Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1985, Side 16

Faxi - 01.12.1985, Side 16
Kveðjuathöfh - veglegt hóf Sunnudaginn 27. október sl. var kveðjuathöfn í Grindavíkurkirkju. Séra Jón Arni Sigurðsson, sem þjónað hafði Staðarprestakalli frá 1948, var að láta af störfum. Kirkjan og safnaðarheimilið var þéttsetið kirkjugestum. Séra Jón Árni flutti þar ágæta kveðju- ræðu sem hér fer á eftir. Við þetta tækifæri var Grindavíkur- kirkju færð lágmynd af Sigvalda Kalda- lóns að gjöf. Myndina gerði Ríkharður Jónsson, myndhöggvari. Ragnar heit- inn Asgeirsson hafði átt þessa mynd en gefið hana Evu dóttur sinni fyrir um 25 árum. Eva taldi rétt að Grindavíkur- kirkja ætti myndina, sem gerð var á Grindavíkurárum tónskáldsins, en hann var mikill kirkjunnar maður og mun hafa aðstoðað þar við kirkjusöng í for- föllum Arna Helgasonar organista, hafi hann orðið veikur. Eva Ragnarsdóttir og maður hennar Önundur Asgeirsson voru viðstödd at- höfnina en þau fólu Jóni Gunnlaugssyni lækni tengdasyni Sigvalda að tilkynna um gjöfína, sem komin var á góðan stað í safnaðarheimilinu. Jón rakti í stuttu máli sögu Sigvalda og fer erindi hans einnig hér á eftir. Eitt barn var skírt við messuna. For- eldrar þess eru Skúli Eyfeld Harðarson og Bryndís Hauksdóttir en hún er barna- barn Árna Helgasonar organista, sem hefði orði 106 ára þennan dag ef lifað hefði. Barnið hlaut nafnið Petrúnella, en Petrúnella Pétursdóttir var kona Árna. Öllum kirkjugestum var boðið í Festi. Þar beið hlaðið veisluborð. Svavar Árna- son, organisti og sóknarnefndarformað- ur var veislustjóri. Fluttar voru margar ræður og afhentar gjafir til prestshjón- anna. Rafnar Sigurðsson hafði orð fyrir fyrstu fermingarbörnunum. Þau færðu þeim hjónum fagurgert útskorið horn á gullslegnum fæti. Hafna- og Grindavíkursóknir gáfu ífú Jónu Sigurjónsdóttur gullarmbandsúr og séra Jóni gullvasaúr. Þessar gjafír af- henti Borgar Jónsson úr Höfnum. Jón Hólmgeirsson meðhjálpari afhenti þeim hjónum fagurt málverk af Festarfjalli frá Grindvíkingum. Eitthvað mun fleira hafa borist af gjöfum og blómum. Þá flutti Einar Kr. Einarsson f.v. skólastjóri gott erindi um séra Jón og störf hans hér. En þeir áttu langt og mikið samstarf bæði í skólanum og kirkjunni, þar sem Einar var sóknarnefndarformaður mest- an hluta starfsferils séra Jóns í Grinda- vík. J.T. Vér þökkum þér fyrir ævarandi kærleika þinn og trúfesti, þökk- um þér allt, sem þú veitir oss af ríkdómi gæsku þinnar. Og á þess- um fyrsta sunnudegi vetrarins viljum vér sérstaklega þakka þér sumarið sem liðið er, þakka þér hina mörgu björtu og sólríku daga þess, þakka þér fyrir ávöxt jarðar og auð hafsins, og alla veitta bless- un til sjávar og sveita, og vér biðj- um þig að blessa oss þennan byrj- aða vetur, og vaka í miskunn þinni og mildi yfir landi og lýð, og bægja frá oss hverskonar óhöppum, slysum og voða og vernda og varð- veita hvert heimili og hvem ein- stakling þjóðar vorrar, og styðja og styrkja þá, sem við erfiðleika eiga að stríða, og vera oss öllum hæli, hjálp og hlíf. — Blessa oss þessa stund í helgidómi þínum með návist anda þíns, og hjálpa oss nú og ávallt til að vegsama þitt heilaga nafn fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda. Amen. Post.20,32 ,,Nú fel ég yður Guði og orði náðar hans, sem máttugt er að uppbyggja yður og gefa yður arf- leifð með öllum þeim, sem helg- aðir eru.“ Þessi orð Páls postula hafa oft verið mér ofarlega í huga, er ég að undanfömu hefi leitt hugann að þeirri breytingu, sem óhjákvæmi- lega fylgir því, að láta nú af opin- bem starfi eftir rúmlega 41 ár og þar af rúm 37 ár, sem þjónandi prestur hér í þessu prestakalli. Þegar við hjónin, ásamt tveimur börnum okkar, öðm þá nýfæddu, fluttum hingað í þetta prestakall um mitt sumar árið 1948, hugsaði ég til þeirrar breytingar, sem þá yrðu á högum okkar, bæði með nokkurri tilhlökkun, en einnig með nokkmm kvíða, því að þótt ég hefði hlotið hér lögmæta kosn- ingu, þá vissi ég, þó mest af af- spurn, að sú kosning hafði ekki verið með öllu átakalaus, og ég gat eins búist við, að þeirra átaka myndi ég, e.t.v. að einhverju leyti gjalda. — Sú varð þó ekki raunin á þegar til kom, því að ekki get ég annað sagt, en að sóknarbörn beggja sókna hafi tekið okkur hjónum tveim höndum, og við hvarvetna mætt velvild, vinarhug og hlýleika. Þetta vekur, að sjálfsögðu, hjá okkur, bæði ljúfar minningar og hlýja þakklætiskennd, þegar við hugsum til þeirra mörgu góðu ára, sem við höfum átt og eytt í þessu prestakalli, sem við næst- um strax festum yndi við, og það svo, að ég held að aldrei hafi okk- ur til hugar komið að breyta til og sækjast eftir öðru. — Héðan er þvi margs að minnast og margt að þakka af okkar hálfu, svo margt að þess er enginn kost- ur að rifja það allt upp hér og nú, því að það yrði alltof langt og mikið mál. — En hins er ekki að dyljast, að það er ekki með öllu átakalaust að hverfa nú frá þessu öllu saman og setjast að á nýjum stað. — Það er þó gert, að eigin ósk, en ekki vegna þess að aldurinn heimili ekki nokkuð lengri þjónustutíma, heldur af heilsufars ástæðum, og svo líka því, að mér er vel ljóst að það er orðið tímabært að nýr, yngri og frískari maður taki hér við þjónustu, og líka hyggilegt að láta af starfi áður en Elli kerling kemur manni alveg á kné niður, eða sljóvgar svo dómgreindina að maður hvorki sér né þekkir sína eigin vankanta. — En hvað um það. — Allt hefur sinn tíma og öllu er afmörkuð stund, og lífi og starfi hvers manns eru viss takmörk I 5AMVII1MU VIÐ FOLKIÐ tryggjum við betri vörur á lægra verði í verslunum okkar 328 FAXI Kaupfélag Sudurnesja

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.