Faxi - 01.02.1984, Blaðsíða 6
Ráðstefna um stofnun heilsustöðvar í Svartsengi:
STÓRMERKAR HUGMYNDIR
UM HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU
OG ATVINNUUPPBYGGINGU
— Framhald úr 1. tölublaði FAXA 1984 —
JÓN E.
UNNDÓRSSON
Mitt erindi er um Ferðamála-
könnunina sem gerð var 1972 -
1976. Eg mun rekja aðdraganda
Ferðamálakönnunarinnar og
greina frá markmiðum hennar og
niðurstöðum. Aðeins verðurstikl-
að á stóru varðandi könnunina í
heild sinni en ég mun reyna að
greina frá svokallaðri Krísuvíkur-
framkvæmd, sem allt eins gæti
heitið Svartsengisframvkæmd,
hefðu framkvæmdir við Svartsengi
verið hafnar á þeim tíma þegar
könnunin fór fram. Jafnframt
mun ég greina frá skýrslu Dr.
Maruice Lamarecne. Ég mun út-
skýra líkanið sem er hér staðsett og
var lánað af Kjartani Lárussyni,
forstjóra Ferðaskrifstofu ríkisins
og að endingu vil ég geta þeirra
íslendinga sem störfuðu með er-
lendu sérfræðingunum að gerð
Ferðamálakönnunarinnar.
Upphaf ferðamála-
könnunarinnar 1972— 1976
nær allt aftur til ársins 1964, eða
fljótlega eftir að Ferðamálaráð er
stofnað og rætt er um að gera áætl-
Jón E. Unndórsson, iðnráð-
gjafi Suðumesja.
un um framtíðarþróun íslenskra
ferðamála. Ejler Alkjær prófessor
við danska Verslunarháskólann
var fenginn árið 1965 til að gera
áætlun um þróun ísl. ferðamála.
Síðar voru teknar upp viðræður
við Sameinuðu þjóðirnar um
styrkveitingu til könnunar á efl-
ingu íslenskra ferðamála. Samein-
uðu þjóðirnar samþykktu próf-
essor Alkjær til að gera úttekt á
ferðamálum hér og koma fram
með hugmyndir um þróun þeirra.
Ef athugun Alkjærs yrði jákvæð
gæti hún orðið grundvöllur fyrir
styrkveitingu frá þróunarsjóði
Sameinuðu þjóðanna. Prófessor
Alkjær kom hingað til lands sum-
arið 1969 og tók saman skýrslu í
samvinnu við Ferðamálaráð og
skilaði henni til Sameinuðu þjóð-
anna í september sama ár, 1969.
í skýrslu sinni lagði Alkjær
áherslu á að lengja bæri ferða-
mannatímabilið sem væri allt of
stutt. Lagði hann til að ferðamála-
áætlunin væri fyrst og fremst mið-
uð við fjóra þætti þ.e. ráðstefnu-
hald, stangveiði í ám og vötnum,
uppbyggingu heilsuhæla og skíða-
íþróttir, þar sem þessir þættir væru
heppilegir til að lengja ferða-
mannatímann. Alkjær lagði síðan
til að gerð yrði 10 ára áætlun og að
til áætlanagerðarinnar þyrfti 140
þús. dollara styrk.
í ágúst 1971 samþykkti þróunar-
sjóðurinn að veita þennan áætlaða
styrk til gerðar ferðamannaáætl-
unar.
Til útboðslýsingar var fenginn
ferðamálasérfræðingur frá Sam-
einuðu þjóðunum, hr. J. Seletti.
Hann ferðaðist um landið, átti
fjölda funda með innlendum aðil-
um varðandi ýmsa þætti ferðamál-
anna og í samráði við Samgöngu-
ráðuneytið samdi hann útboðslýs-
ingu á fyrirliggjandi verkefnum.
í mars 1972 sendu Sameinuðu
þjóðirnar útboðsgögn vegna fyrri
hluta ferðamálakönnunarinnar, til
sex fyrirtækja sem valin voru úr á
milli 150 - 200 fyrirtækjum, sem
starfa að ferðamálarannsóknum
og á endanum var síðan valið til
starfsins bandarískt fyrirtæki
Checchi & Co.
Starfsmenn þessa fyrirtækis
komu hingað í ágúst 1972. Þeir
nutu aðstoðar íslenskra sérfræð-
inga sem störfuðu allan tímann
með erlendu aðilunum og skiluðu
skýrslum til ráðuneytisins um störf
sín sumarið 1973. íslensku sér-
fræðingarnir fóru síðan í náms- og j
kynnisferðir til nokkurra landa,
hver í sinni grein. / fyrrí skýrslunni
voru valin fjögur svið til frekari
könnunar (eins og Alkjær lagði til í
upphafi), þ.e. heita vatnið fyrir .
heilsuhæli og hliðstæða notkun;
vötn, ár og sjór fyrir stangveiði;
skíðaaðstaða; svo og aðstaða fyrir
ráðstefnur og ýmiss konar fundi. í
þessum fjórum sviðum voru gerð-
ar ákveðnar tillögur um, hvernig
stefna ætti að sem mestri aukningu
ferðamannastraumsins og voru til-
lögurnar byggðar á aðstæðum sem
fyrir hendi voru, hugsanlegum *
mörkuðum og almennum þróun-
armöguleikum.
Frá
Bílasölu Brynleifs
Mikiö úrval jeppa- og fólksbifreiða á
söluskrá.
Komiö og kynnið ykkur hiö fjölbreytta
úrval bifreiöa sem er á boðstólum.
Opiö alla virka daga frá kl. 9 - 19 og
laugardaga frá kl. 10 -16.
BÍLASALA BRYNLEIFS
Vatnsnesvegi 29a - Sími 1081 - Keflavík
38-FAXI