Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 37

Faxi - 01.12.1985, Page 37
Félagslíf í FS m frú Mor/is - Ijösm. Margt gerðist skemmtilegt á nýliðinni haustönn í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. Auk fastra liða eins og t.d. busavígslu, Þórsmerkurferðar o.fl. heim- sótti okkur Fjölbrautaskólinn á Akranesi. Háðu Suðurnesja- menn og Skagamenn íþrótta- og mælskukeppni. íþróttakeppn- inni lauk með sigri Skagamanna en mælskukeppnina sigruðu Suðurnesjamennirnir. Sett var á íjalimar leikritið Skóarakonan dæmalausa eftir Federico Garcia og vakti það mikla hrifn- ingu áhorfenda, enda sýnt 7 sinnum. Seinnihluta annarinnar tók Fjölbrautaskóli Suðurnesja þátt í heilmikilli mælskukeppni sem ber skammstöfunina M .O. R. F. I. S. — Mælsku- og rök- ræðukeppni framhaldsskóla á íslandi. í fyrstu umferð mættust Menntaskólinn við Sund og F.S. Rætt var um hvort banna skyldi sölu og neyslu tóbaks og mæltu okkar menn fyrir tillögunni. Lauk keppni þessari með sigri Suðurnesjamanna. Næsta umferð verður haldin eftir áramót. Halldór R. Guðjtínsson. Nú fyrir skömmu var haldið loka skemmtikvöld skólans og bar það nafnið: „Gandreið í Grófinni“. Eins og nafnið bendir til var skemmtunin haldin í Gróíinni. 'IVóðu þar upp ýmsir nemendur með stjörnudrauma í brjósti sér. Má meðal fleiri frægra telja meðlimi í hljóm- sveitinni Salörnum, Sigvalda Hólmgeirsson og fleiri. Jólaball N.F.S. (Nemendafé- lag Fjölbrautaskóla Suðurnesja) mun svo verða haldið mánudag- inn 16. desember í Stapa. Mun haust^m fullvíst teljast að mæti þar og hafa vonandi hina bestu skemmtun af. Að lokum langar mig að hrósa nemendafélaginu og öllum hin- um sem hönd lögðu á plóginn til að félagslífið mætti verða betra. í öll þau ár sem ég hef verið í Fjölbrautaskóla Suðurnesja man ég ekki eftir svo góðri þátt- töku sem nú var. Vil ég láta myndir segja það sem ósagt er. Með von um áframhaldandi vel- gengni. G.K.B. Úr Þdrsmerkur/erðinni - Ijdsm. Þorkeli Logi Steinsson. FAXI 349

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.