Fréttablaðið - 14.09.2011, Page 6
14. september 2011 MIÐVIKUDAGUR6
Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík
Sími 590 2100 · askja.is
Nánar á www.askja.is
Opið virka daga frá 9 -18
Laugardaga frá 12-16
Verð kr. 2.590.000
Mitsubishi L200 Instyle 4x4
árg. 2006, ekinn 111 þús. km
2477cc, dísel, beinsk.
Dráttarkrókur
Pallhús
Verð kr. 1.590.000
Peugeot 307
árg. 2006, ekinn 57 þús. km
1400cc, bensín, beinsk.
Sparneytinn
Framdrif
Verð kr. 7.590.000
Jeep Cherokee Crd LTD 4x4
árg. 2008, ekinn 17 þús. km
3000cc, dísel, sjálfsk.
Álfelgur
Leður
Kom á götuna 2010
Verð kr. 3.450.000
Nissan Qashqai SE 4x4
árg. 2009, ekinn 41 þús. km
2000cc, bensín, sjálfsk.
Álfelgur
Leður
Verð kr. 3.390.000
Nissan Navara 4x4
árg. 2006, ekinn 93 þús. km
2500cc, dísel, sjálfsk.
Dráttarkrókur
Stigbretti
Yfirbyggt skottlok
Tilbo
ðsve
rð
kr. 2.
990.0
00!
Gott úrval
notaðra bíla
Verð kr. 2.890.000
Volkswagen Touareg 4x4
árg. 2006, ekinn 168 þús. km
3189cc, bensín, sjálfsk.
Loftpúðafjöðrun
Leður
Tilbo
ðsve
rð
kr. 2.
490.0
00!
Verð kr. 6.890.000
Toyota Land Cruiser GX 4x4
árg. 2008, ekinn 81 þús. km
3000cc, dísel, sjálfsk.
Sóllúga
Kastaragrind, húddhlíf
Tilbo
ðsve
rð
kr. 6.
490.0
00!
VIÐSKIPTI „Ég er ánægð með þetta
uppgjör, það sýnir að grunn-
reksturinn er að batna til langs
tíma,“ segir Birna Einarsdóttir,
bankastjóri Íslandsbanka.
Hagnaður bankans nam rétt
rúmum átta milljörðum króna á
fyrstu sex mánuðum ársins, sem
er rúmlega 2,7 prósenta sam-
dráttur frá sama tíma í fyrra.
Afkoman skýrist að hluta af
því að vaxta- og þjónustutekjur
drógust saman um átta hundr-
uð milljónir króna á milli ára
auk þess sem kostnaður jókst.
Til samanburðar jókst hagnað-
ur Arion banka um rúm 28 pró-
sent. Hann nam 10,2 milljörð-
um króna á fyrri hluta ársins og
einkenndist að stórum hluta af
endurmati á lánasafni. Því var
ekki að skipta hjá Íslandsbanka
nema að litlu leyti.
Birna segir samningsbundnar
launahækkanir hafa keyrt kostn-
aðinn upp auk þess sem starfs-
fólki hafi verið að fjölga í bak-
vinnslu, við endurútreikning á
húsnæðislánum og í hugbúnað-
ardeild. Áætlun til næstu fimm
ára felur í sér að kostnaður verði
lækkaður, þó ekki með uppsögn-
um starfsfólks, að sögn Birnu.
Hún reiknar með að starfsfólk-
ið fái önnur verkefni þegar fram
líði stundir og efnahagslífið taki
við sér.
Viðmælendur Fréttablaðsins
segja fjárhagsstöðu Íslands-
banka mjög sterka en grunn-
reksturinn sé að dala á milli ára.
Það eigi sömuleiðis við um hina
bankana, sem gjaldi fyrir gjald-
eyrishöft og ríkisábyrgð. Þær
sérstöku aðstæður sem hér ríki
í efnahagsmálum valdi því að
dregið hafi úr arðsemi á eigin
fé Íslandsbanka frá sama tíma í
fyrra. Birna segir þetta að hluta
rétt en þrátt fyrir það sé arðsem-
in í takt við bæði það sem eigend-
ur bankans og Bankasýsla ríkis-
ins krefjist af honum. „Það er að
verða erfiðara að bæta arðsemi
þar sem eigið fé er orðið svo
mikið,“ segir hún.
Birna segir að þrátt fyrir
þröngar aðstæður sé ýmislegt í
farvatninu. „Við erum með tölu-
vert í pípunum. Það er verið
að stýra lausafé með það fyrir
augum að fá sem besta ávöxtun
á það.“ jonab@frettabladid.is
BANKASTJÓRINN RÆÐIR UM UPPGJÖRIÐ Íslandsbanki er með ýmislegt í pípunum
sem stuðla á að ávaxta sjóði bankans. Ein leiðanna er kaup á Byr. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ætla ekki að segja
upp starfsmönnum
Íslandsbanki hagnaðist um átta milljarða króna á fyrri helmingi ársins. Þetta
er samdráttur frá sama tíma í fyrra. Sérkennilegar aðstæður í hagkerfinu sníða
bankanum þröngan stakk. Launahækkanir hafa keyrt upp kostnað við rekstur.
