Íslendingur - 01.06.1955, Side 12
Kirkjan: MessaS í Akureyrarklrkju
n. k. sunnudag kl. 11 árd. Sjómanna-
mes:a.
Áheit á Æskulýðsfélag Akureyrar-
kirkju kr. 100,00 frá félaga.
Hjúskapur: Laugardaginn fyrir hvíta
sunnu voru gefin saman í hjónaband
hér í bænum ungfrú Ellen Ragnars
skrifstofumær og Arngrímur Sigurðs-
son stud. med. frá Seyðisfirði. Ileimili
ungu hjónanna verður að Hringbraut
37 Reykjavík.
Sama dag voru gefin saman í Akur-
eyrarkirkju ungfrú Sigríður Steindórs-
dóttir og Jón Þorsteins Hjaltason sjó-
maður. Heimili þeirra verður að Helga
magra-stræti 4.
Á annan í hvítasunnu voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Ingibjörg
Stefánsdóttir og Ásgrímur Stefánsson
iðnverkamaður. Heimili þeirra verður
Gránufélagsgata 53.
Gróðursetningarjerðir í þessari viku,
verða sem hér segir: Annað kvöld í
Kjarnaland, farið frá Hótel KEA kl.
7.30. Laugard. í Vaðiareit. Farið frá
Hótel KEA kl. 3,40. Vinna hefst kL 4.
Gert ráð fyrir þátttöku frá Akureyri og
úr sveitunum sunnan við Akureyri.
Gullbrúðkaup. 50 ára hjúskaparaí
mæli áttu 27. maí s. 1. frú Hólmfríður
Gunnarsdóttir og Krislján Árnason,
kaupmaður.
Bijreða.koðunin. í dag, 1. júní mæti
nr. 951—1000. Á morgun, 2. júní
1001—1015. Síðasti auglýsti skoðunar-
dagur. Á föstudaginn fer bifreiðaskoð-
un fram á Dalvík.
___*______
íhaldsmenn í Brellondi
nnnn m'hinn
sigur
í vikunni sem leið íóru almenn-
ar þingkosningar fram í Bret
landi. Unnu íhaldsmenn mjög
glæsilegan kosningasigur, yfir 20
ný þingsæti og hafa um 60 at-
kvæða hreinan meirihluta á
þingi. Þá hafa þeir um 50% at-
kvæða að baki sér. Kommúnistar
fengu ekkert þingsæti.
Undirbúningur kosninganna
var óvenju friðsamlegur. Kjör-
sókn nokkru lakari en síðast, er
kosið var, en það var 1951. —
Verkamannaflokkurinn tapaði a.
m. k. 17 þingsæfum, og mun
klofningurinn í flokknum helzt
hafa valdið.
___*____
LÁTINN LANDI
VESTRA
Þann 15. marz s.l. lézt vestan-
hafs frú Guðrún Pétursson, 81
árs að aldri.
Fædd var hún að Ondólfsstöð-
um í Aðal-Reykjadal í Suður-
Þingeyjarsýslu 9. febrúar 1874,
og voru foreldrar hennar hjónin
María Magnúsdóttir og Jóhannes
ísleifsson. Flut'ist Guðrún með
foreldrum sínum vestur um haf
10 ára gömul. Giftisl ung Birni
Péturssyni, kennara og verzlunar-
manni, og bjuggu þau lengi i
Winnipeg.
mmt
Miðvikudagur 1. júní 1955
Myndin sýnir hvernig umhorfs var við brúna á Kotá í
Skagafirði kl. 9 að morgni þann 28. maí. — Skriðan hefir
fyllt gilið landa á milli og brúin að mestu komin í kaf, að-
eins handriðin standa upp úr, brotin og brömluð. Jarðýta
var þarna að verki, en mátti sín lítið gegn náttúruhamförun-
um. Ósennilegt er að Kotáibrú verði grafin upp af'ur, enda
var hún orðin erfið yfirferðar hinum nýju, s'óru samgöngu-
tækjum, (Ljósm. Tryggvi Haraldsson).
Kotárbrú í Norðurárdal íærðist
I kaf í aurskriðu
í hinum miklu hitum fyrir' féllu aurskriður fyrir helgina og
hvítasunnuna urðu víða vatna- færði ein sl.k brúna á Kotá í kaf.
vextir, og féllu sumstaðar aur- Vegurinn er þar síðan illfær
skriður á vegi. Einnig eru þeir minni bifreiðum. Vaðlaheiðar-
víða ógreiðir yfirferðar vegna vegur hefir að undanförnu verið
aurbleytu, meðan ve'.rarklakann bannaður vörubifreiðum og
er að leysa. stærri fólksbifreiðum.
