Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1973, Blaðsíða 14

Faxi - 01.03.1973, Blaðsíða 14
Víkurbœr - vinsœll hafa varla undan að panta vörurnar Með hverju árinu sem líður verður Hafnargatan, mesta verzlunargata bæjar- ins, fjölskrúðugri á áð líta, hvað vöru- tegundir snertir, svo að hreinasti óþarfi fer að verða fyrir Suðunesjamenn að leita út fyrir héraðið í verzlunarerindum sínum. Nú, og jafnvel þótt varan fáist ekki við Hafnargötuna, þá eru til fleiri verzlanir á öðrum stöðum í bænum, er hafa sitt hvað eina á boðstólum, sem fólk vanhagar um. Á Hringbraut.inni, Tjarnargötunni og jafnvel Túngötunni, eru stórar verzlanir. Á hinum seinni árum er það mjög á- berandi, hvað yngri kynslóðin hefur hazl- að sér völl í viðskiptalífinu, sérstaklega við Hafnargötuna, og ganga óhræddir til samkeppni við hina stóru og rótgrónari í verzluninni, eins og kaupfélagið og hvað þeir nú annars allir heita. Þegar litið er á húsakostinn, sem þeir hafa yfir að ráða, dettur manni einna helzt í hug sag- an um Davíð og Golíat. Það sem einna helzt einkennir verzl- anir hinna ungu manna er, að þær eru flestar sérverzlanir; marka sér bás á af- mökuðu sviði, en reyna að hafa mikið úrval. Má þar nefna Eirík Hjartarson í Valhöli, með karlmannafatnað, Hjört Vilhelmsson, méð vinnufatnað, þá félaga Magnús Haraldsson og Jón Ólaf Jónsson, báðir þekktir knattspyrnumenn, og enda þótt í sitt hvoru félaginu séu, kemur þeim vel saman í sinni ágætu verzlun, Sport- vík, þar sem þeir hafa á boðstólum alls konar íþróttavörur og skófatnað. Ekki er langt síðan Georg V. Hannah fór að leggja sitt af mörkum, til að við gætum fylgzt vel með tímanum og skreytt okkur sjálfa eða híbýlin með silfurmunum og gæruskinnum. Kvenþjóðin hefur heldur ekki látið sitt eftir liggja. Verzlunin Eva hefur á boðstólum bæði kjóla og snyrti- vörur, og alveg ný verzlun er komin við Tjarnargötuna, Sallý, með velflest, sem prýða má konuna í fatnaði. Vegfarendur þeir, sem átt hafa leið um Hafnargötuna að undanförnu, hafa vafalaust heyrt glymjandi tónlist hljóma, þegar þeir nálguðust gatnamót Hafnar- götu og Tjarnargötu, og ó, jú, ekki ber á öðru, ný verzlun er búin að opna þar, og ber nafnið Víkurbær — sérverzlun fyrir ljósmyndavörar, tónflutningstæki, hljóm- plötur, útvörp og sjónvörp, og þar er einnig viðgerðraþjónusta. Verzlunarstjóri í hinni nýju og glæsi- legu verzlun er Einar Júlíusson, þekktur söngvari, og flestum hnútum kunnugur í þeim vörutegundum, sem í Víkurbæ er höndlað, eftir margra ára starf á Kefla- víkurflugvelli. Eigandi Víkurbæjar er Árni Samúelsson, fyrrum handknattleiks- snillingur. — Hugmyndin að þessari verzlun fæddist ekki fyrr en rétt um seinustu ára- mót. Húsnæðið losnaði, þegar leigjend- urnir fluttu verzlun sína, svo að mér kom til hugar að reyna að setja upp verzlun með þær vörur, sem við höfum hérna á boðstólum, enda var ekki úr mjög miklu að velja hér í Keflavík, fyrir þann stóra hóp, sem hefur áhuga fyrir tónlist og myndagerð. Að okkur tókst að opna svo fljótt sem raun ber vitni um, á ég þeim Guðmundi Sigurðssyni, rafvirkja, og Boga Pedersen, trésmið, að þakka. Þeir lögðu sig mjög í framkróka með að hraða verkinu og gera verzlunina sem snyrtilegasta úr garði, bæði hváð innréttingar og lýsingu snertir. Sérverzlun af þessu tagi á hiklaust fyllsta rétt á sér. Hin öru viðskipti, síðan Víkurbær opnaði, sanna það bezt, enda hefur salan farið frarn úr öllum vonum. Við höfum tæpast haft undan að panta inn vörur, en þess ber að gæta, að ég hef úrvalsmann hér við störf, Einar Júlíus- son, og á hann sinn þátt í velgengninni. Við höfum tekið upp þá nýbreytni, að hafa til leigu S mm kvikmyndasýninga- vélar og filmur, sem virðist mjög vinsælt. í myndavörudeildinni er allt sem nöfnum tjáir að nefna fyrir áhugamennina, bæði til myndatöku og myndgerðar. Við höf- um þegar selt t.d. í einu lagi, kvikmynda- Skyldi vera til svo nizk manneskja, að hún geti staðizt þó freistingu að verzla í Víkurbæ, eftir að hafa skoðað hinn eigulega varning, sem þar fæst? Varla. 50 — F A X I

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.