Íslendingur - 01.06.1955, Blaðsíða 2
2
ÍSLENDINGUR
MiíJvikudagur 1. júní 1955
QajnfrAeðasJióla Rkureyrav'
í 29- SíDD
Skólastjórinn, Þorsteinn M. Jónsson, kvaddur
> meö ávörpum d ^ ^
Gagnfræðaskóla Akureyrar
var slitið annan hvítasunnudag.
Lauk með því tuttugasta og
fimmta starfsári skólans. Jafn-
framt var þess minnzt nokkuð, að
þetta var í síðasta skipti, sem
Þorsteinn M. Jónsson sagði upp
skóla, því að hann lætur af störf-
um, vegna aldurs, þann 1. sept.
næstk.
Athöfnin hófst með því, að
sunginn var sálmurinn „Faðir
andanna“. Skólastjórinn tók þá
til máls og rakti í stuttu máli
sögu skólans undanfarinn aldar-
fjórðung. Þá gaf hann örstutt yf-
irlit um skólastarfið s. I. starfsár.
Um 340 nemendur voru í skólan-
um í vetur. Kennt var í 14 deild-
um. Heilsufar kvað skólastjóri
hafa verið með lakara móti í vet-
ur, svo að hann myndi vart verra
í tvo áratugi, að undanskildum
mænusóttarvetrinum. Kvað svo
rammt að þessu, að leggja varð
niður kennslu vikutíma í marz
s. I. Skólastjórinn afhenti gagn-
fræðingum prófskírteini þeirra
og brautskráði þá. Gagnfræða-
prófi bóknámsdeildar luku 15
nemendur, en 27 úr verknáms-
deild. Hæstu einkunnir við gagn-
fræðapróf hlutu þau Jóhann
Hauksson, úr bóknámsdeild, 8,57,
og Heba Ásgrímsdóttir, úr verk-
námsdeild, 8,49. Hæstu einkunn
í skólanum hlaut Hjörtur Pálsson
í I. bekk, 8,81.
Skólastj óri ávarpaði síðan
hina nýju gagnfræðinga. Ræddi
hann um efnalega velmegun og
andlega auðlegð. Benti hann hinu
unga fólki á, hve mikið böl efna-
leg fátækt væri, og brýndi fyrir
þeim að gerast efnalega sjálf-
bjarga. En jafnframt yrði æsku-
fólk að gera sér Ijóst, að efna-
leg velmegun hefði lítið að segja,
ef andleg fátækt fylgdi henni. í
eymd og fátækt þjóðarinnar á
liðnum öldum hefði hinn andlegi
auður ætíð borgið henni, og svo
yrði enn að vera mitt í velmegun
nútímans.
Að loknu ávarpi skólastjóra
kvaddi sér hljóðs form. fræðslu-
ráðs, Brynjólfur Sveinsson,
menntaskólakennari. Flutti hann
í snjallri ræðu skólastjóranum
þakkir fyrir tveggja áratuga heil-
huga starf við skólann og árnaði
honum alls góðs.
Þá voru flutt þrjú ávörp af
hálfu eldri og yngri nemenda
skólans. Guðný Einarsdóttir, úr
hópi hinna nýju gagnfræðinga,
færði skólastjóra þakkir allra
skólasystkina sinna frá liðnum
vetri og gjöf frá þeim, forkunnar-
fagran lampa, sem gerður er af
Ríkarði Jónssyni, myndhöggv-
ara; er lampafóturinn skorinn úr
íslenzku birki, sem vaxið hefir í
á'thögum Þorst. M. Jónssonar,
eystra. Valdimar Óskarsson,
sveitarstjóri í Dalvík. flutti skól-
anum þakkir og árnaðaróskir frá
tíu ára gagnfræðlngum. Færði
hann skólastjóra fagran rósavönd
og skólanum fyrirheit um gjöf.
Vignir Guðmundsson, tollvörður,
flutti stutta ræðu og afhenti pen-
ingagjöf frá gagnfræðingum
1944.
