Faxi - 01.12.1985, Page 47
RÓTMYKLÚBBUR KEFLAVÍKUR
40ÁRA
••
Karvel Ogmundsson gerður að
Paul Harrisfélaga
Rótarýklúbbur Kcílavílcur var
stofnaður 2. nóvember 1945. Af-
mælisfundur var haldinn 2. nóv-
ember s.l. í samkomuhúsinu
Grófm. Hápunktur þessa hátíðar-
fundar var það að einn stofnfé-
laganna, Karvel Ögmundsson var
gerður að Paul Harris-félaga, en
það er mesti heiður sem Rótarýfé-
laga getur hlotnast.
Heimir Stígsson, forseti klúbbs-
ins stjórnaði fundi og var veislu-
stjóri. I lann sagði frá tildrögum
og stofnun klúbbsins. Aðal hvata-
maður og fyrsti forseti var Alfreð
Gíslason, lögreglustjóri, en hann
hafði kynnst Rótarý í Rótarý-
klúbbi Reykjavíkur, sem varð svo
,,móðurklúbbur“ Rótarýklúbbs
Keflavíkur. Síðar varð Alfreð
fyrsti umdæmisstjóri klúbbsins.
Stofnfélagar voru 13. Fimmþeirra
eru enn á lífi og voru 3 þeirra í af-
mælishófmu: Þeir Karvel Ög-
mundsson, Huxley Ólafsson og
Kristinn Reyr, en þeir Ólafur E.
Einarsson og Egill Þorfinnsson
gátu ekki mætt en sendu kveðjur
og heillaóskir. Heiðursgestir voru
Húnbogi Þorsteinsson, umdæm-
isstjóri og kona hans Erla Inga-
dóttir og Vigdís Jakobsdóttir
ekkja Alfreðs Gíslasonar, bæjar-
fógeta. Einnig var ekkjum látinna
félaga boðin þátttaka. Alls voru 67
gestir á fundinum.
Umdæmisstjóri Húnbogi Þor-
steinsson flutti ávarp og gat þess
m.a. að Rótarýklúbbur Keflavík-
ur hafi alla tíð verið í hópi alvirk-
ustu klúbba í landinu.
Sigrún Arnadóttir forseti Inner-
wheel í Keflavík, en það er klúbb-
ur eiginkvenna Rótarýmanna,
ílutti kveðjur úr sínum klúbbi og
þakkaði samstarfið. Vigdís
Jakobsdóttir, ekkja Alfreðs Gísla-
sonar, bæjarfógeta, rifjaði upp
skemmtilegar endurminningar
frá fullgildingarhátíð R.K. Þær
tengdust einkum þeim eríiðleik-
um að gera hátíðina sem best úr
garði og eftirminnilega, þar sem
engin veitingastaður var þá hér og
samkomuhúsið Ungó illa búið að
húsbúnaði og matargerðartækj-
um til slíkrar stórveislu. En allt
fór vel að lokum.
Ómar Steindórsson ávarpaði
Karvel Ögmundsson. Þakkaði
honum frábær störf í klúbbnum
frá fyrstu tíð varðandi fundasókn
og fjölbreytileg fundarefni, og af-
henti honum síðan Paul Harris
merkið og skírteini, sem staðfest-
ir ákvörðun klúbbsins um þessa
heiðursveitingu.
Karvel þakkaði með ágætri
ÚRVAL ÍTALSKRA HÚSGAGNA
A
MJÖG
HAGSTÆÐU
VERÐI
VERIÐ
VELKOMIN
IDUUS
DUUS
HÚSGÖGN
SÍMI92-2009
FAXI 359