Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 23

Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 23
drjúgum tekjuauka fyrir fyrir- tækið. Við þessa framleiðslu á heitu vatni og rafmagni er kastað burt jarðsjó, sem inniheldur mikið af uppleystum steinefnum, og ber þar hæst kísil, sem hefir safnast fyrir sem botnset í Bláa lóninu. 1 Bláa lóninu telja ýmsir að megi finna lækningu gegn húðsjúk- dómum og fleiri kvillum. Sú lækning, bein og óbein sem Suð- urnesjamenn og allir Islendingar kunna síðar meir að njóta, í sam- bandi við ,,Bláa lónið“ skal ekki rædd hér nánar. Árið 1981 var öllum fram- kvæmdum skv. upphaflegum áætlunum lokið og framleiðslan komin í það horf, sem ákveðið var í öndverðu. Þá er umfang veitunnar orðið: Varmaorkuver, sem skv. hönn- unarforsendum getur framleitt 125 MW í varma og 8 MW í raf- magni. í dag er heitavatnsnotkun um 13—14 tonn á mínútu af 110°C heitu vatni. Þetta mun þó ekki vera nema 70—80% af afkastagetu orkuversins. Að jafnaði eru fram- leidd 7—8 MW af raforku og fara um 6MW af því út á raforkulínur landskerfisins (sem nú er að vísu eign hitaveitunnar sjálfrar). Pípu- lengd aðfærsluæða og dreifikerfis mun nú vera komin yfir 300 km og hitaveita komin til um 5125 orkukaupenda. Ennþá er hitaveitan viðbúin að taka við nokkurri fjölgun not- Frá vinstri. Albert Albertsson framkv.stj. tœkni- svids. Þorsteinn Sigurjónss yfir- maður dreifikerfis raforku. Ingólfur Aðalsteinsson, for- stjóri. Júlíus Jóns- son, framkv.stj. fjár- málasviðs. Jóhann Líndal, rekstrar- stjóri háspennu. Sœvar Sörensson rekstrarstj. lág- spennu. enda. Ef gert er ráð fyrir að þeim fjölgi um 2—3% á ári, þá lætur nærri að hitaveitan geti, án stækk- unar, dugað í 5 til 7 ár ennþá. Þá er aðeins rætt um hitun íbúð- arhúsnæðis — þessi mynd breytist hinsvegar algjörlega ef farið er að tala um stóriðju s.s. laxeldi — en þar er rætt um notkun, sem gæti verið margföld á við alla húshit- unarþörf Suðurnesjamanna. Ég fer ekki lengra út í þá sálma, en ljóst er að stjórn fyrirtækisins þarf hugsanlega að takast á við þann vanda að fram komi kröfur um stóraukna heitavatnsnotkun á svæðinu. En hvað sem þeim vanda líður þá er það staðreynd og ótrúlegur veruleiki að hitaveitan er komin í nánast hvert hús og orðin afger- andi þáttur í lífi hvers einasta Suðurnesjamanns. En hverju getum við þakkað vel- gengni þessa fyrirtækis? Ég hef þá trú að þar falli margir lækir í ein farveg. Þar vil ég fyrst nefna sam- heldni sveitarstjórnarmanna frá fyrstu árum til þessa dags. í öðru lagi: frábæra hönnun og vandvirkni hönnuða ásamt sér- lega hæfum fagmönnum í vél- virkjun, sem leystu verk sín af hendi af stakri prýði. Þá vil ég ennfremur geta þess að hitaveitan hefir ávallt notið ótrúlega lipurrar fyrirgreiðslu lánastofnana og ráðuneyta. Þá vil ég enn telja til að hitaveit- an hefir fengið ýmsa sérlega hæfa starfsmenn, sem jafnan hafa gert vandamál fyrirtækisins að sínum vandamálum. Slík afstaða starfs- fóllcs er hverju fyrirtæki ómetan- leg. Síðast en ekki síst, vil ég nefna til, heppni og Guðsblessun, sem fylgt hefur Hitaveitu Suður- nesja frá fyrsta degi. Ég tel rétt að benda á og undirstrika að það er ekki sjálfgefið að velsæld og góð arðsemi sé eilífur fylgifiskur Hita- veitu Suðurnesja, og mætti ég sér- staklega minna á að það eru nokk- ur meginsjónarmið, sem ég tel að þurfi að hafa í heiðri ef við ætlum að tryggja velgengni til frambúð- ar. í fyrsta lagi: Gjaldskrá fyrirtækisins verður ávallt að tryggja eðlilega arðsemi við ákvörðun hennar mega ekki koma til nein önnur sjónarmið! 1 öðru lagi: Hitaveitan verður að hafa tryggt það ferskvatn, sem nægir til þess að fullnægja heitavatnsþörfinni. I þriðja lagi: Hitaveitan verður að nýta vinnslusvæði sitt þ.e.a.s. „heita pottinn" á þann veg að ekki komi til skyndilegrar eða óvæntrar þurrðar. Eitt enn vil ég sérstaklega benda á, sem ég tel að þurfi að varast — og það er að hitaveitan blandi sér í hverskonar stóriðjurekstur — hversu vel sem hann kann að líta út á pappír. Þarna á ég við, að það komi aldrei til álita — þrátt fyrir góða af- komu og viðunandi arðsemi fyrir- tækisins — að hitaveitan fari sjálf að hætta fjármunum sínum í áhætturekstur, sem er óskyldur hitaveiturekstrinum. Slíkt gæti, ef illa tekst til, stefnt hagsmunum notendanna í mikinn voða. Það fer ekki á milli mála, að hitaveitan hefir skilað íbúum þessa svæðis stórum hagnaði og til þess að skýra hann nánar vil ég bregða hér upp stuðlaritum, sem sýna hagnað svæðisins í heild auk þess að skýra kostnaðarmismun á mismunandi hitagjöfum. Að lokum vil ég kynna þau ártöl, sem ætíð verða áberandi í at- hafnasögu hitaveitunnar. ÞRÍR TYLLIDAGAR HEIÐURS- HJÓNA Gullbrúðkaup áttu þann 4. október síðastliðinn, Éyrún R. Helgadóttir og Bárður Olgeirsson Vallarbraut 2. Njarðvík. Báður er fæddur 4. ágúst 1905 á Hellissandi og Eyrún fædd 12. janúar 1910 að Holti í Álftaveri. Þau hafa búið í Njarðvík frá 1934. Eiga þau 5 börn öll búsett í Njarðvík. 16 barnabörn og 4 barnabarnabörn. Bárður hefur lengst af ævi sinnar stundað sjómennsku. FAXI 335
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.