Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1962, Síða 61

Faxi - 01.12.1962, Síða 61
ÆGISÚTGÁF AN HURÐIR Undir málningu. Spónlagðar með eik Spónlagðar með teak. Spónlagðar með maghony. Einnig innihurðir í körmum, járnaðar. Teak, spónlagðar, plasteinangraðar. Stærðir: 90x206 cm. Stærðir: 81x206 cm. Rúðulistar — Gólflistar — Geirrefti. Karma- og gluggaefni. Gerið pantanir, stuttur afgreiðslufrestur. Kaupíélag Suðurnesja Kaupfélag Arnesinga. Sími 1505. Mínir menn — VERTIÐARSAGA eftir Stefcin Jónsson, fréttamann Kaflaheiti:: Tvær krónur sjötíu og fimm — Pétur tólfti og tóbakk- us konungur — Ó þessi neisti — íslands þúsund ár — Heimilis- hættir í Gandsbúð — Mannvit í knérunni — Eggjareikningur — Hann gefur sig til sá guli — Allar hænur hvítar — Maskínuskáld — 899 — Fast í botni — Ornaðu mér nú eina stund — Beðið eftir nýjum báti — Uthverft brim um allan sjó. Þetta er sérstæð bók um efni, sem hugstætt er íslendingum. Vertíðarsaga frá upphafi til lokadags í annasömum útgerðarstað. Lesandinn fylgist með sjómönnum á sjónum, lifir með þeirn aflatregðu og ógæftir, mokafla og stillur, óhöpp og erfiðleika. í land- legum ber margt á góma, menn fá sér í staupinu og gera út um ágreining sinn með hnefunum, kvenfólk er ekki alveg utan þessa leiks og margir skrýtnir fuglar spranga um sögusviðið. Stefán hefur áður skrifað bók, sent seldist upp á svipstundu og þótti sérstæð um alla gerð. Nú er sögusviðið afmarkaðra og drættirnir skýrari. Þetta er bók, sem allir lesa sér til ánægju. Hún á ekki sinn líka með íslenzkra bóka. Upplag fyrri bókarinnar þraut löngu fyrir jól og vænta má að ráðlcgra sé að tryggja sér eintak af þessari í tíma. ÆGISÚTGÁFAN Innihurðir Otihurðir „Ægisútgáfan" hefur nýverið sent Faxa sex nýjar bækur til umsagnar. Því miður var blaðið að verða fullsett, þegar bækurnar bárust og verður því ekki nema með örfáum orðum hægt að geta þeirra að þessu sinni. í fyrra birtust í Faxa umsagnir um bækur Ægisútgáfunnar, t. d. var því þar spáð, að „Krossfiskar og hrúðurkarlar" Stefáns Jóns- sonar mundu fá góða dóma. Sá spádómur rættist og bókin seldist upp á mjög skömmum tíma. Ein af hinum nýju bókum Ægisútgáfunnar, Mínir menn, er einnig eftir Stefán Jónsson fréttamann útvarpsins, og þarf þá naumast að spyrja um hvað hún muni fjalla. Auðvitað um sjómannslífið í þess óteljandi litbrigðum. Munurinn er bara sá, að í bókinni Krossfiskar og hrúðurkarlar voru hinir snjöllu og víð- frægu samtalsþættir Stefáns við sjómenn, út- vegsbændur og aðra forustumenn og öflun og nýtingu sjávarafurða, en þessi nýja bók hans er vertígarsaga úr lífi og starfi vina hans við sjávarsíðuna. Faxi spáði bók Stefáns í fyrra miklum vinsældum. Sú spá rættist. Hinni nýju bók má þó áreiðanlega gera meiri frama- vonir. Hún mun verða metsölubók og seljast upp á fáum dögum, svo fagurlega er þar á penna haldið og svo mikil er frásagnargleðin. Aðrar bækur Ægisútgáfunnar eru þessar: Astir og mannlíf, eftir dr. Marion Hilliard, reyndan kvenlækni, sem er ráðgefandi í öll- um vanda: ástalífi karls og konu, barna- uppeldi, einlífi og elli. Þessi bók mælir með sér sjálf, enda mun hún fljúga út og verða vinsæl gjafabók. Hún er skrifuð af mennt- aðri konu, sem í starfi sínu hefir kynnzt óteljandi vandamálum fólks á öllum aldri. Hún er fjörlega skrifuð og spennandi af- lestrar, án þess nokkurs staðar að vera gróf. Þriðja bókin, sem er ástasaga, heitir Hulin fortíð. Efni þessarar skáldsögu fjallar um mannrekald, sem rak á land í eyju nokkurri. Þar kynntist hann Fionu og föður hennar og í höndum þeirra varð hann að nýjum og gæfusömum manni. Þessi ástasaga er bæði heillandi og magnþrungin. Þetta er þýdd bók eftir Anne Bill. Fjórðu bókina þarf naumast að kynna. Það eru stríðsminningar Jóns Kristófers: Syndin er lævís og lipur, eftir hinn snjalla rithöfund, Jónas Arnason. Líf Jóns Kristó- fers hefir verið svo ævintýralegt, að slíks munu fá dæmi meðal núlifandi Islendinga, eins og segir á baksíðu bókarinnar. Jón Kristó- fer gekk ungur í Hjálpræðisherinn. Úr hern- um lenti hann í Hafnarstræti, úr Strætinu í siglingar, úr siglingum í brezka herinn og þaðan svo aftur í Strætið. En hvernig sem allt veltist gleymdi hann aldrei þeim kristin- dómi, sem hann hafði lært hjá gamalli konu í Fagurey á Breiðafirði. Fimmta bók Ægisútgáfunnar heitir: Margt gerist á sjó. Er hér um að ræða allmikið safn af sönnum sjóferðasögum, víðs vegar að. Frásagnir af drýgðum hetjudáðum, svaðilför- um og sjóslysum. Hér skulu nefnd örfá sögu- heiti úr bókinni: Heimtir úr helju, Strönd fimmhundruð flaka, Vaskur piltur, Hákarla- stríð upp á líf og dauða, Skipbrotsmennirnir á Dundonald, Blóð og ís, Skrítið ferðalag og Yfirgefna olíuskipið. Sjötta bókin, sem blaðinu barst frá Ægis- útgáfunni, er Söngur hafsins, eftir A. H. Rasmussen, sem er norskur, hefir skrifað 4 bækur um sitt ævintýralega sjómannslíf, en hann hefir siglt um öll heimsins höf. Hafa bækur hans aflað honum mikilla vinsælda í Noregi, enda munu fáir þar í landi hafa lifað jafn ævintýraríku lífi. I bókinni Söngur hafsins kveður nokkuð við annan tón. Hún er ekki saga ævintýramannsins Rasmussen, heldur skipsins Sari Marais, sögð af því sjálfu á svo snilldarlegan hátt, að einstætt þykir. Því miður gafst mér ekki tími til að lesa bókina, aðeins fletti henni. En vinur minn, sem hefir gott vit á bókum og hefir lesið hana, segir, að hún verði sér ógleymanleg. Hún sé í senn, raunsæ, dramatísk og heill- andi. Hér verður látið staðar numið. „Ægisút- gáfan“ á þakkir skilið fyrir þessar bækur. Annars held ég, að sú bókaútgáfa hafi aldrei gefið út neitt bókarusl, heldur eingöngu vandaðar úrvals bókmenntir, og að maður geti nokkurn veginn treyst því, að sé bókin gefin út af Ægisútgáfunni, þá eigi hún brýnt erindi til allra fróðleiksfúsra, hugsandi manna. Ritstj. F A X I — 221

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.