Jóhann Frímann, yfirkennari,
talaði næstur og flutti skólastjóra
kveðju og þakkir frá samkennur-
um. Steinn Steinsen, bæjarstjóri,
Dagana 21. og 22. maí var mik
■ð um dýrðir á Blönduósi, en þá
.ninntust Húnvetningar 75 ára af
.nælis kvennaskóla síns, er fyrst
ók til starfa að Undirfelli í Va'.ns
dal veturinn 1879—80, siðar í
ikólahúsinu á Ytri-Ey og loks á
Jlönduósi árið 1901.
Fyrri daginn (laugardag) var
jpnuð handavinnu- og iðnaðar-
sýning skólans, en um kvöldið var
samkoma í samkomuhúsi staðar-
ins. Flutti skólastjórinn, frú
Hulda Stefánsdóttir ræðu um
sögu skólans, en siðan voru leik-
þáttur, söngur, upplestur, tízku-
sýning, þjóðdansar og að lokum
almennur dansleikur.
Síðari daginn (sunnudag)
hófst hátíðin í kvennaskólahús-
inu kl. 2 síðdegis. Flutti skóla-
stjórinn, frú Hulda, þar aðra
ræðu, en síðan fór fram guðs-
þjónusta. Messaði prófastur Húna
vatnsprófastsdæmis, sr. Þorsteinn
B. Gíslason í Steinnesi. Að því
loknu voru fluttar ræður og
minni, en ræðumenn voru: Run-
ólfur Björnsson bóndi á Kornsá,
formaður skólanefndar, Stein-
grímur Steinþórsson landbúnað-
arráðherra, Jón Pálmason alþing
ismaður, Guðbrandur ísberg
sýslumaður og Jón S. Baldurs
kaupfélagsstjóri. Milli ræðuhalda
skemmtu karlakórarnir Húnar ú
Blönduósi og Karlakór Bólstaðar-
hliðarhrepps með söng. Síðan
fluttu eldri nemendur, kennslu-
konur og fleiri ávörp og árnað-
aróskir til skólans og afhentu
gjafir, en skólastjóri og formaður
skólanefndar þökkuðu. Lauk þess
ari a'höfn með söng þjóðsöngs-
ins, og sóttu hana um 6 hundruð
manna.
Þá var efnt til kveldverðar í
Ieikfimishúsi barnaskólans, og
sátu hann yfir 400 manns. Enn
fóru þar fram ræðuhöld og söng-
ur. Ræður fluttu: Steingrímur
Davíðsson skólastjóri, sr. Pétur
Ingjaldsson, Jón Pálmason alþm.,
Halldóra Eggertsdóttir og Aðal-
sleinn Eiriksson námsstjórar,
Runólfur Björnsson skólanefndar
formaður og frú Helga Jónsdóttir
Akureyri. Að loknu borðhaldi
var þeim af gestunum, er hús-
rými Ieyfði, sýn* uppkast af kvik-
mynd af atvinnuháttum og nátt-
ávarpaði skólastj óra nokkrum
orðum og flu'.ti honum þakkir og
árnaðaróskir bæjaistjórnar og
bæjarbúa.
Loks tók skólastjóri, Þorsteinn
M. Jónsson, afiur til máls. Þakk-
aði hann gjafir og góðar óskir,
hlýhug og vináttu í garð sinn og
garð skólans. Sagði hann síðan
skóla shtið. Alhöfninni lauk með
því, að þjóðsöngurinn var sung-
inn.
Margt gesta var við skólaslitin.
Skeyti bárust, m. a. frá fræðslu
málastjóra, sem nú er staddur í
Chicago, og Aðalsteini Eiríkssyni,
námss'jóra, sem hafði ætlað séi
að vera viðstaddur, en komst ekk
norður vegna veikinda.
úru héraðsins og um kvöldið vai
dans stiginn í skólahúsinu.
Meðal hinna mörgu gjafa, er
skólanum bárust í tilefni þessara
tímamóta í sögu hans, var 1000
króna gjöf frá frú Helgu Jóns-
dóttur Akureyri, er gefin var til
minningar um látna systur, Jór-
unni Jónsdóttur, er var nemandi
við Blönduóssskólann.
