Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1973, Blaðsíða 6

Faxi - 01.03.1973, Blaðsíða 6
ÆSKULÝÐSDAGUR ÞJÓÐKIRKJUNNAR 1973 SAMKOMUHÚSIN ORDIN OF LITIL FYRIR ÞDTTTOKENDUR Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar var haldinn þann I 1. marz sl. Yfirskrift dags- ins var valin, Immanúel, sem útleggst: Guð með oss. Dagurinn hófst með barna- og ungl- ingaguðsþjónustu í Innri-Njarðvíkur- kirkju kl. 10.00. Síðan var guðsþjónusta í Ytri-Njarðvík, og þar flutti ung stúlka Sólveig Einarsdóttir, ávarp. Þriðja guðs- þjónustan var síðan í Keflavíkurkirkju. Þar fluttu tveir unglingar ávörp, þau Einar Páll Færseth og Ragnheiður Sveins- dóttir. í upphafi guðsþjónustunnar í Keflavíkurkirkju söng telpnakór í kór- dyrum og sóknarprestur vígði nýja kyrtla, sem þær klæddust nú fyrsta sinni og not- aðir vetða framvegis við helgiathafnir. Aðal hvatamanneskjan að þessum kyrtl- um var frú Sigríður Gísladóttir, sem gaf fé til kaupanna, sem sóknarnefndin síð- an bætti við. Um kvöldið var efnt til kristilegrar samkomu í Stapa. Séra Björn Jónsson setti samkomuna með stuttri bæn. Ung- menni fluttu trúarleg ávörp, þau Davíð Baldursson, Tómas Ibsen, Hafdís Hreið- arsdóttir, María Björk Reynisdóttir, frá Vestmannaeyjum, og Rene Perret, skipti- nemi frá Sviss. Fluttu þau mál sitt mjög skörulega, rétt eins og þjálfaðir prédik- arar væru á ferð, og eru ávörp þeirra birt hér í blaðinu. Meðal annarra atriða söng telpnakói úr Innri-Njarðvík undir stjórn Siguróla Geirssonar, sem einnig lék einleik á fagott. Gróa Hreinsdóttir lék einleik á píanó. Steinunn Karlsdóttir söng nokkur iög, og telpnakór og hljómsveit, sem sam- anstóð af félögum úr Lúðrasveit Kefla- víkur og strengjasveit Tónlistarskólans, fluttu nokkur lög, undir stjórn Siguróla Geirssonar. Einnig komu fram þarna Jónatan Dagsson, sem líkti eftir röddum þekktra söngvara, Jesus-fólkið skemmti méð söng, en Guðni Einarsson kynnti lögin. Ómar Ragnarsson skemmti með glensi og gamni úrýmsum áttum. Haukur Þórð- arson og Inga María Eyjólfsdóttir sungu með undirleik Agnesar Löve. „Lítið eit.t“ skemmti méð þjóðlagasöng. Að lokum var almennur dynjandi söngur. Öll atriðin tókust með miklum ágæt- um. Það eina sem á skyggði var, að hús- ið rúmaði ekki alla, sem sækja vildu sam- komuna, og urðu því margir frá að hverfa. Þátttakan í Keflavíkursókn á Æskulýðsdaginn er þegar búin að sprengja af sér öll samkomuhús í sókn- inni. Á hverju ári hefur aðsóknin farið vaxandi, að því er séra Björn tjáði okk- ur, síðan hann var upp tekinn fyrir tíu árum síðan. Einnig vildi hann koma á framfæri þakklæti til allra þeirra, sem unnu að störfum dagsins, og sérstaklega þó Siguróla Geirssonar, sem lagði mikið af mörkum í sambandi við tónlist og söng. Þá vildi séra Björn einnig þakka forráðamönnum Stapa fyrir þeirra fram- lag, og Skólafélagi Gagnfræðaskólans í Keflavík fyrir alla þá rækt sem það sýnir deginum, og öðrum, sem komu og skemmtu unga fólkinu. AVÖRP UNGMENNA FLUTT í STAPA „í orði Guðs leita ég styrks" 1 upphafi skapaði Guð himinn og jörð. Biblían, bók Guðs, segir okkur frá því, hvernig Guð skapaði manninn í sinni mynd. Og í byrjun Biblíunnar er sagt frá svo nánu sambandi milli Guðs og mannsins, að þeir töluðust við aug- liti til auglitis. Þá kom Guð í heimsókn til mannsins á hinni nýsköpuðu jörðu, og maðurinn sá Guð, og þeir ræddust við. Það hlýtur að hafa vreið dásamleg reynsla. Nú er tíðin önnur. Ekki þó vegna þess, að Guð vilji ekki birtast okkur, heldur vegna þess, að syndin hefur gert aðskilnað milli okkar og Guðs. t Jesaja 59, 1-2, segir svo: Sjá, hönd Drottins er eigi svo stutt, að hann geti ekki hjálpað, og eyra hans er ekki svo þykkt, að hann heyri ekki, en þáð eru misgjörðir yðar, sem skilnað hafa gjört milli yðar og Guðs yðar, og syndir yðar, sem byrgt hafa auglit hans fyrir yður, svo að hann heyrir ekki.“ Inga Maria Eyjólfsdórfir, Haukur Þórðarson og Agnes Löve 42 — F A X I

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.