Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 43
ODDUR PALSSON 95 ARA
y y
er svo
Þann 6. des. s.l. varð Oddur Pálsson nxutíu og
fimm ára. Af því tilefni brá ég mér í heimsókn til
hans út á Garðvang og átti þar við hann stutt
samtal.
Þegar mig bar að garði sat hann
í hjólastól frammi í setustofu
heimilisins og var að ljúka við
miðdegissopann sinn og eftir að
ég hafði heilsað honum og öðrum,
sem ég þekkti við nálæg borð,
býður Oddur mér til herbergis
síns og þar hefjum við viðræð-
urnar:
— Það má með réttu segja að þú
sért nú að verða allra karla elstur,
getur þú nokkuð lýst því fyrir mér
hvernig þér, hálftíræðum mann-
inum, er innanbrjósts?
,,Já, það er gott að vera svona
hress eins og ég er og meðan heils-
an helst svipuð er ég sæll og glað-
ur.“
Þessu næst víkjum við talinu að
uppruna og ævistarfi og kjarni
þess máls er á þessa leið:
Oddur fæddist að Sandhóli á
Miðnesi 6. des. 1890. Foreldrar
hans voru Páll Sigurðsson og
Guðrún Oddsdóttir. 'Ilittugu og
átta mánaða gömlum var honum
komið í fóstur að Stúfholti í Rang-
árvallasýslu. Þar átti hann svo
heima í 28 ár, eða þar til hann réð-
ist vinnumaður að Lækjarbotnum
á Landi í Landssveit. Þar var þá
bústýra Steinunn uppeldissystir
hans. Á þeim bæ var hann í þrjú
ár. En eins og algengt var á þess-
um tíma fór Oddur suður til sjó-
róðra á vetrarvertíðum. Réri hann
t.d. 4 vertíðir á sex-manna-fari í
Staðarhverfi í Grindavík. Fékk
hann óskiptan hlut sinn eftir ver-
tíðir, en ekki var þá um annað árs-
kaup að ræða. Frá Lækjarbotnum
fluttist Oddur suður í Hafnir. Þar
kynntist hann konu sinni Sigríði
Bergsteinsdóttur. (Meðal systra
hennar var Guðlaug kona Stefáns
Bergmann.) Sigríður var þá ekkja
og hafði fyrir að sjá syni sínum
Ólafi Ingvarssyni, sem fæddur er
árið 1907. Voru þau heimilisföst í
Vesturhúsum, hjá hjónunum þar,
þeim Guðríld Eiriksdóttur, sem
var systir Ingvars og Magnúsi
Guðmundssyni.
Viðdvöl Odds í Höfnunum varð
eitt ár, þaðan lá svo leiðin, með
konu og stjúpson, til Keflavíkur.
Hér fengu þau leigða rishæðina
hjá ívari Ásgrímssyni, skósmið, í
Vinaminni (nú Aðalgata 7). Ekki
kunni Oddur því vel að vera leigj-
andi. Frétti hann að húsið Klapp-
arstígur 12 mundi vera falt og hélt
á fund eiganda hússins, Sigur-
jóns, sem þá var nýfluttur að
Litla-Hólmi í Leiru og bar upp er-
indið. Var málið auðsótt og kaup-
verðið ákveðið 1800 kr. Gat þá
Oddur reitt fram 500 kr. og síðan
var fastmælum bundið að auðna
yrði að ráða um lúkningu kaup-
anna, en þeim lyktaði síðan bæði
fljótt og vel.
Á fyrstu Keflavíkurárum þeirra
hjóna fæddust þeim synirnir
tveir; Ingvar Guðmundur árið
1923 og Ari Bergþór 1924.
Sem að líkum lætur var aðal-
starf Odds sjómennska, eftir að til
Keflavíkur kom og síðan fram eft-
ir aldri.
í því sambandi minnist hann
t.d. veru sinnar hjá Sigurði Gunn-
arssyni og sonum hans á m/b Sól-
ey og einnig var hann á m/b Sæ-
borgu með Marteini Helgasyni.
Þá fór hann einnig, eins og títt var
hér, nokkur sumur austur á firði-
til sjóróðra.
Um tíma var Oddur pakkhús-
maður hjá KRON í Keflavíl<..
Ragnar Guðleifsson var þá deild-
arstjóri. Oddur hafði þar m.a.
þann starfa á hendi að keyra út, á
hestvagni, kol til þorpsbúa.
Undirritaður man ekki þá tíð að
hestvagnar færu hér um götur.
Aftur á móti þekkti ég Odd best,
þegar hann í gervi slátrarans tók
til hendi, á hverju hausti, í fisk-
húsum á Myllubakka, sem þá um
tíma breyttust í sláturhús. Þar
stóð að verki hamhleypa við flán-
ingu. Kapp hans og starfsþrek var
frábært og víst er það, að langlífið
á hann ekki sérhlífni að þakka.
Árið 1949 fluttu þau hjónin af
Klapparstígnum inn á hæð, í
verkamannabústað, á Faxabraut
16. Var Oddur þá starfandi hjá
hraðfrystihúsinu Jökli, en þar var
hann samfleytt í 10 ár.
í lok þess tímabils var svo kom-
ið, að hann átti við að stríða alvar-
lega kölkun í mjaðmaliðum og til
að ráða þar bót á gekkst hann
undir aðgerð á Landakotsspítala.
Síðan má segja að fæturnir hafi
dugað honum þolanlega fram
undir seinustu ár, en aukþeirra er
það nú einkum heyrnin sem bag-
ar. Aftur á móti er sjónin afbragðs
góð og les hann gleraugnalaust.
Seinasti starfsvettvangurinn var
á Keflavíkurflugvelli, þar starfaði
hann í mötuneyti í 17 ár.
Var Oddur um áttrætt er hann
hætti þar störfum, en konu sína
missti hann 30. des. 1960.
Þegar komið var að því að setjast
í helgan stein flutti Oddur þvert
yfir Faxabrautina á Hlévang. Þar
var hann vistmaður til þess tíma
að hann flutti á Garðvang, þegar
hann var tekinn í notkun, fyrir
um 9 árum.
— Að lokum spyr ég svo Odd um
hvað hann vilji segja mér um
heilsufar sitt og aðbúnaðinn á
Garðvangi.
,,Ég er ánægður með að vera
orðinn svona gamall og þakklátur
fyrir að hafa bærilega heilsu. Dag-
lega fer ég út ef veður leyflr. Hér
líður mér vel. Það er ekki hægt að
hugsa sér betra elliheimili en
þetta. Manni líður svo vel, því
starfsfólkið hugsar svo vel um
mann og er svo skemmtilegt."
— Innilegar afmælisóskir fylgja
hér með til afmælisbarnsins og
bestu jóla- og nýársóskir til ykkar
allra á Garðvangi.
Kristján A. Jónsson
Gleðiíegjól
við lestur góðra bóka
Daglega í leiðinni
Bókabúð
Keflavíkur
FAXI 355