Faxi - 01.12.1962, Side 6
r-
sonar hreppstjóra og dannebrogsmanns á
Reykjum á Skeiðum og konu hans Guð-
rúnar eldri Kolbeinsdóttur prests og skálds
síðast í Miðdal, f. 1731, d. í júní 1783,
Þorsteinssonar. Séra Kolbeinn var gáfu-
maður og listamaður, latínulærður vel og
latínuskáld, þýddi Passíusálma séra Hall-
gríms Péturssonar á latínu. Eftir hann er
Gilsbakkaþula, sem flest börn lærðu fyrr
meir-á æskuárum sínum.
Kona Ofeigs á Fjalli og móðir Olafs
verzlunarstjóra, var Vilborg, f. 29. maí
1830 á Syðri-Brúnavöllum, en þar bjuggu
foreldrar hennar Eyjólfur Guðmundsson
og kona hans Sigríður Olafsdóttir. Þau
bjuggu síðar og lengi í Auðsholti í Bisk-
upstungum, var Eyjólfur þar hreppstjóri,
f. 1797, d. 9. júlí 1872 á Fjalli, Guðmunds-
son, er bjó í Búrfellskoti 1801, en kominn
var hann að Læk í Flóa 1816, f. 1769.
Guðmundur andaðist í Auðsholti hjá
Eyjólfi syni sínum 17. ágúst 1861, Eyjólfs-
sonar. Kona Guðmundar Eyjólfssonar á
Læk var Helga, f. 1771, Diðriksdóttir.
Kona Eyjólfs hreppstjóra í Auðsholti og
móðir Vilborgar á Fjalli var Sigríður, f.
19. sept. 1791, d. 21. febrúar 1880 á Fjalli,
Olafsdóttir bónda á Báruseyri á Alftanesi,
f. 27. des. 1765 á Báruseyri, d. 17. okt. 1838
þar, Jónssonar. Kona Olafs á Báruseyri
9. nóv. 1790, Vilborg, f. 6. maí 1767 á
Signýjarstöðum í Hálsasveit, voru for-
eldrar hennar Ásmundur Þórhallason og
Guðrún Pálsdóttir, hjón þar.
Vilborg Asmundsdóttir lézt á Báruseyri
27. júní 1834.
Börn Edinborgarhjóna, frú Þórdísar og
Olafs, eru fjögur, öll fædd í Keflavík, og
skulu þau nú talin:
1. Asgeir Þorsteinn Olafsson, f. 28. okt.
1902. Dýralæknir, býr í Borgarnesi. Kona
Guðrún Árnadóttir leikara í Reykjavík
Eiríkssonar.
2. Bragi Ólafsson, f. 18. nóv. 1903. Hér-
aðslæknir á Eyrarbakka. Kona Amalía
Sigríður Jónsdóttir sjómanns í Vestmanna-
eyjum Eyjólfssonar
3. Halldóra Ólafsdóttir, f. 15. des. 1907.
Maður Geir Zoega forstjóri í Reykjavík,
sonur Geirs Zoega kaupmanns. G. J.
Bergsætt bls. 13.
4. Vilborg Ólafsdóttir, f. 19. jan. 1917,
ógift, býr í Reykjavík.
Fósturbörnin eru einnig fjögur:
1. Hrefna Ólafsdóttir, f. 5. sept. 1894 á
Fjalli. Maður Erlendur Pálmason sjómað-
ur í Reykjavík.
2. Ólafur Ófeigsson, f. 28. júlí 1900 í
Keflavík. Skipstjóri og útgerðarmaður í
Reykjavík. Fyrri kona Grace, hún var
amerísk, en íslenzkrar ættar í móðurætt.
Hún andaðist 26. janúar 1939 í Rvík.
Seinni kona Daníelína Sveinbjörnsdóttir
frá ísafirði.
3. Einar Jónsson, f. 14. sept. 1909 á Kletti
í Geiradal. Bakarameistari á Akureyri.
4. Kristín Sigurrós Jónsdóttir, f. 11. nóv.
1917 á Kletti í Geiradal. Maður Sigurður
Kristjánsson gjaldkeri á Akureyri.
Árið 1920 flutti Ólafur og fjölskylda
hans til Reykjavíkur og gerðist kaupmað-
ur þar; en flutti eftir fá ár til Keflavíkur
og rak verzlun í Edinborgarhúsunum.
Ólafur V. Ófeigsson andaðist á Hafnar-
fjarðarspítala 11. marz 1931.
Frú Þórdís hefur búið um fjölda ára í
Reykjavík. Þrátt fyrir háan aldur heldur
hún sér prýðilega vel andlega og líkam-
lega.
Húsgagnaverzlun
G. Sigurfinnssonar
Húsgögn í fjölbreyttu
úrvali:
Svefnherbergissett
Svefnbekkir
Sófasett
Svefnsófar og skápar
Skrifborðsstólar
Gærustólar (2 gerðir)
Stofuskápar
Innskotsborð
Rúmfataskápar
Kommóður
Barnarúm og dýnur
Sófaborð
Skrifborð
Vegghillur
Útvarpsborð
Svefnstólar
Bókahillur
(færanlegar) með
skápum og skrifborði
Margar tegundir
af smáborðum
Smekkleg símaborð
Eldhúsborð og kollar
Borðstofuborð og stólar
Stakir armstólar
Blaðagrindur
Spilaborð
Húsgagnaverzlun
G. Sigurfinnssonar
Hafnargötu 39, sími 2088
166 — FAXI