Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 11

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 11
Hreppamir taka við Fyrsti fundur í sjúkrahússtjórn var haldinn 9. marz 1947 og þar var undirritaður samningur milli þeirra sjö hreppa, er aðild áttu að byggingarframkvæmdum og þar ákveðið, að rekstrarkostnaður sjúkrahússins skiptist á hreppana í réttu hlutfalli við íbúatölu. Þó þannig að Grindavíkur og Vatns- leysustrandarhreppur bæru kostnað að hálfu en Miðnes- Hafna- og Gerðahreppur stofn- kostnað að 3/ en rekstrarkostnað að fullu. Ákveðið var að sjukra- flutningar færðust á rekstur sjúkrahússins. Ákveðið var að sjúkrahúsið skyldi vera sameiginleg eign allra hreppa Keflavíkurlæknishéraðs í sama hlutfalli og að ofan greinir og með sömu skilyrðum til endur- bóta og viðhalds. Einnig var ákveðið að stjórnin réði framkvæmdastjóra, sem ann- aðist bókhald, daglegan rekstur, innheimtu gjalda og greiðslur skulda. Einnig að hafa eftirlit með eigninni og stjórna málefnum stofnunarinnar í samráði við sjúkrahússtjórn. Á næsta fundi var kosinn fyrsti formaður Sjúkrahússtjórnar, Ragnar Guðleifsson. í fram- kvæmdanefnd voru kosnir Karvel Ögmundsson, Björn Finnbogason og Ragnar Guðleifsson, og var nefndinni falið að leita eftir láni allt að kr. 700 þúsund. Á þessum tíma höfðu allar framkvæmdir stöðvast vegna fjárskorts, en smá- vegis íjármagn náðist og því var ákveðið að heija framkvæmdir að nýju vorið 1947. Verkið tóku að sér Einar Norðfjörð, Bergsteinn Sigurðsson og Guðjón Hjörleifs- son. Verkstjóri var ráðinn Krist- inn Jónsson. Miklir fjárhagsörð- ugleikar voru vegna skorts á láns- fé og sömuleiðis tafði skömmtun á vörum framkvæmdir. Á fundi sjúkrahússtjórnar 21. mars 1948 var lagt fram gjafa- og afsalsbréf frá Rauðakrossdeild- inni fyrir sjúkrahúsbyggingunni og á þessum sama fundi var tekið á móti framlagi frá Gullbringu- sýslu, 25 þúsund kr. gegn tvö- földu framlagi hreppanna. Um vorið 1949 hafði byggingin verulega þokast áfram og þá feng- ust loks langþráðir peningar, lán að upphæð kr. 300 þúsund. Þetta sumar urðu töluverðar umræður um það hvort lyfta skyldi vera í sjúkrahúsinu. Að lokum var ákveðið að breyta bygg- ingunni þannig, að hægt væri að koma fyrir lyftu. Þetta sama sum- ar bauðst Katólska reglan til að taka að sér rekstur sjúkrahússins eða að leggja til starfsfólk við stofnunina. Þessu virðist hafa ver- ið hafnað því að engar bókanir um viðræður eru finnanlegar. Verkinu miðar hægt Á árabilinu 1949—52 miðar framkvæmdum við bygginguna hægt. í tímaritinu Faxa 4. 1952 reifar Ragnar Guðleifsson stöðu mála (tilv.l.) ,,Árið 1952 mátti heita, að byggingin væri fullgerð. Málningu utan og innanhúss var lokið og verið var að leggja dúk á gólf og röntgentæki og skurðborð var komið. Heildarkostnaður þá varorðinkr. 