Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1973, Blaðsíða 19

Faxi - 01.03.1973, Blaðsíða 19
Hér eru Faxafélagar ó „jóla- fundi" 4. janúar sl. En mynd- in er ekki tekin eða birt vegna fundarins, heldur vegna jóla- trésins. Grenitré þetta, sem er rauðgreni, er úr Selsskógi, sem er skógraektarsvæði Skóg- ræktarfélags Grindavíkur. Svæðið liggur í norðurhlíðum Þorbjarnar og var þar fyrst plantað trjóm vorið 1957. Þetta tré var þó gróðursett og mun því vera 17 óra gam- alt, því tveggja óra mun plantan hafa verið, er hún var gróðursett. Tréð var höggvið 3,2 m ó hæð, og var síðasti órssprotinn 35 cm. — Fyrir síðustu jól var greni- skógurinn í Selsskógi grisjað- ur og felld um 20 tré. Nauð- syn var ó grisjun og hefði verið hægt að fella þarna um 100 tré, ón þess að skógurinn liði við það. Aðrar trjótegundir, svo sem þirki og fura, hafa einnig dafnað þarna vel. Skógurinn I Selsskógi og grenitrén undir Hóabjalla bera þes s Ijóst vitni, að hægt er að rækta skóga ó Suðurnesjum Til eigenda MWM-MANNHEIM Dieselvéla og annarra góðra við- skiptavina, sem fengið hafa afslótt á órsviðskiptum. „Nú er erfitt hjó smófuglunum" Sælnú, ekki þykir mér gaman að skrifa leiðinleg bréf og ekki þykir þér gaman að lesa þau — en stundum verður maður bara að horfast í augu við staðreyndirnar. Síðan 1966 höfum við haldið þeim sið, að reikna góðum kúnnum einhvern afslótt í órs- lok af fullklóruðum viðskiptum, hafi skilvísi °9 verzlunarkjör leyft. Þetta hefur sosum aldrei verið stór prósenta — enda hafa verzlunarkjör ekki leyft það, og bópurinn sem hefur fengið prósentuna, hefur heldur aldrei orðið stór — enda hefur skilvis- ir> aldrei verið neitt sérstakt þjóðareinkenni. ^Þetta síðasta er ekki nein sneið til þín privat, heldur athugasemd, sem ég fann í tímariti Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins). Við verðum nú að sleppa þessum ógæta sið — og það er sem sagt ekki vegna skorts ó skilvísi, því að þeir óskilvísu fengu aldrei neitt rabbat. Astæðan er „breytt" verzlunarkjör. Fyrstu 7 mónuði órsins hefur heildarrekstrarkostnaður okkar aukizt um 26% fró órinu óður, en ó- lagning ó varahluti hækkað um 2,8%. Dæmið gengur ekki upp. Nólega allar aðrar atvinnugreinar í land- inu, aðrar en verzlun og þjónusta, njóta opin- berrar umönnunar ó einn eða annan hótt og þó við viljum ekki fara að öfundast yfir þvi, getum við ekki neitað okkur um að minna ó, að verzlunin hefur ekki einu sinni samnings rétt um sin kjör. (Þeir skammta okkur frelsi, þeir skammta okkur brauð). Taktu þetta ekki nærri þér, vinur. Með beztu kveðju, Sturlaugur Jónsson og Co sf. „Furðuverkið" í Grindavík Þjóðleikhúsið braut blað í starfsemi sinni sl. laugardag, er það frumsýndi barnaleikritið „Furðuverkið" í hinu glæsilega félagsheimili Grindvíkinga, FESTI. Þetta er fyrsta frumsýn- ing Þjóðleikhússins utan Reykjavíkur. Eins og segir í leikskró að „Furðuverkinu", er það stefna Þjóðleikhússins i dag, að leitast við að nó til nýrra óhorfenda með nýju móti og veita óhorfendum utctn höfuðborgorinnor vaxandi þjónustu, og er það mjög ónægjuleg þróun. „Furðuverkið" sem samið er eftir hugmynd- um Kristínar Magnús Guðbjartsdóttur, með til- lögum fró Sigmundi Erni Arngrímssyni, Her- disi Þorvaldsdóttur og Höllu Guðmundsdóttur, sem jafnframt voru leikendur, tókst framúr- skarandi vel, — og nóði þrótt fyrir frumleik- ann, fljótlega út fyrir fjalirnar til ungu óheyr- endanna, sem ætlazt var til að tækju dólitinn beinan þótt i sýningunni. LEIÐRÉTTING [ siðasta þlaði slæddist inn í viðtalið við Ragnar Guðleifsson, meinleg villa, ofarlega ó bls. 25. A setningin að vera svona: „Rétt eftir stofnun félagsins var farið að ræða um bygg- ingu samkomuhúss í félagi við UMFK, enda mikill óhugi í stjórn þess fyrir því móli." Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar ó þessum mistökum. F A X I 55

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.