Íslendingur - 01.06.1955, Qupperneq 3
Miðvikudagur 1. júní 1955
ÍSLENDINGUR
3
SjólfsöMir rjöjo sér til rúms
Auðvelda matvæladreifingu og flýta afgreiðslu
Eins og skýrt var frá í næst síð-
as'a blaði, var hér á ferð í bæn-
um Mr. A. W. Swentor, sérfræð-
ingur í matvæladreifingu, og
Mr. Swentor.
ræddi hann við kaupmenn og
deildarstjóra kaupféiaga um
idreifingu vara, einkum í nýlendu-
vöruverzluninni. í fylgd með hon-
•um var fulltrúi frá Iðnaðarmála-
stofnun Islands, Guðmundur H.
Garðarsson viðskiptafræðingur.
Mr. Swentor hefir 27 ára
reynslu sem séríræðingur og
stj órnandi í sl.kum fynrtækj um,
einkum í Kanada, og hefir nú í
2i/2 ár s'.arfað sem formaður sér-
fræðinganefndar EFA í smásölu-
verzlun og dreifingu matvæla.
Nefndin hefir þegar starfað í 11
Evrópulöndum og í mörguin
þeirra valdið stórstígum framíör-
um í framleiðni á sviði dreifing-
arinnar. Hingað er sérfræðingur-
inn kominn, eins og áður var
sagt, á vegum Iðnaðarmálastofn-
unar íslands.
Aðalgreinar þær, er Mr. Swen-
tor gefur leiðbeiningar í eru
þessar:
í smásöluverzlun: Sölufyrir-
komulag, birgðageymsla, skipu-
lag verzlana, auglýsingar, birgða-
skrár, fræðsla afgreiðslufólks.
í heildsöluverzlun: Fyrirkomu-
lag birgðaskemma, birgðaskrár,
kennsla sölumanna, samskipti við-
skip'.avina við fyrirtækið, þjón-
usta í þágu viðskiptavina.
í framleiðslu: Auglýsingar,
söluaukning, pökkun, samskipli
við heildsala og smásala, dreifmg,
markaðsrannsóknir.
Mr. Swentor telur sj álfsölufyr-
irkomulagið hafa marga eða
flesta kosti fram yfir hið eldra af-
greiðsluform. Það fer að vísu
nokkru meira í umbúðir, því að
þær þurfa að vera snyrtilegar, svo
að varan verði útgengilegri. Hins
vegar sparast rúm fyrir búðar-
borð og efni í það, sem betur
væri komið í hillum. Ekki þarf
eins margt afgreiðslufólk í þær
búðir, þar sem viðskiptavinurinn
tekur sjálfur vöruna sem hann vill
kaupa, innpakkaða úr hillu, og
maður, sem kemur til að kaupa
eldspýtustokk, þarf ekki að bíða,
meðan verið er að afgreiða Pétur
og Pál, sem inn komu á undan
honum, heldur gengur að stokkn-
um, fer með hann til gjaldkera og
greiðir.
Sjálfsafgreiðslur ryðja sér nú
mjög til rúms í Bandaríkjunum
og Kanada, og munu verða upp
teknar um þessar mundir víða í
Vestur-Evrópu. Líklegt má og
telja, að sjálfsafgreiðsla verði
innan tíðar reynd hér, a. m. k. í
nýlenduvöruverzlunum, en sums
staðar þarf ekki að gera nema ó-
verulegar breytingar á innrétting-
um búða til að taka upp sl-kt af-
greiðsluform.
Fyrra föstudagskvöld var fund-
ur haldinn í Gagnfræðaskólanum,
en þar flutti Mr. Swentor erindi
og sýndi skuggamyndir og kvik-
mynd til skýringar efninu, en
Þann 15. maí siðastliðinn voru
lið.n 25 ár frá því að fyista flug-
þernan í heiminura tók við starfi
sínu. Ef einhverjir halda, að
grannir öklar, rauðar varir og
lakkaðar neglur veiti eingöngu
heimild til innsetningar í s.aifið,
þá er það hinn mesti misskilning-
ur. En sá misskilningur er kann-
ske sök flugfélaganna sjáifra, því
að mörg leggja þau áherzlu á
glæsilegt úllit flugfreyjunnar.