Lykiltölur úr rekstri Íslandsbanka
Liðir jan.-júní 2010 jan.-júní 2011
Hagnaður* 8.290 8.062
Rekstrartekjur* 19.784 19.430
Vaxtamunur 5,7% 5,3%
Heildareignir* 699.800 682.575
Eigið fé* 100.400 128.780
Eiginfjárhlutfall 21,5% 28%
Arðsemi eigin fjár 17,1% 12,9%
* Í milljónum króna
Stöðugildi hjá Íslandsbanka og
dótturfélögum í söluferli voru
1.258 á fyrstu sex mánuðum
ársins. Launakostnaður nam
á sama tíma 4.969 milljónum
króna. Þetta merkir að meðallaun
starfsmanna Íslandsbanka og
dótturfélaga námu í kringum hálfri
milljón króna á mánuði að teknu
tilliti til launatengdra gjalda.
Eru með hálfa milljón
á mánuði
SAMFÉLAGSMÁL Tuttugu börn voru
ættleidd frumættleiðingu á Íslandi
á síðasta ári. Sextán börn voru ætt-
leidd frá öðrum löndum en fjögur
innanlands. Þá voru 23 börn ætt-
leidd stjúpættleiðingu á árinu.
Stjúpættleiðing er þegar
umsækjandi ættleiðir barn eða
kjörbarn maka, en frumættleið-
ing þegar slík tengsl eru ekki til
staðar.
Þrettán börn voru ættleidd frá
Kína á síðasta ári. Það er svipað-
ur fjöldi og undanfarin ár. Þá var
eitt barn ættleitt frá Taílandi, eitt
barn kom frá Indlandi og eitt frá
Kólumbíu. Árið 2009 voru færri
börn ættleidd frá Kína, eða átta
talsins. Þá komu tvö börn hing-
að frá Kólumbíu, eitt frá Tékk-
landi, fjögur frá Indlandi, eitt frá
Filippseyjum og eitt frá Rússlandi.
Samkvæmt upplýsingum úr
fréttablaði Íslenskrar ættleiðing-
ar höfðu fimm börn verið ættleidd
til landsins frá janúar og fram í
ágúst auk þess sem foreldrum hafa
borist upplýsingar um níu börn til
viðbótar sem þeir munu fá að ætt-
leiða. Því er útlit fyrir að fjöldi
ættleiðinga muni að minnsta kosti
ná meðaltali síðustu ára. - þeb
Flest börnin sem ættleidd voru til Íslands frá útlöndum komu frá Kína:
Tuttugu börn ættleidd í fyrra
UNGABARN Sextán börn voru ættleidd
að utan í fyrra, og fjórtán hið minnsta
koma til landsins á þessu ári.
NORDICPHOTOS/GETTY
KÍNA Kínversk yfirvöld greindu
frá því í gær að 32 félagar glæpa-
gengis hefðu verið handteknir í
héraðinu Zhejiang fyrir að hafa
búið til matarolíu úr skólpvatni.
Jafnframt lagði lögreglan hald
á 100 tonn af „skólpolíu“. Hinir
handteknu höfðu fengið hráefnið
í eigin matarolíu úr skurðum og
skólprörum við veitingastaði.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
svona tilfelli kemur upp í Kína.
Á undanförnum árum hefur mátt
sjá myndir á netinu af fólki sem
safnar olíu úr skólprörum. - ibs
Nýtt matvælahneyksli í Kína:
Matarolía búin
til úr skólpvatni
SKÓLAMÁL „Þetta var góður og
mikilvægur fundur,“ segir Sigrún
Gylfadóttir, deildarstjóri leik-
listardeildar Kvikmyndaskóla
Íslands, sem fer fyrir sáttanefnd
á vegum skólans er í gær hitti
Svandísi Svavarsdóttur mennta-
málaráðherra.
Ekkert fæst uppgefið um það
hvað gerðist efnislega á fundin-
um í gær. „Við gerðum samkomu-
lag okkar á milli, við Svandís og
ráðuneytið, að tjá okkur ekki um
málið að svo stöddu. Þetta er mjög
viðkvæmt. Við erum öll að vinna
saman að því að reyna að finna
lausn og ætlum að gefa okkur
vinnufrið þessa vikuna,“ segir
Sigrún og bætir við að nóg hafi
verið fjallað um málefni skólans
að undanförnu.
Hvorki náðist tal af mennta-
málaráðherra né aðstoðarmanni
ráðherrans eftir fundinn í gær. Að
sögn Sigrúnar verður næst fundur
á föstudag.
Í yfirlýsingu sem stjórn Kvik-
myndaskólans sendi frá sér fyrir
fundinn í gær sagði að þar sem
Ríkisendurskoðun hefði ekki gert
athugasemd við umsýslu fjármuna
í rekstri skólans gæti menntamála-
ráðuneytið gengið strax til samn-
inga við skólann. Ráðuneytið hefur
þó áður sagt að þetta breyti engu
um að skólinn uppfyllti ekki skil-
yrði um rekstrarhæfi og að rekja
mætti fjárhagsvanda hans til þess
að nemendum hefði verið fjölgað
langt umfram viðmið styrktar-
samnings. - gar
Fulltrúar Kvikmyndaskóla Íslands funduðu með menntamálaráðherra í gær:
Einhuga um að tjá sig ekki í bili
MÓTMÆLT Kvikmyndaskólinn glímir við
fjárhagsvanda og hefur ekki enn verið
settur í haust. Nemendur hafa mótmælt
því harðlega. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KJÖRKASSINN
Finnur þú fyrir óþægindum í
öndunarvegi þegar svifryk er
mikið í umhverfi þínu?
Já 47,0%
Nei 53,0%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Telurðu rétt að koma á inntöku-
prófum við þær deildir Háskóla
Íslands þar sem brottfall er mikið?
Segðu þína skoðun á visir.is