Mjög róma gestir þeir, er há-
íðina sótlu, höfðings- og mynd
arbrag þann, er einkenndi hana,
en mestan veg og vanda af há
tíðahöldunum hafði frú Hulda
Stefánsdóttir, forslöðukona skól-
ans.
___*____
MARTÍNUS KEMUR
TIL AKUREYRAR
Danski rithöfundurinn Marlín-
us er væntanlegur hingað í næstu
v,ku. Martínus kom hingað sum
arið 1952 og vöktu þá erindi hans
hér mikla alhygli. Að þessu sinni
mun hann flytja hér nokkur er-
indi og sýna skuggamyndir til
skýringar. Utdráttur úr erindun-
um verður væntanlega flu'tur
á íslenzku hverju sinni. Meðal
erinda þeirra, sem hann flytur
eru: Leyndardómur bænalífsins,
Lífið eftir dauðann og Endur-
holdgun og örlög.
___*____
Verður siglingaflotinn
stöóvaður í 3. sinn á fám
mánuðum?
Sjómannafélag Reykjavíkur hef
ir að sögn boðað verkfall á far-
skipunum frá og með 8. þ. m., < n
samningar gengu úr gildi í nótt
sem leið.
Það eru hásetar og undirmenn
í vél, sem nú eiga í kaup- og kjara
deilu, og hefir samkomulag ekki
náðst. Skipafélögin buðu þegar
10% hækkun á kaupi, en við það
þótti ekki unandi. Skipafélögin,
sem verkfallið á að ná til, eru
Eimskipafélag íslands h.f., Skipa
útgerð ríkisins, Skipadeild SÍS,
Eimskipafélag Reykjavikur og
Skipafélagið Jöklar.
___*____
ERINDI UM ÍRSKAR
ÞJÓÐSÖGUR
Prófessor Ó. Duilearga neín-
ist írskur þjóðsagnafræðingur og
þjóðsagnasafnari. sem dvelur í
Reykjavík um þessar mundir í
boði írlandsvinafélagsins. Kemur
hann til Akureyrar í vikunni og
flytur erindi í Menntaskólanum á
föstudagskvöldið um írskar þjóð
sögur og sýnir skuggamyndir.
Próf. O’Duilearga er talinn einn
cunnasti og merkasti þjóðsagna-
fræðingur, sem nú er uppi í heim
num.
___*____
HEYBRUNI
Um hádegi sl. fimmtudag kom
app eldur í heykleggja á suður-
barmi Búðargils, og var Slökkvi-
aðið kvatt þangað. Varð heyið
fyrir mikluin skemmdum, en eig
andi þess var Arni Þorleifsson
Lækjargö'.u 11. Alitið er, að óvit
ar hafi farið óvarlega með eld
við heyið og valdið brunanum.
______________*____
LeiSrétting. Sjómannamescan á
sunnudaginn kemur hefsl kl. 10.30 ár
degis, en ekki kl. 11 eins og stendur á
12. s.ðu blaðsins.
Sumarheimili drengja við Ástjörn
er ráðgert að verði starfrækt í sumar
eins og að undanförnu, ef Guð vill.
Þó er í ráði að lengja dvalartímann
upp í 8 vikur, ef unnt reynist, J)ar sem
fólki hefir þótt dvalartíminn 2—4 vik
ur of stuttur. Daggjaldið, sem lialdizt
hefir óbreytt undanfarin ár, verður að
hækka um 1 kr. og verður 16 kr. á
dag. Umsóknir um dvöl sendist sem
all.a fyrst til Sæmundar G. Jóhannes-
sonar, Sjónarhæð, (sími 1050), sem
gefur nánari upplýsingar. — Sjónar-
hceSarstarjiS.
Fíladeljía Lundargötu 12. Almenn
samkoma á fimmtudag og sunnudag
kl. 8.30 háða dagana. Sænski trúboð-
inn Göte Andersen syngur og talar á
þessum samkomum. Allir velkomnir.
