Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1962, Page 46

Faxi - 01.12.1962, Page 46
( " ~\ Utgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík. — Ritstjóri og afgreiðsiumaður: ICVX ir Hall6rímur Björnsson. Blaðstjóm: Hallgrímur Th. Björnsson, Margeir iL Æ Jónsson. Kristinn Keyr. Gjaldkeri: Guðni Magnússon. Auglýsingastj.: Gunnar Sveinsson. Verð blaðsins í lausasölu krónur 20,00. Alþýðuprentsmiðjan h.f. v__________________________________________________________________y Styrktarfélag vangefinna — hugsjón þess og starf Nú í haust flutti cg erindi í Málfundafcl. Faxi um þá hlið hinnar diinsku fræðslulög- gjafar, er veit að skóla- og uppeldismálum fyrir vangefið fólk. Nefndi ég erindi þetta OLNBOGABÖHN og er það birt á öðrum stað hér í blaðinu. Fjallar það um „Exter- natskólana" dönsku og aðrar uppeldisstofn- anh- þeim skyldar, en allt það mikla mann- úðar- og mcnningarstarf er fyrst og fremst að þakka þeim brautryðjendafélagsskap á þessu sviði, er ber nafnið „Landsforeningen for evnessvages vel“, sem er grundvallað á sömu hugsjón og hið íslenzka „Styrktarfélag vangefinna“, þeirri, að láta sér annt um þjóð- félagsþegnana umkomuminnstu, styðja þá og leiða til þroska og hamingju. Þetta er göfugt starf og góðum mönnum samboðið, og þegar allt kemur til alls og menn hafa áttað sig á hlutunum, þá mun slíkur félagsskapur hér eins og annars staðar vcrða óskabarn þjóðar sinnar, er metur mikils gildi hans og góðan tilgang. Nú fyrir stuttu síðan barst Faxa bréf frá Styrktarfélagi vangefinna í Reykjavík, þar sem vakin er athygli á starfsemi félagsins, sem á undanförnum árum hefir verið mikið og gott brautryðjandastarf, unnið af góðum og víðsýnum mönnum. Hefir félagið staðið í mjög fjárfrekum framkvæmdum við að byggja skóla fyrir vangefið fólk og er nú að hefja nýja sókn til fjáröflunar fyrir þetta málefni. Einn liður í þessari fjáröflun er happdrætti, sem nú er í fullum gangi. Dregið verður 23. desember. Ilappdrættismiðar eru til sölu hjá umboðsmönnum félagsins á yfir 100 stöðum víðsvegar um landið og þá að sjálfsögðu einnig hér á Suðurnesjum. Vill blaðið hér með cindregið skora á les- endur sína að ljá þessu góða málefni lið með því að kaupa happdrættismiðana, minnugir þess, að þeim peningum verður ekki í glat- kistu kastað, heldur verður þeim varið til þess að gefa umkomuminnstu þjóðfélags- þegnunum — hinum vangefnu börnum þjóð- arinnar — bjartari framtíð og betri heim. Séum við góðar manneskjur, og það viljum við öll vera, þá gefst hér öllum tækifæri til að sýna það í verki. Hallgrimur Th. Björnsson. Nætur- og helgidagalæknar í Keflavíkurhéraði í desember 1962. 13. des. Arnbjörn Ólafsson. 14. des. Björn Sigurðsson. 15. —16. des. Guðjón Klemenzson. 17. des. Jón K. Jóhannsson. 18. des. Kjartan Ólafsson. 19. des. Arnbjörn Ólafsson. 20. des. Björn Sigurðsson. 21. des. Guðjón Klemenzson. 22. —23. des.Jón K. Jóhannsson. 24. des. Kjartan Ólafsson. 25. des. Arnbjörn Ólafsson. 26. des. Björn Sigurðsson. 27. des. Guðjón Klemenzson. 28. des. Jón K. Jóhannsson. 29. —30. des. Kjartan Ólafsson. 31. des. Arnbjörn Ólafsson. Vakt hefst kl. 5 alla virka daga og er sami læknir á vakt til kl. 8 næsta morgun, nema á laugardögum, þá hefst næturvaktin kl. 1 e. h. og gegnir þá sami læknir. Vakttími er til kl. 8 á mánudagsmorgunn. Messur í Keflavíkurprestakalli um jól og áramót 1962—1963. Keflav.kurkirkja: Aðfangadagur: Aftansöngur kl. 6.15 síðd. Jóladagur: Mesa kl. 2 síðd. 2. jóladagur: Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd. Sama dag: Sk.rnarmessa kl. 5 síðd. Gamlársdagur: Aftansöngur kl. 8.30 síðd. Nýjársdagur: Messa kl. 5 síðd. Messur á elliheimilinu og sjúkrahúsinu verða auglýstar síðar. Innri-Njarðvíkurkirkja: Aðfangadagur: Aftansöngur kl. 4.30 síðd. Jóladagur: Messa kl. 5 síðd. Sunnudagur milli jóla og nýjárs: Barna- guðsþjónusta kl. 11 árd. Gamlársdagur: Aftansöngur kl. 6 síðd. Nýjársdagur: Messa kl. 2 síðd. Ytri-Njarðvík: 2. jóladagur: Barnaguðsþjónusta í nýja samkomuhúsinu kl. 2 síðdegis. Æskilegt væri, að þeir foreldrar, sem tök hafa á mættu með börnum sínum. Hvalsneskirkja 75 ára. Nú um þessi jól verður Hvalsneskirkja 75 ára, en hún var vígð á jólum árið 1887. Væntanlega kemur nánari frásögn af kirkj- unni síðar sér í blaðinu. V etrarsíld veiðarnar hófust að þessu sinni ekki fyrr en 20. nóv- ember, en þá höfðu loks náðst samningar í kjaradeilu þeirri, er staðið hafði frá því „gerðardómslögin" frá sumarsíldveiðunum féllu úr gildi, snemma í september. Suma fyrstu dagana var afli góður, en síldin stóð djúpt og var erfitt að ná henni í „næturnar“. Aðal veiðisvæðið var þá „undan Jökli“, en síðar færðist síldin nær og er nú, þegar línur r------------------------------------ H.F EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS AUKAFUNDI þeim í H.f. Eimskipafélagi Islands, sem halda átti föstudaginn 23. þ. m. samkvæmt auglýsingu félagsstjórnar, dags. 5. júní 1962, verður frestað til laugardags, 29. desember næstkomandi. — Dagskrá fundarins verður eins og áður er auglýst þessi: DAGSKRÁ : 1. Tillögur til breytinga á samþykktur félagsins. 2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Fundurinn verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík og hefst kl. 1,30 e. h. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hlutahafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 27. og 28. desember. Reykjavík, 20. nóvember 1962. STJÓRNIN — 206 — F A X I

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.