Faxi - 01.05.1975, Qupperneq 6
Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavik
Kitstjóri: Magnús Gislason
lílaðstjóm: Jón Tómasson, Kristján Guð-
laugsson, Ragnar Guðleifsson
Auglýsingastjóri: Ágúst Matthíasson
Seitning, umbrot og offsetprentun:
Setjarinn hf. og Fjarðarprent
Fleira er skaðlegt lífríkinu en mengun
Daglega hljóma fyrir eyrum manns, í útvarpi og sjónvarpi, orðið m e n g u n.
Við lesum um mengun í dagblöðunum og þá hafa samtökin Landvernd ekki
látið sitt eftir liggja að kynna okkur hvað felast í orðinu m en g u n . En svo
segir í inngangi fyrsta rits samtakanna: „Mengun var skýrgreind með margs-
konar orðalagi, en aðalinntakið var þó það, að mengun væri öll blöndun efna
eða orku í umhverfið, sem hefði í för með sér skaðvænleg áhrif eða óþægindi
fyryir lífríkið eða einhverja hluta þess.“
Að sjálfsögðu erum við öll á einu máli um það, að forðast beri blöndun
slíkra efna í umhverfið, sem hafa skaðvænleg áhrif á lífríkið. En fleira er
lífríkinu skaðlegt.
Fyrir nokkru hlustaði ég á þingmann, sem gerði grein fyrir neikvæðri afstöðu
sinnj til byggingar málmblendiverksmiðju við Hvalfjörð. Varð niðurstaða hans
sú, að úrgangsefni verksmiðjunnar mundi spilla lífríki Hvalfjarðar og þar með
lífríki Faxaflóa, en þar ættu margir nytjafisktegundir uppeldisstöðvar sínar.
Ég hefi eðlilega ekki næga þekkingu á þessum málum, en mér segir svo hugur
um, að við ættum að fara varlega í þessum efnum, því reynist verksmiðjan
mengunarvaldur, er illa farið lífríki umhverfis hannar, og er hætt við, að úr
því verði aldrei bætt.
Rétt er það, að uppeldisstöðvar ýmissa fisktegunda eru í Faxaflóa. En þær
eru víðar. Þorskurinn hrygnir við suður- og vesturströndina og einnig nokkuð
við norðurströndina. En mest mun hrygningin vera á svæðinu milli Dyrhóla-
eyjar og Reykjaness.
Þorskseiðin berast með straumi sjávar og með vindi. Með Golfstraumnum
berast bau norður með vesturströndinni og austur með norðurströndinni.
Nú er okkur sagt, að þorskurinn verði kynþroska þega hann hefur náð vissri
stærð, eða um 70 cm. lengd. Staðreynd er að vöxtur þorskins er mjög mishraður
kringum landið og veldur þar mestu um hitastig sjávar. Stærstur er þorskurinn
við Suðurland en smæstur við Norður- og Austurland. Þessu til skýringar er
nefnt dæmi, að þriggja ára þorskur veiddur í Faxaflóa var 62 cm. á lengd eða
2100 grömm á þyngd, en jaíngamall þorskur veiddur í Reyðarfirði var aðeins
39 cm. á lengd eða 580 grömm á þyngd. Þar sem kynþroski fiskjar er háður
stærðinni, verður fiskurinn sem elzt upp við norður- og austurströndina miklu
seinna kynþroska en sá við suðurströndina.
í þessu felst skýringin á því hve mikið er um smáan fisk við Norðurland og
Austfirði.
Um langan aldur voru fiskveiðar mjög takmarkaðar á þessum slóðum á
vetrarvertíð, og allt fram yfir stríðslokin síðustu voru vélbátar frá þessum
landshlutum gerðir út frá verstöðvunum við Faxaflóa á vetrum. En á vor'n
og sumrin voru þorskveiðar stundaðar þar að nokkru með línu og handfærum
Á þessu hefup orðið breyting á síðustu áratugum, en sú breyting varð mest
á allra síðustu árum með tilkomu skuttogaranna á svo að segja hverja höfn
á Norðurlandi og Austfjörðum.
Flestir þessara togara veiða sinn afla á heimamiðum eða sem næst þeim.
Það er vitað, að á þennan hátt er ókynþroska fiski mokað upp í hundraða tonna-
tsli, — en um þetta er lítið talað og minna skrifað. Þó hefur fiskifræðingur varað
við þessu smáfiskadrápi.
Framhald á bls. 63
KYNNING Á
SVEITARSTJÓRNARMÖNNUM
Á SUÐURNESJUM
Alfreð Alfreðsson, sveitarstjórj í
Miðneshreppi er fæddur á ísafirði,
5. júlí árið 1933. Foreldrar: Lauf-
ey Maríasdóttir og Alfreð Georgs-
son lyf jafræðingur. Ólst upp á ísa-
firði, lauk gagnfræðanámi þar og
stundaði nám við Verslunarskóla
íslands og útskrifaðist þaðan árið
1953. Starfaði semskrifstofumaður
á Keflavíkurflugvelli um eins árs
skeið, réðst í þjónustu Útvegs-
banka íslands á ísafirði árið 1954
og starfaði þar til ársins 1962.
Fluttist þ átil Njarðvíkur og vann
skrifstofustörf á Keflavíkurflug-
velli uns hann var ráðinn sveitar-
stjóri í Miðneshreppi 12. sept. 1966
og hefur gegnt því síðan. Kvæntur
er Alfreð Maríu Frímannsdóttur
og eiga þau fjögur börn.
ÁRIMAO
HEILLA
Kjartan Ólafsson, Keflavík, var
85 ára 3. apríl.
54 — F A X I