Íslendingur - 01.06.1955, Blaðsíða 1
ÍSBRJÓTURINN „AKTA"
BandaríJcin sendu þenna volduga ísbrjót í vetur til Suður-
heimskautsins, en þar aðstoðar hann vísindamenn ýrnissa
þjóða við þýðingarmiklar rannsóknir. Þœr eru þó aðeins und-
irbúningur að miltlu víðtcekari rannsóltnum vísindamanna
39 þjóða, sem jara eiga jram á árunum 1957—58.
Akureyrarílugvöllur lengdur
um 300 metra
Uppfylling undir flugvélastæði gerð þessa daga
í vikunni sem leið kom Gunn-
ar Sigurðsson skrifstofustjóri
flugmálastjórnarinnar hingað til
bæjarins í erindum flugvallar-
málsins. Náði fréttamaður blaðs-
ins tali af honum og slóst í för
með honum, þingmanni bæjarins
og Kristni Jónssyni skrifstofu-
stjóra F. í. hér í bæ inn á flug-
völl. Var þá verið að dæla sandi
til uppfylhngar milli flugbrautar-
innar og afgreiðslubyggingarinn-
ar í því skyni að gera þar af-
greiðslusvæði fyrir flugvélar og
flugvélastæði. Verður þá hægt að
renna flugvélunum mjög nærri
húsinu og geyma þær þar, í stað
þess að þurfa að hafa þær á flug-
brau'inni sjálfri eins og nú er.
Vér spyrjum Gunnar fyrst um
fyrirhugað verkefni við flugvöll-
inn i sumar.
— Ákveðið er að lengja völl-
inn til norðurs um a. m. k. 300
metra, og verður þá feng'n 1300
metra flugbraut. Verða þá mögu-
leikar á því, að millilandaflugvél-
ar geti lent þar, ef eitthvað
hindraði lendingu á flugvöllum
syðra. Næs'a ár er gert ráð fyrir
að lengja brautina svo, að hún
verði 1500 metrar, og er hún þá
talin örugg til lendingar milli-
landaflugvélum. Skapast þá jafn-
framt sá möguleiki, að Akureyri
kæmizt í beint flugsamband við
útlönd.
Þá verður farið að fylla upp
öryggissvæði meðfram flugbraut-j
inni, 50 metra breitt hvoru meg-
in, en slík öryggissvæði eru áskil-1
in við alla flugvelli. Verður það
svæði jafnhátt sjálfri flugbraut-(
inni, en ekkert slitlag borið á það.
Ollu efni í undirbyggingu þess
verður dælt upp með sanddælunni
eins og í flugbrautina, en slitlag í
flugbrautaraukann sótt fram að
Þverá.
Síðar verður flugbrautin enn
lengd til suðurs, og verður þá
þjóðvegurinn austur yfir færður
innar, og er gert ráð fyrir, að
Eyjafjarðará verði þá færð í einn
farveg, svo að ekki þurfi að
byggja nema eina brú.
S'rax og fjárveiting verður fyr-
ir hendi til frekari framkvæmda
verður hafizt handa um byggingu
flugumferðastöðvar með flugturni
við norðvesturenda flugvallarins.
Er það að sjálfsögðu mikið óhag-
ræði að hafa lendingarstjórn
(Framhald á 7■ siðu.) !
hlond - luxemburg
Vikulegar flugferðir
hafnar'milli minnstu
þjóða Evrópu
Fyrir nokkrum dögum hóf
flugfélagið Loftleiðir vikulegar
áætlunarferðir til smáríkisins
Luxemburg. Flaug millilanda-
flugvélin Edda þangað laugardag-
inn 21. ma: í fyrsla sinn með við-
komu í Gautaborg og Hamborg.
Heim var flogið beina leið, og tók
ferðin 8 s'undir.
Við komu flugvélarinnar til
Luxemburg var hátíðleg móttöku-
athöfn, og flutti samgöngumála-
ráðherra ríkisins ræðu, þar sem
fagnað var þeim áfanga í sam-
skiptum íslands og Luxemburg,
er næðist með beinum flugsam-
göngum milli Iandanna. Ingólfur
Jónsson flugmálaráðherra, er var
meðal ges'a Lofdeiða í þessari
fyrstu för, flutti einnig ræðu og
lýsti ánægju sinni yfir því, að
slíkar fertir skyldu nú upp tekn-
ar og óskaði að þær mættu verða
til að efla kynni og samskipti
tveggja minnstu þjóða heimsins.
Kr. Nói Kristjdnsson
byggir togarabryggjuna
Hinn 25. maí s. I. samþykkti
hafnarnefnd í samráði við
Magnús Konráðsson verkfræðing
Vi'amálaskrifstofunnar að ráða
Kristján Nóa Kristjánsson skipa-
smið til að hafa umsjón með
byggingu togarabryggj unnar á
Oddeyrartanga. Ennfremur að
ráða Ólaf Ólafsson frá Patreks-
firði til að sjá um niðurrekstur
járnþilsins.
