Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Síða 25

Faxi - 01.12.1985, Síða 25
___________JÚLl'US JÓNSSON:_______ HITAVEim SUÐURNESJA Á TÍMAMÓTUM í upphafi máls míns ætla ég að sýna nokkur línurit, sem ætlað er að skýra stöðu fyrirtækisins nú og þær breytingar sem sameiningin hefur á einstaka þætti, svo sem skiptingu fastafjármuna, áætl- aðra tekna og stofnframlaga. MYND NR. 1 sýnir hvernig stofnframlög skiptast miðað við verðlag 1. júlí sl. Eins og sést á henni eru stofnframlög eignarað- ilanna heilt 1,1% eða u.þ.b. 10 m.kr. Hlutur íbúa svæðisins með tengigjöldum sínum er 19%, fram- lagðar rafveitur sveitarfélaga nú á sumardögum 18,5% en lang- stærsti liðurinn er tengigjöld greidd af Varnarliðinu eða 61,4%. MYND NR. 2 sýnir síðan skipt- ingu fastafjármuna eftir samein- inguna og sýnir hún að hlutur ,,gömlu“ Hitaveitunnar þar er 86,8%, eignir keyptar af Rarik 4,6% og framlögð stofnkerfi Raf- veitnanna 8,6%. MYND NR. 3 sýnir síðan áætl- aða skiptingu tekna árið 1986 og sýnir hún, að rafmagnssala (að frádregnum orkukaupum, skött- um og greiðslum til Rarik) yrði u.þ.b. 79 m.kr. eða tæp 15% en sala H.S. (án breytinga% rúmlega 85%. Síðar í erindi mínu sýni ég svo aðra mynd (nr. 5) þar sem gerð er grein fyrir skiptingu brúttótekna næstu árin. MYND NR 4 sýnir hvernig gjaldskrá Hitaveitunnar hefur þróast síðastliðin tæplega 3 ár miðað við vísitölur og aðrar gjald- skrár og verð. Á þessari mynd kemur það fram, að á tímabilinu hefur verð gasolíu hækkað minnst en þar á eftir gjaldskrá Hitaveit- unnar og Landsvirkjunar. Þess skal þó getið, að allt ofangreint tímabil hefur gjaldskrá Lands- virkjunar verið umtalsvert hærri en Hitaveitunnar en þær urðu því sem næst jafnar við síðustu hækkun Hitaveitunnar. Þær vísi- tölur og verðlag sem ráðandi eru um afkomu Hitaveitunnar (þ.e. bygg.vísitala og U.S.$) hafa hækkað mun meira. Ef gjaldskrá Hitaveitunnar ætti að fylgja bygg- ingarvísitölunni þyrfti hún að hækka um tæp 16% eða með öðr- um orðum: raunhækkun gjald- skrárinnar um 16% sl. 3 ár. Nú, þá er næst að gera nokkra grein fyrir því sem ég hygg að fundarmenn hafi mestan áhuga á, en þar á ég við hvemig Hitaveitan komi til með að standa fjárhags- lega og hver líkleg þróun verði í gjaldskrármálum á næstu árum. En eins og karlinn sagði; það er erfitt að spá, sérstaklega um framtíðina. Eg þori þó að fullyrða að útlitið hjá Hitaveitunni er mjög bjart REKSTRARLEGA séð en öllu dekkra GREIÐSLULEGA séð. Allar líkur eru á því, að Hita- veitan fari á allra næstu árum og jafnvel þessu að skila hagnaði og væri það í fyrsta sinn í 10 ára sögu fyrirtækisins, þar sem næstum öll stofnframlög hafa horfið í sífelld- um taprekstri. En um leið og reksturinn gæti farið að skila hagnaði taka við afborganir af lán- um fyrirtækisins, og munu þær rúmlega fimmfaldast á næstu 2 árum og verða 1987 nálægt 240 m.kr. Til að gera fundarmönnum ljósari grein fyrir umfangi þessara afborgana má til samanburðar nefna, að ef vatnssalan til byggð- ana á Suðurnesjum ætti ein að standa undir þeim, þá þyrfti að hækka gjaldskrána um rúmlega 40% eða úr kr. 860,00 L/M í tæp- lega kr. 1.220,00 þá væri eftir að greiða allan íjármagnskostnaö, nauðsynlegan rekstur og nýfram- kvæmdir. Þrátt fyrir þessa miklu greiðslu- byrði á næstu árum vil ég ítreka þá skoðun mína, að framtíð fyrir- tækisins sé mjög björt. Það er þó auðvitað því skilyrði háð, að stjórn og stjórnendur þess hagi fjárfestingum og öðrum kostnaði eftir því hvert bolmagnið er á hverjum tíma. Þá er og geysilega mikilvægt að ekki verði hlaðið á fyrirtækið verkefnum, sem alls ekki eru í þess verkahring að ann- ast, því allt slíkt hlýtur að seinka því framtíðarverkefni okkar allra að ná orkuveróinu niður á sama stig og í ReyRjavík og nágrenni. Þetta segi ég ekki af ástæðulausu því ég hef mjög oróið var við þá skoðun að „Hitaveitan geti bara gert það“. Jafnframt er mér full- ljóst, að það er barnaleikur að stjórna ijármálum slíks fyrirtækis þegar hagurinn er eins og síðast- liðin ár, hjá því sem verður, ef betur fer að ára og allir vilja fá sinn skerf af kökunni. Það þarf nefnilega sterk bein til að þola góða daga. Hvað varðar breytingar þær er nú hafa oróið á fyrirtækinu er ljóst, að þar er um grundvallar- breytingar að ræða. Helstu kost- irnir við sameininguna eru að mínu mati þessir. 1. Sameiginleg raforkukaup fyrir allt svæðið auk samræmdra kaupa með Keflavíkurflugvelli, notkunar eigin véla í Svartsengi til lækkunar á topp og u.þ.b. 18,3% álag á veró Landsvirkjunar fyrir flutning á rafmagni til Varnarliðs- ins. Meðalverð rafveitnanna á hverja Kwst fyrstu mánuði ársins var nálægt 1,75 kr. en meðalveró- ið fyrir allt svæðið gæti verið u.þ.b. 1,25 kr. auk flutnings- kostnaðar. Þess ber þó að geta í þessu sambandi að Hitaveitan hefur selt Landsvirkjun 30 Gwh á ári fyrir u.þ.b. 1,50 kr. pr. Kwst en það mun vera nálægt 50% þeirrar orku sem notuð er í sveit- arfélögunum. 2. Við sameininguna eykst starfsmannaíjöldi Hitaveitunnar líklega um rúmlega 50%, en allir möguleikar ættu að vera á að starfsmenn nýttust betur í þessari stækkuðu einingu því minna ætti að vera um svokallaðan , ,dauðan tíma“ auk þess sem meiri sérhæf- ing ætti að vera möguleg. Við lauslega úttekt á reilcningum raf- veitnanna fyrir árið 1984 kemur í HITAVEITA SUÐURNESJA GJALDSKRÁ SAMANBUROUR VIÐ VtSITÖLUR O.FL. LAMSKJARAVfiSITALA 8VTCINGARVISITALA GENGI U.S. DOLLAR MYND4 FAXI 337
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.