Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 7

Faxi - 01.12.1985, Page 7
ég man ekki neinn sult í minni bernsku, síður en svo. En nú var meiningin að riíja upp eitthvað um jólin, og þá kemur í hugann atvik sem gerðist haustið 1919. Nú kann einhver að hugsa sem svo: nú er karlinn farinn að ljúga í eyðurnar, þegar minnið brestur, en svo er ekki, ég man þetta mjög vel. Sumarið 1919 var ég vikadreng- ur á Utskálum, hjá þeim ágætu hjónum Ásdísi Guðlaugsdóttur Rafnar og séra Friðrik Rafnar. Það haust átti ég að helja skólagöngu, því haustið áður var ekki kennt vegna fátæktar hreppsins. Nú var það að ég fékk boð að koma út að Útskálum, og tala við frúna. Ekki gat ég látið mér detta í hug hvað frúin vildi mér, en á tilsettum tíma kom ég og gerði boð fyrir frúna, hún tók mér með kostum og kynjum, og skellti á mig remb- ingskossi, það mátti ekki minna vera, mikið varð ég vesældarleg- ur, og frúin bara hló. En erindið sem hún átti við mig var, að gefa mér stígvél og vatns- kápu, sem átti að vera sumar- kaupið, og þótti gott. En hún leiddi mig til stofu, og sýndi mér hlut sem mér þótti mikið til koma, en það var jólatré smíðað úr tré, heimatilbúið og smiðurinn hét Einar Sveinsson, þá orðinn gam- all maður, og átti heima í Prests- húsum, en átti kofa rétt austan við Garðhús, og var þar við smíðar, og gerði við og lagfærði kirnur og koppa sem biluðu hjá fólki. Um leið og ég sá þennan grip, sló þeirri hugsun í höfuðið á mér, að ég ætti .að smíða slíkan grip sjálfur. , ,Hugsað get ég um himin og jörð, en hvorugt smíðað, af því mig vantar efnið í það“, en það var lleira en efnisleysið sem háði mér, kunnáttuleysið kom líka til. En ég ákvað þarna á stundinni að reyna þetta. Ég spurði frúna hvar svona mislitur pappír væri fáanlegur, hún kvaðst hafa fengið hann í Reykjavík. ,,En ég á af- ganga, sem þú mátt eiga.“ Síðan opnaði hún skúffu, og tók þar upp allmikið af svona pappír, sagði mér að eiga, og reyna að smíða jólatré. Ég ákvað að ganga inn Bakka með sjónum, í íjörunni var oft margt að finna, og í þetta sinn hitt- ist vel á, því ég fann svo að segja allt, sem ég hélt að þyrfti til smíð- innar. Þá er ég kom heim, fékk ég mömmu skóna og kápuna og varð hún mjög glöð, og taldi að nú væri ég vel birgur fyrir veturinn, en ég var með allan hugann við gripinn ósmíðaða, og sinnti engu um káp- una og skóna. Nú tók ég að fást við tréð, og svo sannarlega voru handtökin klaufaleg en ég held að segja megi að það hafi lagast með æfingunni. Smíðastofan var svolítil kompa innaf bæjardyrum, og ljósið var kertisstubbur, svo sannarlega var það ekki hættulaust. Eg var mjög eldhræddur, og var því mjög vak- andi fyrir þeirri hættu, sem af þessu gat skapast. Ég varð að hafa mig allan við, að ljúka smíðinni fyrir jól, en það hafðist. Á þessu jólatré voru 9 kerti og þau lagði mamma til. Ég átti enga peninga. Nú eru liðin 66 ár síðan þetta var, og það er ég viss um, að aldrei hefur meiri fögnuður rflct yfir jólatré en þarna í litlu baðstofunni á Sigríðarstöðum fyrir 66 árum. Jólanóttin Lag: Erla góða Erla Stari ég á stjörnu á stilltri jólanótt. Engir heyrast hljómar því hér er allt svo rótt. Fyllist lífið frelsi og friði, gleði’ og þrótt. Blikar stjarnan bláa svo blítt á sinni leið, hrellda vill hún hressa og hrinda allri neyð, blítt hún öllum brosir svo brautin verði greið. Hljótt er allt í heimi á helgri jóla-stund. Norðurljósin loga svo Ijóma jjöll og sund. Glóir allt í geislum sem gleðja dapra lund. Berast unaðs-ómar frá alheims dýrðar höll. Ljómar allt af Ijósum, svo ljóma slcer á völl. Fyllist allt af friði svo fagnað getum öll. Ingvar Agnarsson Það er ekki fyrir fátækling að lifa, ef hann þarf að kaupa heilsuna hjá lækninum og vitið hjá lagamanninum. 0 — Ég hefi, segir nafnkennd- ur rithöfundur nokkur, þekkt margar stúlkur, sem aldrei þorðu að koma á hestbak af því að þær voru svo hræddar um að hesturinn mundi fælast með sig og fella sig af baki, aörar hefi ég vitað varast að fara á sjó, af því þær héldu að bátnum mundi hvolfa undir sér, í hvað góðu veðri sem væri ogenn hefi ég vitað kvenfólk svo huglítið, aöþað forðast að koma útþegar dögghefir verið ájörðu, til þess að væta sig ekki í fæturna, en aldrei hefi ég vitað stúlku bresta áræði til að giftast, og er það þó vissulega meiri áhætta en allt hitt. 0 í enskum vitfirringaspítala var vitfirringunum einu sinni haldin veisla. Þeir höguðu sér óaðfinnanlega, segir sú sem þetta hefur í frásögu fært. Það var einungis eitt sem sýndi að ekki var allt með felldu. Það varð enginn þeirra drukkinn í veislunni. 0 Sjómaður nokkur, sem átti svarra fyrir konu, varð einu sinni fyrir því að vofa ásótti hann um nótt. Hann varð dauð- skelkaður, en herti upp hug- ann um síðir og segir, í eymdar- ómi samt: Hver ertu? Sértu engill, er líklegt að þú gjörir mér ekkert illt, en sértu fjand- inn sjálfur, þá vona ég að þú farir ekki að áreita hann mág þinn, því ég á hana systur þína fyrir konu, eins ogþú veist lík- lega. 0 Það er ekki auðlært að týna niður því sem ljótt er eða rangt. Margur vill miklu heldur láta draga úr sér tönn heldur en einhverja heimskuna eða hleypidóminn, það er oft næsta óþakklátt verk hvort tveggja. FAXI 319

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.