Faxi

Árgangur

Faxi - 01.07.1943, Blaðsíða 1

Faxi - 01.07.1943, Blaðsíða 1
Vertíðarlok Vertíðarlokin eru þau tíma- mót í okkar atvinnusögu, sem liafa haldist með lítilli breyt- ingu um óralanga tíð. Hér á Suðurlandi hafa lokin verið merkis- og hátíðardagur frá mörgum sjónarmiðum. Fyrr á timum, þegar aðal- atvinnuvegurinn var landbúnað- ur, voru kjör bænda víðast svo þröng, að þeir þurftu að afla heimilunum auknatekna og þá var ekki um annað að ræða en „fara til vers“, sem kallað var, enda var það svo síðast í sveit- unum að hver einasti karlmað- ur fór til „sjávar“ eins og það var kallað. Þetta varð svo ríkt í meðvitund þjóðarinnar, að flestir karlmenn hlökkuðu til vertíðarinnar og drengirnir á fermingaraldri þráðu það heit- ast að losna við „kverið“ og fá að fara í „ver“. Þetta byggðist fyrst og fremst Marteinn Helgason á aflavoninni og um leið æfin- týralöngun. Þó voru skipin lé- legir árabátar og aðbúðin í ver- stöðvunum hörmuleg. En þjóðin þekkti ekki annað betra. En yngri og eldri sögðu sögur úr verinu og útþráin sagði til sín, þar sem víðar; drengirnir vildu fara, þó þeir yrðu að vera hálfdrættingar eða beitinga- drengir. Síðar kom máske að því að verða eftirsóttur sjómaður, jafnvel formaður og hver vissi nema nafnið aflakóngur gæti unnist, ef guð og lukkan væri með. Eitthvað þessu líkt leit málið út frá sjónarhæð unglingsins. Heimilisfaðir fór aftur á móti í verið — oft frá illa stöddu heim- ili — til að afla bjargar handa konu og börnum. Og svo leið vertíðin. Oft var afli góður í flestum verstöðv- unum og stundum ágætur, en hitt kom líka of oft fyrir, að aflinn brást. Lengst af hafa vertíðarlok verið bundin við 11. maí. Sjó- mennirnir þráðu að komast heim, oft glaðir yfir góðum afla. Þeir, sem heima voru hlökk- uðu meira til lokanna en nokk- urrar af hátíðum ársins — þeg- ar allt gekk að óskum — kon- an, börnin, unnustan, foreldr- arnir og aðrir vinir. Því þau til- fellin að sá, sem frískur fór í verið kom ekki aftur, voru svo sorglega mörg, að ástvinirnar heima bjuggu alla vertíðina yfir sífelldum ótta. GuSvi. Kr. GuSviunds- son. Svona gekk þetta til fram undir síðustu ár. Nú er orðin geysimikil breyt- ing á atvinnuháttum þjóðarinn- ar. Meir en helmingur hennar býr í bæjum og kaupstöðum. I sveitunum er fólkið orðið svo fátt á hverju heimili, að fæstir hugsa um að sækja atvinnu á sjóinn, enda eru búin það stór, að fólkið getur lifað á þeim. Gömlu árabátarnir eru horfn- ir, en vélknúin skip með ný- tísku veiðarfærum og útbúnaði komin í þeirra stað. Veiðitíminn er ekki lengur einskorðaður við vetrarvertíðina eina, það er komin önnur aðalvertíð — síld- arvertíðin. Þeir, sem sjóinn stunda, eiga flestir heima í bæjum og sjávar- þorpum. Atvinnuvegirnir eru orðnir fjölbreyttari en áður, enda er sjómennskan ekki leng- ur aðalkeppikefli ungra manna. En hitt er óbreytt, að duglegur sjómaður er í heiðri hafður og æðsta tign fiskimannsins er að verða aflakóngur. Eitt er enn sem óbreytt er. Þeir, sem sjóinn stunda, koma

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.