Þrír menn hafa verið hand-
teknir vegna málsins. Lögreglan
telur að foringi bílaþjófanna hafi
komið í bílageymslu leigubíla og
beðið bílstjóra að aka sér til Duja-
il. Þar hafi félagar hans beðið,
drepið bílstjórana, kastað líkinu í
fjöldagröf og selt leigubílinn. -ibs
Fjöldagröf fundin í Írak:
Myrtu fjörutíu
leigubílstjóra