Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 31

Faxi - 01.12.1985, Page 31
líka á plötu og svo náttúrlega Vil- helm Herold á mörgum plötum. Ég man eftir laginu ,,Vi elskar vort land“ eftir Langemuller, en kvæðið eftir Drachmann. Það var Herold látinn syngja oft. Svo söng Herold önnur þjóðlög, dönsk, t.d.: „Flyvfugl, flyv“ o.s.frv., svo var auðvitað Pétur Jónsson þar á sams konar plötum og til voru eft- ir hann á Kalmannstjöm. En allt bliknaði hjá þvi, að Guðmundur átti Cavallería Rusticana eftir Petro Mascagni, sungna af Caruso. Það fannst mér alveg dá- samlegt, jafnt og söngur Carusós sem hertogans í Rigoletto. Ég get ekki lýst því, hve þessar stundir voru skemmtilegar hjá Guðmundi fyrir mig, fermingarstrákinn. Það er ekki að orðlengja það, eftir að ég uppgötvaði Guðmund Björns- son, fór ég til hans alltaf eftir kvöldmat og sat við óperusöng hjá honum, svo lengi sem sætt var. Ég hefði gjarnan viljað vera lengur í spurningunum. Égmiðaði allt við Guðmund og grammófóninn en minna við klerkinn og kverið. Ég var líka búinn að læra kverið utan af heima í Kotvogi. Kristín Gísla- dóttir, sem sett var mér til höfuðs með andlega lærdóminn, hafði séð um það, að ég var ömggur með kverið allt og 3 passíusálma. Svo leið tíminn. Ég var fermdur, fór svo í skóla. Eftir stúdentspróf fór ég í lyfjafræði og var hjá Schev- ing Thorsteinssyni lyfsala í Reykjavíkur Apóteki. Hann var yndislegur maður og bezti hús- bóndi, sem ég hefi haft. Á þessum árum kynntist ég Lorange fjölskyldunni, sem bjó á Freyjugötunni rétt hjá elskulegri móður minni á Baldursögu 32, en hjá móður minni bjó ég nær allan tímann af skólagöngu minni. Frú Emilie Lorange var apótekarafrú frá Stykkishólmi, og var þá orðin ekkja og bjó með tveimur sonum sínum. Sá eldri var verlunarmað- ur en hinn yngri Aage píanóleik- ari og þekktur tónlistarmaður. Frú Emilie, sem við kölluðum alltaf frú Lorange, var höfðingleg kona, alltaf fín í klæðaburði. Ég sá hana aldrei nema í svörtum silkikjól, auðvitað síðum. Fas hennar og framkoma öll var yfir- veguð, róleg og viðmót hennar ljúft en mótað af kurteisi og virðu- leik. Það var einhver fyrri tíðar andi, sem sveif yfir persónu henn- ar, framkomu og hreyíingum öll- um. Hún spilaði mikið á píanó að sama skapi mjög vel og kenndi nemendum stundum, sem lengra voru komnir. Mér er það ógleym- anlegt, hve ásláttur hennar var fagur. Hún virtist töfra úr píanó- inu óvenjulega fallega tóna í hvert sinn, er hún snerti það. Það hittist svo á í fyrsta skipti, sem ég kom þar á heimilið, var frúin að spila kafla úr ,,La Traviata“ óperunni. Ég rann strax á hljóminn. Það er ekki að orðlengja það, að ég kom oft þennan fyrsta vetur á Freyju- götuna. Það var indælt. Érú Lorange var alltaf háttprúð, virðu- leg og ljúf. Hún fór oft í gegnum óperurnar þrjár þennan vetur: Rígólettó, La TVaviata og II TVova- tore. Ég gleymi þessu aldrei. Mér fannst einhver samrunninn blær vera kominn milli hennar og óperulistarinnar. Þetta finnst með VELDU BETRI KOSTINN NONNI OG BUBBI HRINGBRAUT 92 FAXI 343

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.