Faxi

Årgang

Faxi - 01.03.1973, Side 22

Faxi - 01.03.1973, Side 22
SKÚLI MAGNÚSSON: DRÖG AÐ SÖGU KEFLAVÍKUR Verzlunarstööum með yfir 300 íbúa gert skylt að eiga slökkvidœlu En skammt var stórra bruna á milli í Keflavík. í apríl 1912 verSur annar stór bruni. Þá brennur „Hótelið" svokallaða, sem stóð þar sem nú er fyrrverandi íbúð- arhús Stefáns Bergmann, ljósmyndara, næsta hús fyrir norðan Garðarshólma. Einnig bjó í húsinu Vilhjálmur Chr. Há- konarson, sem hér stofnaði lúðrafélag og áður er sagt frá. Rak hann verzlun á neðri hæðinni, en Stefán bjó á loftinu á- samt konu sinni. Varð eldurinn svo magnaður að við ekkert varð ráðið, og brann húsið, sem var úr timbri, upp á örskömmum tíma. Fór þarna margt for- görðum og m.a. allt plötusafn Stefáns, en hann hóf að taka ljósmyndir hér syðra skömmu eftir aldamótin 1900. Þótti þá mjög fínt að sitja fyrir hjá „photograpernum“, eins og þeir voru nefndir, sem tóku myndir hér áður fyrr. Hygg ég að nafn hússins, „Hótelið“, komi til af veitingasölu þeiri, er Odd- björg Magnúsdóttir og Ólafur Þorleifs- son ráku fyrir 1887, en það ár á gaml- ársdag, drukknaði Ólafur á bát er Þórð- ur Thoroddsen átti. Einnig fórst á sama skipi Einar Jónsson, faðir Guðjóns gamla á Vallargötunni, sem hinir eldri Keflvíkingar kannast vel við. Þau Odd- björg og Ólafur voru foreldrar Magnús- ar heitins í Höskuldarkoti í Y-Njarðvík. Á þessum árum var hér ekkert starf andi slökkvilið. Formlega kemur það ekki fyrr en 1913. Þá er gefin út „Reglu- gjörð fyrir eldvarna- og slökkvilið Kefla- víkurkauptúns“. En upphaf að skipulögðum eldvörn- um í Keflavík er að leita í stjórnarráðs- bréfi dagsettu 30. október 1911. Þar segir m.a.: „Samkvæmt lögum um bruna- mál frá 22. nóvember 1907, 22. grein, er öllum verzlunarstöðum, sem 300 íbú- ar eru í eða fleiri, skylt áð eiga a.m.k. eina slökkvidælu að stærð og gjörð eftir því sem stjórnarráðið tekur gilt, ásamt tilheyrandi slöngum og brunastútum“. Þar næst er lagt til að eftirfarandi slökkvitól séu keypt: Ein dæla nr. II B, á kr. 875, 100 vatnsskjólur á kr. 195, 3 brunaaxir með skafti á 27 kr., og 2 brunastjakar á kr. 27,50. Alls krónur 1124,50. Það vekur athygli, að ekki er farið fram á að méð í kaupunum sé stigi, eitt af mestu nauðsynjum hvers starfandi slökkviliðs. Sjálft ætlaði stjórn- arráðið að útvega slökkvidæluna frá fyrirtækinu Vereignigte feuerwehrgeráte- fabriken í Berlín. Umboðsmaður þess á íslandi var Knud Zimen, verkfræðingur og seinna borgarstjóri. Þann 3. apríl 1912 fer hreppsnefndin fram á sýsluábyrgð fyrir 1500 króna láni til kaupa á slökkvitækjum. Þá er og rit- áð til stjórnarráðsins í sama augnamiði. Leyfin fengust þegar. Var lánið tekið í Landsbankanum til 20 ára. Fyrsta af- borgun af því fór fram 28. september 1912, en þá sendi Þorsteinn oddviti bankanum kr. 47,58. En hvenær brunadælan svo loksins kom veit ég ekki með fullri vissu. Til er bréf frá Jóni Þorlákssyni, verkfræðingi og síðar ráðherra íhaldsflokksins, dagsett 21. des. 1915, þar sem segir, að dælan sé enn ókomin til landsins og þá vegna stríðsins. En Jón segir um dæluna: „að hún er prófuð samkvæmt umtali okkar (þ.e. við Þorstein oddvita), en mun ekki hafa veri'ð fyrirliggjandi í Kaupmanna- höfn, og því þurfi fyrst að útvega hana frá Þýzkalandi, sem hefur tekið langan Sigurður Þ. Jónsson tíma, og að senda hana yfir Bergen. Hún er ókomin ennþá, en sennilega kemur hún með einhverri af fyrstu ferðum frá Bergen, eftir áramótin“. Hins vegar er strax 1913 lagt til af brunamálanefnd (í henni voru: Sigurður Þorkell, verzlunarstj., Ágúst Jónsson, hreppstj., og Arnbjörn Ólafsson, kaup- maður) við hreppsnefnd, að lóð verði fengin hjá Duus til áð byggja á geymslu- skúr fyrir áhöldin. í bréfi nefndarinnar segir m.a.: „Hér með leyfum vér oss að biðja hina heiðruðu hreppsnefnd að láta nú hið allra bráðasta byggja skúr yfir slökkviáhöldin þar sem þau eru nú þegar húsnæðislaus“. Þetta orðalag bendir til þess að þau hafi þegar verið komin og stangast beint á við bréf Jóns Þorláks- sonar. Samkvæmt beiðni brunamálanefndar átti stærð slökkviskúrsins að vera 6x6 álnir á stærð og 5 og AVz álna veggir. Lóðin fékkst hjá Duusverzlun og skúr- inn var járnklæddur. Fardagaárið 1915- 1916 er slökkviliðið búið að fá stiga, því hann er talinn með í viðhaldskostn- áði það ár yfir tólin, sem var að upphæð kr. 23,85. Fyrsti slökkviliðsstjóri í Keflavík og um leið á Suðurnesjum, var Sigurður Þorkell Jónsson, verzlunarstjóri, sem oft hefur komið fyrir í þáttum þessum. Et skipunarbréf hans enn varðveitt: „Hér með tilkynnist yður, hr. verzlunarstjóri, að hreppsnefndin hér hefur leyft sér að skipa yður sem slökkviliðsstjóra í kaup- túninu Keflavík, til næstu þriggja ára, frá 1. janúar þ. árs að telja“. Annað bréf fékk Ólafur Ófeigsson í Edinborg: „Hér með tilkynnist yður, hr. verzlunarstjóri, að hreppsnefndin hefur kosið yður í brunamálanefnd í kauptún- inu Keflavík, til næstu þriggja ára, frá 1 • janúar þ. árs að telja, og um leið eruð þér skipaður varamaður yfir sama tíma ' forföllum slökkviliðsstjóra. Formaður nefndarinnar er Ágúst Jónsson, hrepp* stjóri.“ Framhald í næsta blaði 58 — F A x i

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.