Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Síða 12

Faxi - 01.12.1985, Síða 12
Olafur Oddur Jónsson: Að verða gamall glaður í i. Lífið er Guðs gjöf. Allt líf er jafn mikils virði í augum hans. Sam- kvæmt kristinni trú elskar Guð alla jafnt, hvort sem þeir eru ungir eða aldnir, heilbrigðir eða sjúkir, hvítir eða svartir og alveg óháð því hvort þeir verða andlega eða lík- amlega hressir í ellinni, hafa skerta hreyfigetu eða eru bundnir í hjólastól. Nú er vitað um gamalt fólk og jafnvel sjúkt sem lifir einangruðu lífi án þess að fá þá aðstoð og hjúkrun sem það hefur þörf fyrir. Það er því þörf á að rifja upp krist- in lífsgildi. í allri þeirri umíjöllun sem farið hefur fram um málefni aldraðra hafa þeir sjaldan verið látnir segja frá reynslu sinni. Sú hætta er ávallt fyrir hendi að við setjum þá aila á sama bás og aidraður þýði fyrst og fremst í huga okkar yngri að vera dæmdur úr leik, verða fyrrverandi, eins og komist er að orði. En við vitum að aldraðir eru ólíkir innbyrðis og hafa misjafnar þarfir og ólík viðhorf. Margir for- ystumenn eru á áttræðisaldri og í fullu fjöri. Meðaialdur ísiendinga er með því hæsta sem um getur í veröld- inni. Það er mikið þakkarefni. Konur verða að jafnaði tæplega 80 ára og karlmenn tæplega 74 ára. Árið 1920 voru íbúar á íslandi 70 ára og eldri 4100, eða 4,3% þjóðarinnar. Kröfur til lífsins gæða voru litlar og þjóðin að mestu bændaþjóð. Árið 1970 voru íbúar 70 ára og eldri 12,100, eða 6% þjóðarinnar. Kröfurnar höfðu vaxið á öllum sviðum þjóðlífsins og atvinnulífið hafði breyst til muna. Þéttbýliskjamar höfðu myndast og þarfir fólks voru nú mjög ólíkar því sem áður hafði verið. Árið 1980 vom íbúar landsins 70 ára og eldri orðnir 15,600, eða 7% af þjóðinni og árið 1990 er gert „Skák og mát“ Mínum kröftum mér ei tekst að leyna, Við mont og hroka er ég alveg laus. Ég hefi tekið grfðarstóra steina, í sterka arma og lyft þeim yfir haus. Og þetta skyldi enginn maður efa því ég er ekki eins og mannlegt fólk. Ég er einn af þeim, sem kann að kreppa hnefa og kreist ég gœti úr heljarbjörgum mjólk. Kristján Theodórsson. Kristján Theodórsson, ættaður úr Húsavík, nú búsettur í Reykjavík var margar vertíðir hér suður með sjó, einkum í Sandgerði. Þá var hann vel þekktur fyrir snjalla taflmennsku, háði m.a. fjöltefli með góðum árangri. Hann er bróðir Hjálm- ars Theodórssonar, sem hér bjó um hríð og varð þá Suður- nesjameistari í skák og landsliðsmaður á þeirri forsendu. Á Suðurnesjaámm Kristjáns hefur hann sjálfsagt verið snjall vísnasmiður, þó að ekki vissi Faxi af því. Þegar þessi snjalla háðvísa barst Faxa þótti rétt að sýna fram á að Kristján gat sagt fleira en skák og mát. ráð fyrir að íbúar 70 ára og eldri verði 18,400, eða um 8% þjóðar- innar. Þessi þróun er svipuð annars staðar á Vesturlöndum. Um alda- mótin voru 7% þýsku þjóðarinnar yfir 60 ára, 1964 voru 16.4% þjóð- arinnar yfir sextugu og 1984 var áætlað að 18.5% þjóðarinar væri yfir 60 ára aldri. Aðeins 8% af þessu fólki lifir innan fjölskyldu- banda og yfir helmingur atvinnu- lausra manna í Þýskalandi eru yfir 55 ára aldri. Hér heima hafa aftur á móti mjög margir aldraðir stundað vinnu. í könnun sem Félagsmála- ráð Reykjavíkur lét gera 1974-75 um atvinnumál aldraðra kom í ljós að í aldursflokknum 60-69 ára stunduðu 74% vinnu utan heimilis, í aldursflokknum 70-79 ára 28%, og 18% af þeim sem voru 80 ára og eldri stunduðu vinnu utan heimilis. Það er alveg ljóst að stjórnvöld- um hefur verið kunnugt um vax- andi vanda aldraðra án þess að bregðast nógu skjótt við. Þessar upplýsingar hafa legið fyrir. Eink- um er vandi aldraðra sjúkra átak- anlegur. íslendingar geta beðið með vegagerð en þeir geta ekki slegið á frest skyldum sínum við aldraða. II. Verl<alokin hafa reynst mörgum hjarta Ræða flutt í Keflavíkurkirkju á degi aldraðra erfið. Menn glata stöðu sinni í samfélaginu, verða fyrrverandi, og fá tilfinningu fyrir því að vera einskis virði. Ástæðan er sú að þjóðfélagið metur menn eftir því hvað þeir leggja til þjóðfélagsins en ekki fyrir það eitt að vera menn, skapaðir í Guðs mynd. Samfara þessu hafa fjölskyldu- böndin veikst. Fullorðna fólkið býr út af fyrir sig og margt hefur ekki kynnst tómstunda- og félags- störfum. Margir einangrast er þeir hætta að vinna og einmanaleiki og fé- lagslegt öryggisleysi kallar á meiri þjónustu samfélagsins. Heimilis- hjálp er víða rekin með góðum árangri m.a. hér í Keflavík. Hún er veitt öldruðu fólki sem getur að einhverju leyti hugsað um sig sjálft, en þarf ekki að fara á sjúkrahús, eða er að ná sér eftir veikindi, sjúkralegu og slys. Menn geta nú vænst þess að lifa 25 árum lengur en áður gerðist. En langur lífaldur helst þó engan veginn í hendur við aukið gildi lífsins og öryggi á efri árum. Það verður að segjast eins og er að þjóðfélagið hefur sofið á verðinum einkum og sér í lagi varðandi aldraða sjúka. Það er nú algengt að fólk kvíði elliárunum og óttist þau meira en dauðann. Fyrir nokkrum árum var gerð bresk sjónvarpsmynd sem nefnd- ist: ,,Að eldast á Ítalíu og í Sví- 324 FAXI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.