Faxi - 01.12.1962, Blaðsíða 43
Bjarni Sæmundsson fiskifræðingur
Bjarni Sæmundsson er fæddur á Járn-
gerðarstöðum í Grindavík hinn 15. dag
aprílmánaðar 1867. Foreldrar hans eru Sæ-
mundur Jónsson bóndi á Járngerðarstöðum
og kona hans Sigríður Bjarnadóttir.
Bjarni kom í latínuskólann árið 1883,
útskrifaðist þaðan árið 1889 og sigldi þá
samsumars til háskólans í Kaupmanna-
höfn. Hann lagði stund á náttúrufræði og
landafræði og lauk embættisprófi í þeim
fræðum árið 1894. Þá fór hann heim til
Islands og gegndi þá embætti Þorvaldar
Thoroddsens við lærða skólann nokkur ár
og fékk það embætti, er Þorvaldur Thor-
oddsen sleppti því (1899).
Arið 1896 kvæntist hann Steinunni dótt-
ur Sveins kaupmanns Guðmundssonar frá
Búðum.
Snemma fór að bera á því að Bjarni væri
hneigður fyrir náttúrufræði. Meðan hann
var í latínuskólanum lagði hann stund á
grasafræði og safnaði talsverðu af jurtum
í átthögum sínum, en nú mun hann að
mestu leyti hafa lagt grasafræðina á hill-
una. 1 Kaupmannahöfn lagði hann einna
mest stund á dýrafræði og tók hana sem
aðalnámsgrein, enda var þá hin mesta
þörf á innlendum dýrafræðing.
Síðan heim kom hefur hann unnið að
dýrafræðisrannsóknum með miklum
dugnaði. Þekkingu á dýrafræði landsins
var mjög svo ábótavant og þar var nægi-
legt verkefni fyrir marga dýrafræðinga,
þó að þeir hefðu getað varið öllum tímum
sínum til dýrafræðirannsókna. Bjarni hef-
ur ekki getað helgað dýrafræðinni alla
krafta sína og hefur því orðið að takmarka
verksvið sitt meira en ella. Hann hefur
lagt mesta stund á að rannsaka fiskiteg-
undir landsins, bæði í sjó og vötnum. —
Hann byrjaði fiskirannsóknir árið 1896 og
hefur haldið þeim áfram síðan. Hann hef-
ur farið víðast hvar um landið og kynnst
fiskiveiðum í öllum helztu fiskiverum. Ar-
in 1903—05 var hann á sumrin með fiski-
rannsóknarskipinu Thor við strendur Is-
lands.
Auk fiska hefur Bjarni á ferðum sínum
rannsakað aðra dýraflokka og safnað all-
miklu af dýrum yfirleitt. Hann hefur ritað
merkilegar ritgerðir á útlendu máli um
ýmis lægri sjávardýr, en ekki mun lokið
enn rannsókn á öllum dýrasöfnum hans.
Bjarni stendur hverjum manni framar
að þekkingu á íslenzkum fiskitegundum
Bjarni Sæmundsson.
og íslenzkum fiskveiðum yfirleitt, og ef
honum auðnast að halda áfram eins og
hann hefur byrjað, mun starf hans verða
íslandi til heiðurs og hagnaðar, og rann-
sóknarsaga landsins mun geyma nafn hans.
Aðalstarf Bjarna verður að telja kennsl-
una. Til hennar ver hann mestum hluta
af kröftum og tíma. Hann rækir kennsl-
una með mikilli alúð og samvizkusemi og
þykir hinn bezti kennari. Hann lætur sér
annt um að sýna það, sem talað er um,
hvort heldur er jurtir, dýr, steinar, berg-
tegundir o. s. frv.
Bjarni hefur verið formaður hins ís-
lenzka náttúrufræðifélags og umsjónar-
maður safnsins síðan 1905. Hann hefur
unnið mikið og þarft verk í þarfir safnsins
og það fyrir afar litla borgun. Safnið hefur
vaxið mjög mikið í hans tíð, einkum eftir
að það fluttist í safnahúsið.
Ennfremur skal þess getið, að hann hef-
ur verið mörg ár í stjórnarnefnd landsbóka-
safnsins, og hið danska fiskiveiðafélag hef-
ur kosið hann til bréffélaga (corresp. Med-
lem).
Bjarni hefur ritað talsvert mikið og er
það mest um náttúrufræði Islands. Ferða-
sögur hans hafa komið árlega út í And-
vara. Eru þær fullar af fróðleik og kær-
komnar öllum, sem hafa áhuga á fiskiveið-
um. Þá hefur hann og samið merkilega
bók um íslenzka fiska á dönsku (Oversigt
over Islands Fiske i Skrifter udg. af Kom-
missionen for Havundersögelser). Æski-
legt væri að þessi bók kæmi út á íslenzku,
og þá ætti hún að vera aukin og bætt við
lýsingum fiskanna. Enginn efi getur á því
lcikið, að lýsing á íslenzkum fiskum með
myndum yrði kærkomin öllum fiskimönn-
um vorum og fleirum. Sá, sem þetta ritar,
tclur það skyldu Bókmenntafélagsins, að
gefa út slíka bók.
Þá má ennfremur geta um ýmsar rit-
gerðir náttúrufræðilegs efnis í Skírni, Eim-
reiðinni, skýrslu náttúrufræðifélagsins, og
í ýmsum blöðum (Islandi, Isafold, Ægi,
Lögréttu o. fl.).
I „Videnskabelige Meddelser fra den
Naturhistoriske Forening i Kjöbenhavn“
hefur Bjarni birt ýmsar ritgerðir um ný-
ungar, er rannsóknir hans hafa leitt í ljós.
Þá hefur hann og ritað um íslenzkar fiski-
veiðar í Atlanten, Dansk Fiskeritidende
og Fish Trades Gazette.
Af kennslubókum má nefna:
Agrip af náttúrufræði handa barnaskól-
um og kennslubók í landafræði handa
gagnfræðaskólum.
Helgi Jónsson (Óðinn, febrúar 1912).
Á LÉTTUM NÓTUM
Maður nokkur, vestfirðingur að uppruna,
dvaldi hér um órabil. Hann var mjög vest-
firzkur í tali og notaði æfinlega d, í stað ð, er
hann talaði. Þau ár er hann dvaldi hér ann-
aðist hann skipaafgreiðslu fyrir Eimskipa-
félag íslands. Eitt sinn er verið var að vinna
við einn „fossinn", og hann er nýkominn um
borð, tilkynnir verkstjórinn að það sé matur.
Þá verður vestfirðingnum að orði:
„Þad verdur þá best ad ég bordi um bord,
fyrst á annad bord ad ég er kominn um
bord.“
Það var eitt sinn á skútu, sem gerð var
út frá Keflavík, er verið var á heimsiglingu
eftir langa útivist að margir hásetanna sátu
í kringum borðið í lúkarnum og voru í fjör-
ugum samræðum. Aðal umræðuefnið var þó
hvaða matur þeim þætti beztur. Unglings
piltur 17 ára lá uppí koju og hlustaði á sam-
ræðurnar. Einn af mönnunum dásamaði mikið
allan súrsaðan mat. Sér þætti yfirleitt lang
bezt allt uppúr súru. Allt í einu gellur stráksi
við, sem var i kojunni, og segir við manninn:
„Þykir þér allt gott upp úr súru?“
„Já, já, yfirleitt allt upp úr súru,“ svaraði
maðurinn.
„Jæja, jettu þá andskotann upp úr súru,“
sagði þá stráksi og sneri sér til veggjar.
FAXI — 203