Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Síða 10

Faxi - 01.12.1985, Síða 10
< Forsaga að byggingu Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraðs Hugmyndin að byggingu Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishér- aðs hefur án efa verið ofarlega í hugum Suðumesjamanna, löngu áður en til framkvæmda kom. En kveikjan að framkvæmdinni var sú, að stofnuð var Rauðakross- deild Suðurnesja árið 1942, með það markmið að safna fé og vinna að byggingu sjúkrahússins. Fram- lög til byggingarinnar voru farin að berast að vori 1943. Þá afhentu Jóhann Guðnason og kona hans kr. 10 þúsund í spítalasjóðinn og frá Kveldúlfi h.f. barst sama íjár- hæð. Þá var ákveðið að láta söfnunar- lista liggja frammi hjá bátaeigend- um, sem trúlega hafa verið álitnir fjársterkustu aðilarnir. Einnig var á dagskrá að hrinda í framkvæmd almennri fjársöfnun. Sóknar- presturinn sr. Eiríkur Brynjólfs- son gaf í árslok 1943,5 þús. krón- ur og vegna þeirrar gjafar var stofnaður sérstakur sjóður innan spítalasjóðs, sem með vaxtatekj- um átti að aðstoða fjárvana fólk í Gerðahreppi, sem þurfti á sjúkra- húsvist að halda. Mikill áhugi virðist hafa verið hjá almenningi á þessari söfnun og þegar safnast höfðu kr. 125 þúsund, var ákveðið að hefjast handa við byggingu sjúkrahúss- ins. Aðalhvatamaðurinn að stofnun R.K. deildarinnar og öðmm byrj- unarframkvæmdum var Karl G. Magnússon héraðslæknir (sjá Karl G. Magnússon héraðslœknir vann ötullega að framgangi sjúkra- húsmálsins. tímarit Faxa í marz 1944 ávarp K.G.M.). Sjúkrahúsið var hugsað og teiknað sem héraðssjúkrahús og raunar var fljótlega eftir að sjúkrahúsið tók til starfa sótt um deildarskiptingu og að sjúkrahús- ið yrði viðurkennt sem héraðs- sjúkrahús. Leitað var til hrepps- nefndar Keflavíkur og lofaði hún að styrkja bygginguna fjárhags- lega og taka að sér rekstur sjúkra- hússins ásamt þeim hreppum læknishéraðsins, sem ættu eftir að standa að því. Frumhugmynd um stærð sjúkrahússins var, að það rúmaði 21 sjúkling og var þá allur aðbún- aður fyrir starfsfólk mun rýmri en síðar varð. Hornsteinn að húsinu var lagður 12. sept. 1944 af Sveini Björns- syni, þáverandi forseta, við hátíð- lega athöfn. Heildarfjármagn, sem Rauða- krossdeildin safnaði, mun hafa verið um 150 þúsund krónur, sem virðist hafa nægt til að steypa hús- ið upp. En þegar fé deildarinnar var þrotið hafði hreppsnefnd Keílavíkur forgöngu um að ræða framhald byggingarmála við aðra hreppa innan læknishéraðsins. Undirtektirnar voru misjafnar og töldu sumir hrepparnir sig þannig í sveit setta, að íbúarnir gætu ekki haft þau not af sjúkra- húsinu, sem til var ætlast. Endan- lega ákváðu hreppsnefndir Kefla- vikur, Hafna og Njarðvíkur, en þar höfðu búsetu fullur helming- ur íbúa í læknishéraðinu að taka að sér áframhaldandi byggingu sjúkrahússins og einnig að ábyrgjast rekstur þess. Var nú byggingunni haldið áfram, þar til hún var næstum fokheld. Oskuðu þá þessar þrjár hreppsnefndir eft- ir úrskurði ráðherra um, að hinir hrepparnir tækju þátt í fram- kvæmdum. Úrskurður ráðherra var á þann veg að allir hrepparnir bæru ábyrgð á byggingu og rekstri sjúkrahússins, þó þannig að Grindavík og Vatnsleysuströnd bæru ábyrgð að hálfu vegna legu byggðarlaganna. Þó lægð hafi verið í framkvæmd- um á þessu tímabili, lögðu þó ekki allir árar í bát og Kvenfélag Keflavíkur hóf fjárscifnun til kaupa á röntgentækjum. HITAVEITA SUÐURNESJA óskar Suöurnesjamönnum gleöilegra jóla og farsœldar á komandi ári, og þakkar viðskiptin á árinu sem er aö líða HITAVEITA SUÐURNESJA BREKKUSTÍG 36, NJARÐVÍK 322 FAXI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.