___*______
Nefnd skipuð til að und-
irbúa löggjöf um atvinnu
leysistryggingar
Ríkisstjórnin hefir skipað 5
manna nefnd til að undirbúa lög-
gjöf um atvinnuleysis'ryggingar
fyrir næsta Alþingi. í nefndinni
eru: Hjálmar Vilhjálmsson skrif-
stofustjóri formaður, Gunnar Við
ar hagfræðingur, Haraldur Guð-
mundsson alþm., Björgvin Sig-
urðsson framkv.stjóri (tilnefnd-
ur af Vinnuveitendasambandinu)
og Edvard Sigurðsson varaforseti
Alþýðusambands íslands (til-
nefndur af ASÍ).
___*____
MISSKILNINGUR.
Því í ósköpunum stanzið þér
hérna á miðju torgi? sagði mað-
urinn í ajtursœlinu með þjósti.
— Vnga stúlkan kallaði
„stopp“, sagði bílsljórinn.
— Hún var ekki að kalla í yð-
ur. Haldið bara ájram.
Glæsileg afmælishátíð Kvenna-
skóla Húnvetninga
Auglýsmgar frd 19. öld
Orðalag og form auglýsinga í
íslenzkum blöðum á öldinni sem
leið, var allólíkt því, er nú gerist.
Voru þær oft fyrirsagnarlausar,
og venjulegar settar með megin
málsletri, svo að örðugt var að
greina þær frá öðru efni.
Hér birtast sýnishorn af göml-
um auglýsingum í Akureyrarblöð
um:
„Það heflr gleymst að auglýsa í
blöðunum, að í fyrrasumar fannst á
Kaldadal, á svokölluðum Langahrygg
norðan við „Kerlingu" rauður steinn í
einkennilegri gullumgjörð, sem eigandi
má vitja að Syðra-Espihóli í Eyja-
firði.“
(NorSlingur I. 2. tbl. 1875.)
„1 fyrra kom hingað ölfaður maður
utan úr kaup tað með stórann brodd-
staf í hendi, sem hann skildi eftir hér
við prentsmiðjuhúsið en seinna kann-
ast þó eigi við að eiga. Stafnum hefir
verið lýst fyrir mörgum, en enginn
þeirra viljað helga sér hann. — Rit-
stjórinn."
(NorSanjari, 30. apríl 1867.)
„SUND. — Þeim unglingum, sem
kjark hafa og menningu í sér til að
nema sund, auglýsist hér með, að það
verður byrjað úr hvítasunnu í vor, svo
framarlega að ég fái 8—10 nýsvelna.
Óska ég því að þeir er það vilja nema,
gefi það til vitundar hafn:ögumanni
Magnúsi Jónssyni á Akurcyri, við
fyrstu hentugleika.
Staddur á Akureyri 23. maí 1881. —
Jónas Jónsson."
(NorSanjari 1881.)
„TUBORG ÖL frá lrinu stóra öl-
gerðarhúsi „Tuborgs Fabriker" í
Kaupmannahöfn er þekkt að því, að
dofna sízt, vera bragðbezt og næringar-
mest allra bjórtegunda.
TUBORG ÖL er í mesta áliti hvar-
vetna, þar sem það er liaft á boðstól-
um. Yfir 50 millj. flaska seljast af því
árlega, og sýnir það hina miklu hylli,
em það hefir náð meðal almennings.
TUBORG ÖL fæst nærri allsstaðar
á íslandi, og óskast keypt og drukkið
af sérhverjum öldrekk í landinu."
(Stejnir, 14. júní 1901.)
Hiisateiknari
viðurkenndur
Nýlega var sagt frá því hér í
blaðinu, að bygginganefnd bæj-
arins hefði veitt 7 byggingameist-
urum í bænum viðurkenningu til
að teikna íbúðarhús í bænum.
Á fundi sínum 27. maí sam-
þykkti nefndin að veita Mikael
Jóhannessyni Eyrarlandsveg 20
hér í bæ leyfi til að géra upp-
drætti af húsum í bænum.
NÝKOMIÐ
Sandalar
úr striga, rauðir og bláir,
nr. 22—33.
Hvannbergs bræður.