Þrjú skemmtijerðasli'p
í somar
Þrjú skemmtiferðaskip eru
væntanleg til Islands í sumar, tvö
í júlí og eitt í ágúst. Hinn 8. júlí
kemur fyrs'a skipið, Caronia, sem
komið heflr oft áður. Kemur það
með um 500 farþega frá New
York, dvelur einn í dag í Reykja-
vik og heldur síðan til Hammer-
fest í Noregi. Þá kemur pólska
skipið Batory á vegum fransks
ferðafélags um 20. júlí. Verða
farþegar þar um 700. Þriðja skip
ið er franskt og kemur um 12.
ágúst.
Ferðaskrifstofa ríkisins annast
mót’ökur ferðamannanna og mun
láta flytja þá til merkra staða i
nágrenni Reykjavíkur, sýna þeim
söfn í bænum o. s. frv.
Rajorknfrdmhvœmdirnar ií
undan dmtlun
Miklar íramkvæmdir fyrirhugaðar
z sumar
Viðtal við Magnús Jónsson alþingismann
Magnús Jónsson alþingismaður var staddur hér í bænum í síð-
ustu viku og leit þá inn í skrifstofu blaðsins. Notaði blaðið tæki-
færið til að spyrja hann fré'ta af fiamkvæmdum ríkisins í raforku-
málum, en Magnús á sæti í raforkuráði og því manna kunnugastur
gangi þeirra mála.
10 óra óætlunin.
— Þegar núverandi ríkisstjórn
var mynduð, segir Magnús, —
var aðalatriðið í málefnasamningi
hennar rafvæð.ng landsins a
næs'.u 10 árum. Sú áætlun var
miðuð við að kosta 250 millj. kr.
Strax var hafizt handa um und.r-
búning framkvæmdanna og þær
hafnar af fullum krafti árið 1954.
Þó var ekki á því ári unnt að
byrja framkvæmdir við virkjanir
á Austfjörðum og Vestfjörðum,
því þá lá ekki fyrir, hvernig þeim
skyldi hagað. Þess vegna var á-
herzla lögð á það að leggja hér-
aðsveitur frá orkuverum, sem fyr
ir voru, eins og ráð var fyrir gert
í 10 ára áæ'.luninni. En nú hefir
endanleg ákvörðun verið tekiu
um lausn raforkuþarfar Austfirð-
inga og Vestfirðinga.
Virkjanir Grímsór
og Mjólkár.
Fyrir Austfirði er ákveðlð að
virkja Grímsá í Skriðdal og
leggja auk þess háspennul.’nu
austur frá Laxárvirkjun. Á Vest-
fjörðum verður gerð sérvirkjun
fyrir Bolungavík í sumar, en sam-
virkjun fyrir Vestfirði verður í
Mjólkám í Arnarfirði, og verður
samtímis haflzt handa um virkj-
anirnar þar og austanlands. Gera
má ráð fyrir, að síðar þurfi
stærri virkjanir, og kemur þá til
greina að virkja Lagarfoss og
Dynjandi. Þótti slíkt ekki hag-
kvæmt á þessu stigi vegna þess,
hve raforka yrði dýr frá þeim
virkjunum miðað við núverandi
rafmagnsþörf.
Samtenging orkuvera.
Gerð hefir verið í stórum drátt
um áætlun um aðal-veitukerfi um
landið, og er þar fyrirhugað að
tengja saman öll orkuverin til þess
í senn að hagnýta betur orkuna
og skapa meira öryggi fyrir raf-
-u
Magnús Jónsson
magnsnotendur. Með því móti má
beina afgangsorku frá einu orku-
veri til annars, sem ekki fullnæg-
ir framleiðsluþörfinni og miðla
rafmagni landshornanna milli. cf
þörf gerist vegna bilana á einu
orkuveri eða öðru.
Heildaróæflun um
héraðsveifur.
— Hvaða úrrœði verða notuð
til að sjá dreijbýlinu fyrir raf-
magni?
— Raforkumálaskrifstofan hef-
ir að undanförnu unnið að heild-
aráætlun um héraðsveitur innan
ramma 10 ára áællunarinnar, til
þess að gera sér grein fyrir, hvaða
sveilabýli myndu fá rafmagn frá
samveitum. Er því verki áð mestu
lokið. Þetta er einkum nauðsyn-
legt til þess að ljóst verði nú þeg-
ar, hvaða sveitabýli geta ekki
fengið rafmagn á bann hátt, svo
að unnt sé að hefjast'handa um
að leysa rafmagnsþörf þeirra á
annan hátt, annaðhvort með sér-
virkjunum fyrir einn eða fleiri
bæi eða með mótorrafs'öðvum.
En gert er ráð fyrir, að-þær fram
kvæmdir falli einnig innan ramrna
10 ára áæ’.lunarinnar, þannig að
séð verði fyrir lánum til þeirra.
Samkvæmt 10 ára áætluninni er
Framhald á 7. síðu.