Fréttablaðið - 14.09.2011, Page 23
BÍLALIND.IS
Hvernig bíl dreymir þig um?
Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is
SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM
12 volt díóðuljós
12v 1,3w12v 1,3w
12v 2,5w 12v 1,66w 12v 1,66w
12v 1,0w
12v 1,2w 12v 1,0w
Tilvalið fyrir sumarbústaði með sólarorku
Eyða allt að 90% minni orku en halogen
12v 3,0w
Reiknivél þar sem hægt er að reikna rekstrar- og umhverfiskostnað
mismunandi bifreiða er að finna á vef FÍB www.fib.is. Þar er fróðlegt
að bera saman minni og stærri bifreiðar, bensínbíla, dísilbíla, tvinn-
bíla og sjálfskiptar og beinskiptar bifreiðar svo dæmi séu nefnd.
Bandalag íslenskra bílablaðamanna,
BÍBB, tilkynnti nýlega um val á bíl
ársins 2012. Í ár var það Volkswagen
Passat í metanútfærslu sem var
hlutskarpastur í vali á bíl ársins og
hlaut að launum Stálstýrið 2012.
Bílar sem gjaldgengir voru í
keppnina að þessu sinni voru bílar
sem höfðu komið á markað hér á
landi frá ágúst 2010. Dómnefnd tók
tillit til aksturseiginleika, afkasta-
getu, eldsneytisnotkunar, visthæfi,
öryggisbúnaðar, útlits og hönnunar
bílanna og endursöluvirðis.
Volkswagen Passat EcoFuel notar
metangas sem aðalorkugjafa en
einnig er hann með 31 lítra bensín-
tank. Hámarksdrægni á metangasi
er um 450 km og 430 km á bensín-
inu. Þannig er hægt að aka 880 km
að hámarki án þess að fylla á elds-
neytið.
Í flokki smærri fólksbíla sigraði
Audi A1. Í flokki vistvænna bíla sigr-
aði Volkswagen Passat EcoFuel.
Í flokki stærri fólksbíla sigraði Volvo
S60.
Volkswagen Passat
EcoFuel bíll ársins
Marinó Björnsson tók á móti Stálstýr-
inu fyrir hönd Heklu, Sigurður Bragi
Guðmundsson afhenti verðlaunin.
Marinó Thorlacius hefur síðustu
ár verið að skapa sér nafn sem
ljósmyndari á alþjóðavettvangi.
Nýjasta skrautfjöðrin í hattinn er
viðamikið verkefni sem Marinó
vann fyrir japanska bílaframleið-
andann Lexus þar sem Reykjavík
og íslensk náttúra eru í lykilhlut-
verki.
„Þeir höfðu samband við mig
með stuttum fyrirvara og að því
er virtist upp úr þurru til að kanna
hvort ég gæti tekið myndatökuna
að mér. Ég sló bara til,“ segir
Marinó. Hann vísar þar í markaðs-
risann Story WorldWide sem réði
hann í verkefnið, en fyrirtækið er
með starfsemi í þremur heimsálf-
um og fjölda þekktra vörumerkja
á sínum snærum, svo sem Karen
Millen, Starbucks, Clinique og
Lexus.
Í herferðinni sem Marinó var
fenginn til að mynda er nýjasta
gerð tvinnjeppa frá Lexus, Full
Hybrid RX 450h, kynnt til sög-
unnar í kunnuglegu umhverfi
höfuðborgarinnar og nágrennis.
Hann vill ekki geta til um
hvert umfang henn-
ar kemur til með að
verða. Þó liggi
ljóst fyrir að
hún verði meðal
annars notuð
í tímariti sem
Lexus og Story
WorldWide gefa
út í sameiningu og dreifa á Evr-
ópumarkað. „Þannig að viðbúið er
að auglýsingin eigi eftir að vekja
einhverja athygli.“
Segja má að Lexus-herferðin
marki nýtt skref fyrir Marinó sem
hefur hingað til aðallega fengist
við tísku- og landslagsljósmynd-
un. Nýverið vakti hann verulega
athygli fyrir ljósmyndir sínar af
herralínu hönnuðarins Sruli Recht
sem sýndar voru við góðar undir-
tektir í París fyrr á árinu. Hann
telur hugsanlegt að þær hafi orðið
til þess að Story WorldWide sló á
þráðinn.
Heldurðu að herferðin eigi
eftir að opna þér nýjar dyr? „Oft
eru það nú frekar litlu hlutirnir
en þeir stóru sem hrinda öllu af
stað,“ segir Marinó og viðurkenn-
ir að ýmis spennandi verkefni séu
í gangi en ótímabært að ræða þau
að sinni.
roald@frettabladid.is
Myndaði fyrir
Lexus-herferð
Marinó Thorlacius fékk óvænta símhringingu á dögunum sem end-
aði með ljósmyndatöku fyrir einn umsvifamesta bílaframleiðanda í
heimi. Myndirnar verða notaðar í stóra kynningarherferð í Evrópu.
„Oft eru það nú frekar litlu hlutirnir en þeir stóru sem hrinda af öllu af stað,“ svarar
Marinó pollrólegur, spurður hvort hann telji að Lexus-herferðin eigi eftir að opna
nýjar dyr. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hér má sjá Lexus Full Hybrid RX 450h.
Myndin er þó ekki úr
smiðju Marinós.
Heimir & Kolla vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00