Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 48

Faxi - 01.12.1985, Page 48
Þau fluttu ávörp: Húnbogi Þorsteinsson umdæmis- stjóri. Vigdís Jakobsdóttir, ekkja Alfreðs Gíslasonar stofnanda og fyrsta for- seta klúbbsins. Kristrún Helgadóttir flutti kveðju frá manni sínum Jóhanni Péturs- syni, f.v. umdæmisstjóra, en hann lá á sjúkrahúsi. Vilborg Ámundadóttir þakkaði f.h. kvenna, sem allar fengu smá gjafir. Hún er kona Huxleys Ólafssonar, eins af stofnfélugum klúbbsins. Kristinn Reyr skáld stofnfélagi og heiðursfélagi. ræðu um mátt slíks félagsskapar til að skapa mannkyni friðsælla og betra mannlíf. Kristrún Helgadóttir kona Jó- hanns Péturssonar f.v.umdæmis- stjóra, flutti samkvæminu kveðj- ur frá honum, en hann hefur verið á sjúkrahúsi að undanfömu. Kristinn Reyr, einn af stofhend- unum, hefur verið heiðursfélagi í klúbbnum síðan hann flutti til Rcykjavíkur. Hann hefur oft mætt á fundum klúbbsins og þá jafnan með athyglisverð erindi eða skáldskap. Hann flutti stutt ávarp í tilefni dagsins. Vilborg Ámunda- dóttir, kona Huxley Olafssonar, stofnfélaga, flutti klúbbnum þakkir fyrir gjafir er þeim Inner- wheel konum vom færðar í veisl- unni — en þær fengu allar Rótarý- merktar smágjafir til marks um samvinnu og samstarf klúbb- anna. Þá var komið að skemmtiatrið- um kvöldsins, Jón Sæmundsson flutti skemmtiþátt er hann nefndi „Stjórnmál dagsins í spéspegli“ og fékk hann mjög góðar undir- tektir, enda af ýmsu að taka í þeim efnum. Fengu sumir Rótarýfélag- ar í klúbbnum að reyna ýmsilegt háskalegt í meðferð Jóns í póli- tískum, spéspegli hans. Eftirhermuþáttur Jóhannesar Kristjánssonar var einnig ágætur. Þó að framámenn þjóðarinnar fengju bróðurpart af gríninu nutu nokkrir heimamenn einnig hár- fínnar athygli listamannsins. Fjöldasöngur og góð dinner- músik, sem endurómaði töfra- mátt tóna frá liðnum áratugum, yljaði mörgum eldri manni um hjartarætur. Þegar svo hljómsveit- in Damos fór að spila fyrir dansi, að borðhaldi loknu, mátti sjá margan herrann leggja vangann ljúft að dömu sinni í stað þess að þeyta henni frá sér eins langt og handleggimir leyfðu — en einnig mátti raunar líka sjá það hjá ungu og útlimaglöðu fólki. Já, afmælishófíð var litbrigða- ríkt og skemmtilegt, enda þakk- aði forseti skemmtinefndinni sérstaklega gott starf, en hún var skipuð þeim: Guðmundi Bjöms- syni, verkfrœðingi, Ólafi B. Ólafssyni, títgerðarmanni, Hall- dóri Vilhjálmssyni, umboðs- manni, en þeir völdu sér til full- tingis tvær Innerwheel konur þær Eygló Geirdal, hjúkrunarkonu og Guðlaugu Jóhannsdóttur, fegrun- arsérfrœðing. í umboði stjórnar Rótarýkltíbbs Kefiavíkur tókst nefndinni tœkni- lega að leysa ailan vanda útgerð- ar afþessu tagi, bœði með hlið- sjón af heilsufrœðilegum og fag- urfrœðilegum niðurstöðum. Ómar þakkar Karvel frábœr störfíþdgu Rótarý og Heimir, forseti klúbbsins, bíður með Paul Harrisorðuna sem Karvel á að bera. Iiún er staðfesting fyrir því trausti sem við berum til Karvels og afreka hans, bœði í Rótarý og á almennum vettvangi. Jón Sœmundsson flutti skemmtiþátt, sem örvaði hláturmildi veislugesta og veitir háborðs- fólkið honum óskipta athygli. Skemmtinefhdin frábœra: Eygló Geirdal, GuðmundurBjörnsson, Guðlaug Jóhannsdóttir og Ólafur B. Ólafsson. Halldór Vilhjálmsson var jjarstaddur. Myndir og texti J.T. 360 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.