Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1962, Side 33

Faxi - 01.12.1962, Side 33
r Suðurnesjamenn! Óskum öllum samstarfsmönnum og viðskiptavinum okkar á Suðurnesjum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs. Þökkum samstarf og viðskipti á liðnum árum. Byggingar^erktakaf Keflavíkur h.f. S uðurnesjamenn! Óskum öllum samstarfsmönnum og viðskiptavinum okkar á Suðurnesjum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs. Þökkum samstarf og viðskipti á liðnum árum. Rafmagnsverktakar Keflavíkur h.f. O % Suðurnesjamenn! Óskum öllum samstarfsmönnum og viðskiptavinum okkar á Suðurnesjum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs. Þökkum samstarf og viðskipti á liðnum árum. Málaraverktakar Keflavíkur h.f. S uðurnesjamenn! Óskum öllum samstarfsmönnum og viðskiptavinum okkar á Suðurnesjum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs. Þökkum samstarf og viðskipti á liðnum árum. Járniðnaðar- og pípulagningaverktakar Keflavíkur h.f. '■—■+ sama í höfuð dráttum, er aðstaðan ærið ójöfn, þar sem danska félagið styðst við aldagamla starfsemi í sínu landi, þótt hún framan af væri smá í sniðum, en Styrktarfélag vangef- inna í Reykjavík hefir ekkert við að styðjast, nema reynslu annarra þjóða og þær litlu til- raunir, sem hér hafa verið gerðar allra síð- ustu árin. Félagið vinnur hér merkilegt braut- ryðjandastarf í þágu olnbogabarna þjóðfé- lagsins. Það er nú að byggja glæsilegt skóla- hús í Reykjavík, sem þegar er að nokkru tekið til starfa, og vistheimilið í Skálatúni starfrækir það ásamt Umdæmisstúku Suður- lands. Hefir félagið byggt þar vandað íbúðar- hús fyrir starfsfólk heimilisins, sem mjög hefir bætt aðstöðu og vinnuskilyrði þar á staðnum. Forustumenn þessara samtaka hafa miklu og veglegu hlutverki að gegna með þjóðinni og þá fyrst og fremst með því, að opna augu almennings fyrir þessu þarfa nauðsynjamáli og þó alveg sérstaklega íslenzkra valdhafa, að þeir finni leiðir og úrræði til þess að hér verði í auknum mæli komið upp skólum og öðrum uppeldisstofnunum fyrir vangefið fólk. Það sem þegar hefir áunnizt fyrir ötult starf þessa merka félagsskapar, vísar veginn. Þeir foreldrar, sem hafa orðið fyrir því mótlæti, að eignast vangefin börn, sem á einhvern hátt eru þannig á sig komin, að þau eiga ekki samleið í venjulegum skólum með heilbrigðum börnum nágrannans, eiga heimting á aðstoð og samúð þjóðfélagsins, en sú aðstoð kemur þeim að beztu gagni, sé hún látin tala í glæsilegum framkvæmdum fyrir þetta málefni. Ég lýk nú senn þesesum hugleiðingum, en áður en ég hætti, langar mig að segja þetta. Þegar maður heimsækir heimangönguskóla vangefinna (externatskólann) og sér börnin að leik og starfi, þá er eins og maður sé innan um ósköp venjuleg börn í venjuleg- um skóla. Fas þeirra er frjálsmannlegt og óþvingað og hamingjusöm eru þau, það sá ég á viðbrögðum þeirra við leik og nám og hvernig þau umgengust kennara sína, gesti og aðra, sem á vegi þeirra urðu. Allt fannst mér þetta vera til sannrar fyrirmyndar. í þessum skólum ríkti gott og heimilislegt and- rúmsloft og ég var djúpt snortinn af því fagra kærleiksstarfi, sem þar var unnið. Meistarinn frá Nasaret sagði forðum: „Þat sem þér hafið gjört einum þessara minna minnstu bræðra, það hafið þér mér gjört.“ I heiminum eru, sem betur fer, margar líknar- og mannúðarstofnanir, sem starfa í anda þessara gullvægu orða Krists, og þar eru skólar vangefinna barna, — externat- skólarnir dönsku í fremstu röð. Hallgrímur Th. Björnsson. Forsíðumyndin er af Keflavíkurkirkju, tekin af Heimi Stígssyni við messugerð á jólum 1961. Heimir tók einnig myndirnar af fiskaðgerðarhúsun- um, sem eru í blaðinu. F A X I — 193

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.