í Norðurárdal í Skagafirði ________
Níldarsaliin til Horður-
laiula tr^gfð
Beðið eftir samningum við Rússland. Söltun
hefst væntanlega með fyrsta znóti
Blaðið hefir nýlega átt tal við tvo menn úr Síldarútvegsnefnd, þá
Guðmund Jörundsson útgerðarmann og Jónas G. Rafnar alþingis-
mann, og spurt þá um söluhorfur á Norðurlandssíld, söltun síldar í
sumar og tunnusmíði innanlands. Kváðu þeir framkvæmdas'jóra
nefndarinnar, þá Jón Þórðarson og Jón Stefánsson nýkomna heim
frá Norðurlöndum, þar sem þeir unnu að samningum um síldar-
sölu fyrir nefndina.
Síldarsalan.
Svíþjóð. Þar undirrituðu fram-
kvæmdastjórarnir samning um
sölu á Norðurlandssíld, heldur
meira magni en sl. ár, og er verð-
ið einnig nokkru hagstæðara en í
fyrra.
Finnland. Þá undirrituðu þeir
einnig samninga í Finnlandi um
svipað magn og sl. ár. Verðið
mjög svipað og þá.
Danmörk. Þeir áttu tal við síld
arkaupendur í Danmörku, en ekki
var gengið frá neinum samning-
um þar. Er það mál í a'hugun.
Þangað var ekkert selt í fyrra, en
þá keyptu Danir meginið af calt-
síldinni í Færeyjum á mjög lágu
verði.
Bandaríkin. Vonir standa til,
að takast megi að selja 10 þús.
tunnur af sal'síld til Bandaríkj-
anna, en umboðsmaður SÚN,
Hannes Kjartansson ræðismaður
íslands í New York, vinnur nú að
því fyrir nefndina.
Rússland. Pétur Thorsteinsson
sendiherra íslands í Moskvu hef-
ir síðan um áramót unnið að því
að ná samningum um sölu á Norð
urlandssíld í Rússlandi á sama
grundvelli og sl. ár, en Rússar
hafa enn ekki tjáð sig reiðubúna
að hefja samninga. Bíður Síldar-
útvegsnefnd nú eftir því, að þeir
óski eftir samninganefnd frá ís-
landi.
Tunnur og saL til fullnægingar
þeirri sölu, sem þegar er samið
um og ráð er gert fyrir, hefir
þegar verið tryggt.
Síldorsölfun í sumar.
Gert er ráð fyrir, að söltun
síldar á Norðurlandi geti í sum-
ar hafizt nokkru fyrr en venju-
Troöfuilt hús á
söngskemmtun
»Vísis«
Karlakórinn Vísir á Siglufirði
söng í Nýja Bíó hér á hvLasunnu
dag. Var hvert sæti skipað í hús
mu og söng kórsins tekið af
miklum fögnuði. Varð hann að
endurtaka allmörg lög.
Hinn ungi söngstjóri, Haukur
Guðlaugsson, hefir náð prýðis-
góðu valdi yfir kórnum. Eru radd
irnar vel samæfðar og beitingu
þelrra stillt í hóf. Einsöngvarar
kórsins eru Daníel Þóihallsson og
Sigurjón Sæmundsson, en undir-
leik annaðist ungfrú Guðrún
Kristinsdóttir.
Héðan fór kórinn strax að
söngnum loknum til Sauðárkróks
og hélt þar samsöng við beztu
viðtökur. Hélt síðan ves'ur og
suður um land og söng á nokkr-
um fleiri slöðum á leiðinni.
___*____
Þríbiirasistur fermdir
oð Héh i lljðltodil
Sauðárkróki í gær.
A hvítasunnudag fermdi séra
Björn Björnsson 9 börn að Hól-
um í Hjaltadal. Meðal þeirra voru
þríburasys'urnar Margrét, Sigrún
og Sigurlaug Ólafsdætur frá
Hegrabergi í Hegranesi, fæddar
4. júní 1941. Foreldrar þeirra
eru Sæunn Jónasdóttir frá Hró-
arsdal og Ólafur Eiríksson frá
Hvalnesi í Lóni. Systurnar eru
allar mannvænleg efnisbörn, og
mun fátílt eða elnsdæmi, að þrí-
burar séu fermdir samtímis.
/. Þ. B.
