Faxi - 01.06.1983, Blaðsíða 15
ár, ýmist sem sjómaður eða land-
maður á m/b Arna Geir eða m/b
Guðfinni.
Með Halldóri Brynjólfssyni
skipstjóra og útgerðarmanni í
Keflavík er Vikar í sjö ár, fyrst á
m/b Árna Geir, en eftir að Halldór
kaupir m/b Lóminn fer hann á
þann bát.
Vikar var 22 sumur á síldveiðum
fyrir norðan og austan. Var hann
eitt sumar á b/v Þórólfi sem Kveld-
úlfur gerði út til síldveiða, og
Keflavíkurbátum eftir það.
1968 verður Vikar að hætta sjó-
mennsku vegna heilsubrests. Hóf
hann þá störf hjá Skipasmíðastöð
Njarðvíkur þar sem hann vann
næstu sjö árin.
Vikar stundaði sjómennsku og
beitningar í nærfelt fjóra áratugi.
Sigurður Breiðfjö rð Olafsson
Sigurður Breiðfjörð Olafsson,
Njarðargötu 3, Keflavík, er fædd-
ur á Akurey í Breiðafirði þann 8.
mars 1911.
í Akurey vann Sigurður öll þau
störf sem til féllu til lands og sjávar
þegar hann hafði þroska og krafta
til. En 16 ára gamall flytur hann
með foreldrum sínum til Stykkis-
hólms, þar sem hann á síðan heima
fram yfir tvítugt, en þá liggur leið
hans til Reykjavíkur þar sem hann
átti heima næstu 2 til 3 árin.
Til Keflavíkur flytur Sigurður
1931. Var hann við beitningu fyrst
en síðan á sjónum. Var hann fyrst
á m/b Gullfossi með Guðmundi
Kr. Guðmundssyni, síðan á Sæ-
fara nreð Olafi Bjamasyni, þá á
Svaninum ineð Marteini Helga-
syni, en 1939 fer hann út í eigin
útgerö. Keypti hann þá m/b
Áfram sem hann hafði verið á ár-
inu áður með Guðjóni Einarssyni.
Þann bát keypti hann með Óskari
Einarssyni, sem þeir gerðu út sam-
an í 3 ár. Þá keypti hann ásámt
Sigfúsi Guðmundssyni m/b Bjarna
Ólafsson, sem þeir gerðu út saman
í 3 til 4 ár.
1947 hefst samstarf þeirra Sig-
urðar og Lárusar Sumarliðasonar,
Baldursgötu 8, hér í bæ. Þeirra
samstarf í útgerð stóð til 1975. Á
því tímabili gera þeir út nokkra
báta, má þar nefna m/b Leif
heppna, m/b Friðrik, m/b Ægi og
m/b Tjaldinn.
Frá 1939 er Sigurður skipstjóri á
þeim bátum sem hann gerði út, en
1975 hættir hann á sjónum en fer
að vinna í Gluggverksmiðjunni
Ramma, þar sem hann starfar enn.
Sigurður á að baki yfir fjörutíu
ára starf á sjónum.
HÁTÍÐAHÖLD SJÓ-
MANNADAGSINS 1983
sögn af sjómannsferli Baldvins,
langar mig til að geta atviks sem
hann henti. Baldvin var búinn að
vera níu vertíðir á m/b Huldu sem
Magnús Pálsson, kenndur við
Hjörtsbæ í Keflavík var eigandi að
og skipstjóri á. Baldvin var ráðinn
tíundu vertíðina. í janúar 1931
þegar farið skyldi í fyrsta róður
náðist ekki í Baldvin í síma, enda
var farið nokkru fyrr en ákveðið
hafði verið. Ástæðan mun hafa
verið sú, að yfir stóð deila milli
útgerðarmanna og sjómanna sem
gat leitt til verkfalls, vildi Magnús
því komast úr höfn áður en til
verkfallsins kæmi. Þegar Baldvin
kemur til Keflavíkur á tilsettum
tíma var báturinn farinn úr höfn.
Hafði veri ráðinn maður úr Höfn-
um í stað Baldvins. Til að segja
mikil örlög í fáum orðum, fór bát-
urinn til Reykjavíkur og þaðan í
róður, síðan hefur hvorki spurst
um örlög manna eða skips. Má hér
nota máltækið: Ekki verður feig-
um forðað eða ófeigum í hel kom-
ið.
1940 fer Baldvin að stunda sjó-
mennsku frá Vogum. Er hann þar
á ýmsum bátum s.s. m/b Haföld-
unni, m/b Sörla og m/b Muninn.
1958 hættir Baldvin á sjónum og
fer að vinna í landi hjá Halakots-
bræðum, þeim Magnúsi, Ragnari
og Guðmundi Ágústssonum, sem
hann starfar hjá allt til ársins 1975.
Vikar Ámason
Vikar Árnason, Sólvallagötu
28, Keflavík, er fæddur á Bjarnar-
stöðum í Mývatnssveit þann 5.
mars 1921.
Þegar hann er þriggja ára, flytja
foreldrar hans til Stokkseyrar og
þar á hann heima til 1946 að hann
llytur til Keflavíkur.
Vikar byrjar snemma að leggja
hönd á plóginn, því aðeins 12 ár er
hann farinn að vinna við þau störf
sem hann vann við síðan meðan
heilsan leyfði, því þá þegar er hann
farinn að stokka upp og beita línu.
Ekki er kaupið hátt, því hann fékk
aðeins eitt hundrað krónur fyrir
vertíðina, en þá var fullur vertíöar-
hlutur um sex hundruð krónur.
Hann vex upp í skugga heims-
kreppunnar, þegar fátæktin var
svo mikil á nær öllum alþýðu-
heimilum að jaðraði við hungur-
kjör.
Á árunum 1937 til 1940 er hann
við sjóróðra í Þorlákshöfn þá á m/
b Magnúsi Torfasyni. 194ltil 1945
er hann við báta í Sandgerði og
Keflavík. Var hann fjórar vertíðir
beitningamaður hjá útgerð m/b
Gunnars Hámundarsonar og þrjár
vertíðir, þar af tvær vertíðir sem
sjómaður, á m/b Ægi, sem Magn-
ús Magnússon og Jón Guöjónsson
frá Eyrarbakka gerðu út frá Sand-
gerði.
1946 hóf Vikar störf hjá Guð-
finnsbræðrum, Sigurþóri og Guð-
mundi og hjá þeim var hann í 17
Gamlir sjómenn heiöraöir. Frá vinstri Vikar Ámason, Baldvin Oddsson og Sigurður Breiöfjörð Ólafsson.
FAXI-155