Fagrar meyjar með ljúfu brosi
eru ætíð líklegar til að örva sölu
á vöru, og eru flugfarmiðar þar
engin undantekning.
Fyrstu flugfreyjur heimsins
voru lærðar hjúkrunarkonur, og
enn þann dag í dag ræður eitt
flugfélagið eingöngu hjúkrunar-
konur í starfið, en það er Trans-
Kanada. ,
En hinn 15. maí 1930 stigu
átta ungar stúlkur um borð í
flugvélar Boeing-flugfélagsins, í-
klæddar dökkgrænum einkennis-
búningi, með tvíhnepptum jakka
og grænum „bátum“ á höfði.
Þær höfðu ekki stundað neitt
undirbúningsnám, en lærðu af
reynslunni smám saman, meðan
þær gengu milli farþeganna með
súpur og kaffi í hitabrúsum og
færðu þeim smurt brauð og að-
stoðuðu á ýmsan hátt. Áður en
þriggja mánaða reynslutími var
út runninn, höfðu fjálg sendibréf
frá farþegunum sannfært stjórn
félagsins um, að flugfreyjan væri
ómissandi. Jafnvel áhöfn flugvél-
arinnar mat mikils að fá kaffi og
smurt brauð framreitt á fluginu.
Það leið ekki á löngu, unz önn-
ur flugfélög fetuðu í fótspor Boe-
ing-félagsins. Snotrar hjúkrunar-
konur voru ráðnar á flugvélarn-
ar. í Evrópu varð KLM fyrst til
að taka upp hugmyndina 1935 „n
síðan Det danske Luftfartselskab
1938. Það var hjúkrunarkona,
Ellen Church að nafni, er opnaði
kynsystrum sínum nýja atvinnu-
Ottó Jónsson menntaskólakennari
túlkaði. Sóttu fund þenna 50—60
manns úr verzlunarstétt bæjarins.
Mr. Swentor lét vel yfir komu
sinni hingað til Akureyrar. Lýsti
hann ánægju sinni yfir þrifnaði í
verzlunum og snyrtimennsku af-
greiðslufólksins.
í fyrri viku kom einnig hingað
til bæjarins danskur lögfræðing-
ur, Ryding að nafni, en hann er
fyrir þeirri deild Efnahagssam-
vinnustofnunarinnar, sem fer með
verzlunar- og viðskiptamál. Hér
dvaldi hann tvo daga við athug-
un á því, hvaða menn skyldi
senda hingað, sem að gagni mæt'.i
verða öðrum verzlunargreinum
en nýlenduvöruverzluninni, svo
sem vefnaðarvöru- og járnvöru-
verzlunum.
Þeir Mr. Swentor og Guðm. H.
Garðarsson fóru héðan suður
loflleiðis fyrra laugardag.
grein í háloftunum, og sjálf starf-
aði hún þar heimsstyrjaldarárin
bæði í Evrópu og Afríku og
hlaut heiðursmerki fyrir. Síðan
hefir hún aftur horfið að hjúkr-
unarstörfum niðri á jörðunni.
Hvað skyldi það vera í flug-
freyjustarfmu, er laðar ungu
s úlkurnar að því? Ekki er það
flugið sjálft og ekki heldur ein-
kennisbúningurinn, eftir því sem
þær segja sjálfar.
Vinnan er erfið. Um 1940 Iétt-
ist flugfreyjan um 2Vjj kg. í ferð-
um yfir Allantshafið. í dag um
IV2 kg. Ábyrgð in er mikil. Það
veltur á henni, að sérhver flugfar-
þegi fái þægilega ferð. Afkoma
flugfélagsins veltur mjög á starfi
hennar, og hvar sem hún fer, er
hún nokkurs konar sendiherra
þjóðar sinnar.
Hún hefir um margt að hugsa.