Annall Islendings
»000000000000000000000«
lega, eða strax og síldarmat ríkis
ins telur fært vegna fitumagns
síldarinnar. Undanfarin ár hefir
s ldin komið í byrjun hverrar ver
tíðar nokkru feitari en áður tíðk-
aðist, og gera menn sér því von
um, að söltun geti hafizt óvenju
snemma. Áður hafa kaupendur
gert ákveðnar kröfur um fyrsta
söl'unardag og ákveðið lágmarks-
fitumagn.
Tunnuefni
til næsta órs.
Óvenju miklar birgðir af tunn-
um voru til í landinu á sl. hausti
vegna lítillar sumarsöltunar. Að
tunnusmíði var óvenju lítil sl. vet-
ur s'afar þó ekki af tunnubirgð-
unum, heldur því, hve erfiðlega
gekk að útvega tunnustaf. Nú hef
ir h.'ns vegar rætzt svo úr, að
tryggt má teljast efni í 100 þús.
tunnur til smíða á næsta vetri.
Einn'g hafa verið tryggð kaup á
girði í réttu hlutfalli, en á sl. vetri
urðu tafir á tunnusmíði vegna
vanefnda á afhendingu girðisins.
MAÍ :
Hæstiréttur dæmir ungan mann í
Reykjavík, Rúnar Sophus Hansen, í 6
ára fangelsi fyrir morðtilraun á bíl-
sljóra, er hann skaut á úr riffli 9. okt.
1953, þá farþegi í aftursæti bílsins.
Bílstjórinn slasaðist alvarlega, missti
stjórn á bilnum, og meiddist annar
maður, er bíllinn rakst á.
□
Akurnesingar sigra úrvalslið Reykja-
víkur í knattspyrnuleik með 4 mörkum
gegn 1.
□
BiLeið með 2 mönnum fellur í sjó í
Njarðvíkum. Bfl.tj., er var að draga þá
blfreið í gang með annarri bifreið,
stakk sér í sjóinn og gat opnað hurð á
hinni sokknu bifreið, svo að mennirnir
komu:t út.
□
Vöruskiptajöfnuður óvenju óhag-
stæður í april vegna verkfallsins. Ut
var flutt fy.ir 24.7 millj. kr. en inn fyr-
ir 45.6 millj. kr.
□
Vísitala framfærslukostnaðar 1. maí
reyndist 162 stig.
□
Um 40 karlmenn írá Danmörku rá'ðn
ir til landbúnaðarstarfa hér á landi uð
tilhlutun Búnaðarfélags íslands.
□
Óvenjugóðir vertfðarhlutir, sums
staðar um 40 þús. kr. Tveir Sandgerð-
isbátar með hæsta afla, :em dæmi eru
til.
□
Dr. Helgi P. Briem, sendiherra ís-
lands í Stokkhólmi, skipaður sendi-
herra íslands og ráðherra með umboði
í Sambandslýðveldinu Þýzkalandi frá
1. júní n. k. í stað Vilhjálms Finsen,
og jafnframt veitt lausn frá sendi-
herrastarfi í Svíþjóð.
□
Sr. Þorsteini Jóhannessyni sóknar-
^ presti í Vatnsfirði og prófasti í Norð-
ur-ísafjarðarprófastsdæmi og séra Sig-
t urði Norland sóknarpresti í Tjarnar-
prestakalli í Húnavatnsprófastsdæmi,
veitt lausn frá embætti frá 1. júní.
*
Togaranum King Sol, er strandaðí á
Meðal’andsfjöru síðla vetrar, náð út.
Var það vélsmiðjan Hamar í Reykja-
v.'k, er annaðist björgun togarans.
#
Sr. Frlðrik Friðrikssyni reist minnis-
1 merki við Lækjargötu í Reykjavík á
87 ára afmæli hins aldna kennimanns
og ungLngafræðara.
Fra Leikíélaginu
Gamanleikurinn „Skóli fyrir
skattgreiðendur“ verður sýndur
n. k. laugardags og sunnudags-
kvöld kl. 8. Síðustu sýningar. —
Lelkhúsgestir athugið! Þar sem
aðalleikandinn, Júlíus Júlíusson,
frá Slglufirði, er mjög tímabund-
inn, verður sennilega ekki hægt
að hafa fleiri sýningar að sinni.
Þess er því vænzt, að bæjar- og
( héraðsbúar noti sér þetta síðasta
I tækifæri að sjá skemmtilegan
leik og hina nýju leikara, sem
vakið hafa mikla athygli.
Aðgöngumiðasími 1639 kl. 1—
2 daglega. Aðgöngumiðar af-
’ gre'ddir í afgreiðslu Morgun-
i blaðsins kl. 4.30—6 leikdagana.