Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1985, Side 40

Faxi - 01.12.1985, Side 40
Fyrirburðir og draumar frú Mörtu Valgerðar Jónsdóttur í ICeflavík Gömlu húsin í Keflavík: Frá vinstri Gamla búdin (Duusbúdin), sem nú er verid að endurbyggja, Duushúsið (fbúðarhúsið). Þar hugðist Marta fá leigt, sbr. frásögnina. Húsið var rifið árið 1965. Það var elsta hús í Keflavfk byggt árið 1766. Brugghúsið (sést á gaflinn) og Bryggjuhúsið. Á stakkstœðinu er bátaspi! (gangspil), sem notað var við setningu báta í Stokkavörinni. • « ■ * Wu ' m ImÍiIÍhIimÍiii II m cijj Marta Valgerður Jónsdóttir er eldri lesendum Faxa að góðu kunn. Mörg ár átti hún greinar í blaðinu — eitt af því albesta, sem þar hefur verið skráð um Keflavík og mannlíf hér um og eftir síðustu aldamót. I skrifum hennar er að finna fróðleik, sem oft hefur verið vitnað í síðan. Hún var mjög athyglisverð kona sökum fjölþættra hæfileika. Frásagnarlist hennar var leikandi létt og heimildir staðgóðar. Hún hafði mætur á dulspeki og draumar hennar voru áhugaverðir. Ekki er fullijóst hver skráð hefur eftirfarandi frásögn, en séra Jón Thorarensen lét Faxa fá hana til birtingar. Draumur um Gísla Súrs- son Þegar ég var 16 vetra dreymdi mig einu sinni að ég þóttist vera komin vestur og sá yfir allan Breiðafjörð. Mér þótti maður standa hjá mér hann var mikill vexti og fallega vaxinn, ljós- hærður og fríður sýnum, en illa búinn. Hann sagðist vera Gísli Súrsson og í draurhnum sagði hann mér ævisögu sína. Um morguninn, þegar ég vaknaði mundi ég drauminn glöggt, en það kynlega við þetta er það, að ég hafði alls ekkert um Gísla heyrt, vissi ekki einu sinni að hann hefði verið til. Eg var á þeim tíma frá- bitin því að lesa Islendingasög- urnar og fór því um morguninn að spyrja pabba, en hann sagði, að ég Marta Valgerður Jónsdóttir. gæti lesið sögurnar sjálf. Ég gleymdi þessu samt strax. Næstu nótt dreymir mig sama drauminn, nema þá er allt mikið skýrara og þá sýnir Gísli mér staðinn, sem hann var veginn á, en mesta áherslu lagði hann á það, hvað sér félli þungt að haf dáið í heiðni, virðist mér hann mjög dapur yfir því. Þessi draumur var mér mjög minnisstæður þegar ég vaknaði. iínn dreymir mig þriðju nóttina, að ég er stödd á sömu slóðum og Gísli er með mér. Hann var þá með allra daprasta móti. Hann biður mig þá að koma með sér og skoða staðinn, þar sem hann var heygður. Við göngum saman þangað og staðnæmumst þar. Hann talar þá enn sem fyrr um að hann hafi dáið í heiðni og biður mig einhverrar bónar, sem ég hef aldrei getað munað hver var, því ég svaraði strax., ,Það get ég ekki, mér er það ofvaxið." Mér er alltaf minnisstæður raunasvipurinn, sem kom á andlitið, þegar ég sagði þetta og við það vaknaði ég. Ég fór strax að hugsa um hvað hann hefði beðið um, en ég gat ómögu- lega munað það. Síðan hef ég oft reynt að muna það, en alltaf árangurslaust. Stundum finnst mér samt eins og orðið ,,kirkja“ vefjist þar innan um en það getur vel verið hugsun frá mér sjálfri. Eftir þessa 3 drauma las ég sög- una og var öllu lýst nákvæmlega rétt við það, sem mig hafði dreymt. En oft hefur mér þótt leitt að fyrirhöfn gamla mannsins skyldi verða árangurslaus. Þetta gerðist veturinn 1905. „Framtíðm kemur bráðum“ Veturinn 1915 lagðist ég veik og lá töluvert þungt haldin. Eitt kveldið hafði ég venju fremur mikinn hita. Var þá ekki heima hjá mér nema ein unglingsstúlka, sem ég kallaði alltaf Bínu litlu. Veðrið var mjög vont þetta kveld og einn mótorbát, sem róið hafði þann dag, þar úr víkinni, vantaði, en á þeim bát var faðir Bínu litlu. Um það leyti, sem ég var að fá hit- ann fyrir alvöru segir Bína mér, að báturinn sé ókominn og allir séu orðnir hræddir um hann. Eftir þetta hætti ég að tala og lá með aftur augun. Finnst mér þá sem líkami minn dofni, fyrst hætti ég að finna til fótanna, og hélt svo áfram þar til ég fann ekkert nema höfuðið. Að síðustu fannst mér ég vera alveg laus við líkamann. Skírðist þá öll hugsun mjög og aldrei hef ég fundið aðra eins sælu og frið gagntaka mig sem þá. Það fyrsta sem mér varð þá að hugsa um var Bína litla og mótorbátur- inn. Hún var þá ekki inni í her- berginu, en það gjörði mér ekkert til, ég fór í næstu stofu og sá þar Bínu sitja grátandi. Aldrei hef ég fundið eins til með öðrum eins og henni þá. Ég fór að hugsa um, hvort ég gæti ekki séð hvað bátnum liði. Mér fannst ég þá fara út í myrkrið og leita að bátnum og sá ég hann þá, þar sem hann var með fullri ferð og átti eftir örstuttan spöl inn á höfnina. Ég skyggndist svo um hvort nokkuð væri að og virtist mér það ekki vera. Nú langaði mig mjög til að láta Bínu litlu vita hvers ég hafði orðið vísari en mér fannst ég ekki geta það, samt reyndi ég að tala og von bráðar tókst mér að koma upp hljóði og kallaði á Bínu. Hún kom strax og ég sagði henni þá: ,,Þú skalt ekki vera hrædd Bína mín. Framtíðin (svo hét báturinn) kemur bráð- um.“ Meira gat ég ekki sagt og aldrei lauk ég upp augunum. Ég fór svo að hugsa um, hvort þetta myndi ekki vera dauðinn, og hvað allt væri bjart og fagurt væri hann líkur þessu ástandi. Nokkru síðar fór ég að finna til líkamans, og þá gat ég auðvitað talað og hreyft mig eins og áður. Um þetta mætti segja, að það hefði verið óráð, en það er dálítið merkilegt að mótor- báturinn kom rétt strax á eftir að landi og ekkert var þar að, annað hitt að Bína sagði mér að hún hefði setið grátandi fram í stof- unni nákvæmlega þar sem ég sagði og að síðustu sagðist Bína sjálf hafa verið hrædd við mig, þegar ég hefði talað við sig, því ég hefði litið svo draugalega út og málrómurinn svo ólíkur mínum. Hún kvaðst hefði sótt lækninn, ef 352 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.