Séu aðeins 30 gafflar í flugvél-
inni en farþegarnir 47, eru það
mistök flugfreyjunnar. Vinnu-
tíminn er óreglulegur, og þótt
vinnustundir yfir mánuðinn séu
tiltölulega fáar, eru þær þeim
mun erfiðari. Vélagnýrinn, and-
rúmslof'ið í háloftunum, titring-
ur og sveiflur vélanna gera það
að verkum. Líkamsþunganum
verður að halda sem jöfnustum,
og launin eru ekki svimandi há.
Einstök flugfélög í Ameríku
ráða nú flugfreyjur eingöngu eft-
ir fegurð, en því aðeins, að um
sé að ræða stuttar flugleiðir %
eða 1 klukkustund, án veitinga.
Kröfurnar, sem flest félögin gera,
eru mjög s‘rangar, og allra strang
astar hjá hinum alþjóðlegu flug-
félögum. Laglegar hjúkrunarkon-
ur hafa alltaf mikla möguleika,
og lagleg, menntuð stúlka, má
alltaf gera sér vonir, hafi hún
nokkra málakunnáttu, sé hraust
og heilbrigð, lundgóð, snjallráð,
árvökul, skynsöm og háttvís.
Þetta eru engar smáræðiskröfur,
en hrökkva þó ekki til. ,
Hirgt geríst I iidloftunum
Flugíreyjustéttin 25 ára
Hún þarf að vera á námskeiði,
áður en hún hreppir siöðuna.
Læra nokkuð í veöuríræði, ilug-
vélaíræði, næringariræði, matar-
gerð, framreiðslu, um siði og
venjur i viðkomuiöndum ásamt á-
gripi af landafræði, vegabréia-
og tollreglur, hjálp í viðlögum,
barnahjuKrun og Ijósmoöur-
fræði. Hún þari að iæra að
sveiíla brunasiöngu af ái.ka ör-
yggi og húsmóðir grautarsleif.
ilun þarí að vera reiðubúin að
svaia heimskulegum eða eríiðum
spurningum, þurrka upp hjá loíl-
veikum iarþegum og hreinsa
munngúm ai siólsetum.
Samt sem áður þyrpast ungu
slúlkurnar að. Þegar lu-15 siöö-
ur eru iausar hjá SAS, berast um
300 umsóknir. I fyrra sóttu 22
þús. ungar s'.úlkur um slöðu hjá
American Airlines. 500 voru
ráðnar, en aí þeim stóðust aðeius
450 hið stranga próí.
Þær eru tregar íil að játa það,
en ævintýraljóminn umhveifis
starfið hefir mikið aðdráttarail.
Fyrst og fremst ferðalögin og um-
gengni við hinar ólíkustu þjóð-
ir. Aila farþegaxverða þær að um-
gangast með ástúðleik og hlýju:
ílóttamenn, pílagríma, íanga,
sjúklinga, sjómenn, fræga leik-
ara, sendimenn ríkja, rithöfunda
o. s. frv. frá öllum álfum heims.
í starf.nu öðlast flugfreyjan víð-
ari sýn yfir alla hluti og nánari
kynni af meðbræðrunum.
Tökum sem dæmi ungfrú Kay
Scott hjá Weslern Airlines, sem
með einni setningu kom farþeg-
unum í troðfullri flugvél í sól-
skinsskap. Loftið í farþegarúm-
inu var heitt og þungt og flugvél-
in sviptist til undan vindsveipun-
um. Hugir farþeganna voru óró-
ir eða lamaðir, unz Kay spurði í
hátalaranum, hvort engan langaði
til að bregða sér út andartak til
að fá sér ferskt loft.
Sumar flugfreyjur hafa orðið
að annast ljósmóðurhlutverk í há-
loftunum. Ungfrú Barbro Wenn-
gren hjá SAS tók á móti full-
skapaðri telpu yfir miðju Atlants-
hafi, meðan siglingafræðingur-
inn gaf henni fyrirmæli um há-
talarann, sem hann fékk jafnóð-
um frá lækni í Sko'landi.