1.250.000.00. Varþá talið að 0.8-1 milj. kr. skorti, til að sjúkrahúsið gæti hafið störf. Rætt var við Gísla Sigurbjörns- son, forstjóra í elliheimilinu Grund, sem þá var á förum til Þýskalands, og hann beðinn um aðstoð við að semja um kaup á öll- um búnaði fyrir sjúkrahúsið. Tókst að ná samningum við fyrir- tækið Siemerz, og um greiðslur samdist þannig, að við undirritun samnings greiddust 10% kaup- verðs og síðan átta jafnar afborg- anir á sex mánaða fresti." Samkvæmt bókun sjúkrahús- stjórnar gekk erfiðlega að fá lánsfé til þessara kaupa. Þann 26. apríl 1952 var sjúkra- húsið leigt flugvallarstjóra ríkis- ins fyrir flugfarþega, ef tafir yrðu á flugi, fyrir kr. 10 þús. á mánuði. Ofangreind leiga miðaðist við, að húsið yrði nýtt 15 sólarhringa á mánuði. Þessi leiga féll úr gildi 21. júlí sama ár og þá þegar óskaði Fé- lagsmálaráðuneytið eftir því að fá húsið á leigu, fyrir verkamenn á Keflavíkurílugvelli. Því tilboði var hafnað. Sjúkrahússtjórn ræddi þann möguleika að því er virðist vegna íjárhagsörðugleika að afhenda ríkisstjórninni sjúkrahúsið til eignar með vissum skilyrðum um rekstur. Var Ragnari Guðleifssyni og Karvel Ögmundssyni falið að ræða við ríkisstjórnina um þetta mál. Á næsta fundi sjúkrahússtjórn- ar þann 14. ágúst 1952 voru mætt- ir fulltrúar ríkisstjórnarinnar þeir Hans Andersen og Hallgrímur Dalberg í þeim erindum, að fá sjúkrahúsið leigt fyrir starfslið á Keflavíkurílugvelli, en því erindi var vísað frá. Enn var falast eftir sjúkrahúsinu fyrir verkamenn þann 10. feb. 1953, og voru það Sameinaðir verktakar í Reykjavík, sem ósk- Bjarni Sigurdsson, fyrsti yfirlœknir sjúkrahússins. uðu eftir leigunni til 6 mánaða minnst. Félagsmálaráðuneytið að fenginni umsögn Heilbrigðis- málaráðuneytis lýsti sig sam- þykkt, að húsið yrði leigt. Um nokkurra mánaða bil hér á eftir verður aðeins að geta í eyð- urnar, þar sem ekkert finnst um málið skrifað og fundir ekki haldnir. En þarna virðast sjúkra- hússtjórnarmenn hafa spyrnt við fótum og snúið sér ákveðið að því að opna húsið sem sjúkrahús. Það kemur fram á næsta fundi 30. sept. 1953 að auglýstar hafi verið lausar til umsóknar stöður yfirlæknis, yfirhjúkrunarkonu, ráðsmann og matráðskonu, og þá þegar var búið að ráða Bjarna Sig- urðsson yfirlækni að sjúkrahús- inu frá 1. nóvember 1953. Vígsla sjúkrahússins Þann 18. nóvember 1954 var loks stóra stundin runnin upp þ.e. vígsla Sjúkrahúss Keflavfkur- læknishéraðs. Vígsluna fram- kvæmdi sóknarpresturinn séra Björn Jónsson. Margir tóku til máls og einkenndust ræðurnar af einhug ræðumanna til þessa merka málefnis sem nú loks var komið í höfn. Strax við vígsluna var búið að breyta þremur herbergjum, sem ætluð voru starfsfólki í sjúkrastofur, þannig að sjúkrahúsið rúmaði 25 sjúklinga og auk þess var ein sjúkrastofa gerð að fæðingarstofu (tímarit Faxi des. 1954.. tilv. III). Fullbúið kostaði sjúkrahúsið kr. 2,2 millj. þar af frá Rauðakross- deildinni kr. 150 þúsund og aðrar FRAMHALD Á BLS. 390 Póst- og símamálastofnunin í Keflavík auglýsir Þeir símnotendur sem óska eftir breytingum í símaskrá, svo og þeir sem óska eftir skráningu aukanafna, veröa aö vera búnir aö því fyrir 21. desember 1985 svo aö ný nöfn og allar breytingar komist inn í símaskrá 1986. FAXI 323
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.