Mary Jane Hinckley hjá AOA
hlaut sams konar reynslu með
þeim árangri, að ætla mátti, að
fæðingarhjálp væri sérgrein henn-
ar. Án þess að aðrir farþegar
hefðu hinn minnsta grun um,
hjálpaði hún konu amerísks her-
rnanns við að fæða frumburð
sinn, stóran strák, 20 þúsund fet-
um yfir jörðu.
Um ráðsnilli, rólyndi og kjark
flugfreyjanna á viðsjárverðum
augnablikum, svo sem við neyð-
arlendingar og eldsvoða í flugvél-
um, eru til margar sannar sögur,
sem hér verða ekki rak'ar. Oft
hafa þær komið í veg fyrir hóp-
æði farþeganna við slík tækifæri
með einbeittri og röggsamlegri
framkomu.
Næstum allar flugfreyjur, er
hætta starfi, gjöra það til að gifta
sig. Um 20% af þeim gif'ist ein-
hverjum af áhöfninni. Önnur
20% einhverjum af farþegunum.
Cytha van Eesteren frá KLM
Shólivist i Horegi
(Frétiafregn frá Félaginu ísland-
Noregur.)
Félaginu hefir verið falið, í
samráði við félagið Norsk-Is-
landsk Samband í Oslo að velja
2—3 unga menn til ókeypis skóla-
vislar í Noregi.
1 piltur getur fengið skólavist í
Búnaðarskólanum á Voss næsta
haust. Námstíminn er 2 veíur.
Umsóknir með afritum af vott-
orðum um nám og undirbúning
og meðmæli sendisl formanni ié-
lags.ns Árna G. Eylands, Reykja-
vík.
1 -eða 2 piltar geta fengið skóla-
vist í S'.atens Fiskarfagskole Auk-
re við Molde. Skóli þessi starfar í
þremur deildum:
a. „Fiskeskipperlinje“, 10 mán.
nám.
b. „Motorlinje“, 5 mán. nám.
c. „Kokkelinje“, 5 mán. nám.
Því miður mun nám í a. og b.
deild skólans ekki velta nein sér-
slök réttindi til starfa hér á landi
hliðs'ætt því sem er í Noregi, en
matreiðslunámið mun veita starfs
aðstöðu eins og hliðstætt nám hér
á landi.
Þeir sem vilja sinna þessu, geta
sent umsóknir sínar beint til
skólans, en æskilegt er, að þeir
geri formanni félagsins ísland-
Noregur, Árna G. Eylands, við-
vart um leið og þeir sækja um
skólavist þessa, helzt með því að
senda honum afrit af umsókn og
upplýsingum, sem þeir kunna að
senda skólanum.
Utanáskrift skólans er:
Sta'ens Fiskarfagskole, Aukre
pr. Molde, Norge.
hafnaði ísmeygilegu tilboði frá
austurlenzkum sheik um stöðu í
kvennabúri hans. Sheikinn var
svo hugfanginn af fegurð Cythu
og Ijósu lokkum, að hann gerði
flugstjóranum kaup'.ilboð. Bauð
hann tvo ágæta úlfalda fyrir Cyt-
hu. En þar sem flugstjórinn tók
dauflega í tilboðið bæ!ti hann við
feitum sauð. En Cytha flaug með
vélinni til baka. Á flugvellinum
stóð sheikinn eftir og hristi höf-
uðið yfir viðskip'.aheimsku flug-
stjórans.
SAS hefir nokkrum sinnum
ráðið fyrrverandi flugfreyjur um
skamman tíma, eftir að þær voru
gengnar í það heilaga. Þeim
finnst þá, að þær séu í stuttri or-
lofsferð til himna. Því að allar
Sakna þær starfsins uppi í háloft-
unum og langar þangað aftur,
eftir að þær hætta því.
(Endursagt úr Morgenbladet, Oslo,
nokkuð stytt.)
íslendingur
fæst í lausasölu í Bókaverzl.
Axels Kristjánssonar h.f.,
Blaðasölunni Hafnarstræti
97, Bókaverzl. Eddu h.f. og
Bókabúð POB.