Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 49

Faxi - 01.12.1985, Page 49
Rotary heiðrar hönnuðinn Valdimar Harðarson Á síðasta umdæmisþingi voru liðin 50 ár frá stofnun Rotary- hreyfingarinnar á íslandi. Af því tilefni var ákveðið að stofna sér- stakan starfsgreinasjóð. Hlutverk sjóðsins er að veita viðurkenningu fyrir afrek eða nýjungar sem þykja taka öðrum fram og tengjast jafnframt einhverri starfsgrein. Samkvæmt reglum sjóðsins skal úthlutað úr honum árlega og í fyrsta sinn á þessu þingi. Til að hljóta viðurkenningu úr sjóðnum, er ekki nauðsynlegt að viðkomandi sé félagi í Rotary- hreyfmgunni. Stjórn sjóðsins fer eftir ábendingum við val á styrk- þegum og getur hver sem er kom- ið með ábendingu. Auglýst var eftir ábendingum í dagblöðum í lok síðasta mánaðar og bárust allnokkrar ábendingar til stjórnar sjóðsins. Það er samdóma álit stjórnar sjóðsins að fyrsta viðurkenning, að upphæð 75 þúsund krónur skyldi renna til Valdimars Harð- arsonar, arkitekts, fyrir stólinn SÓLEY, sem vakið hefur heimsat- hygli. Valdimar Harðarson er fæddur 5. janúar 1951. Hann ólst upp í Keflavík og er sonur hjónanna Harðar Valdimarssonar, bifreiða- stjóra og Sigurrósar Sigurðardótt- ur. Hann er kvæntur Guðnýju Lindu Magnúsdóttur og eiga þau hjón tvær dætur. Valdimar lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla íslands árið 1973 og stundaði nám í arkitektúr næstu þrjú ár eftir það. Að af- loknu BS prófi í Englandi, hóf Valdimar síðari hluta nám í Lundi í Svíþjóð og lauk þaðan Magister- námi 1979. Næsta ár á eftir stund- aði hann framhaldsnám í skipu- lagsfræði í Svíþjóð, en alkominn til íslands kom Valdimar árið 1980 og hóf þá störf á teiknistof- unni Laugavegi 42 og starfaði þar til ársins 1982. Síðan hefur Valdi- mar rekið eigin teiknistofu að Laufásvegi 19 í Reykjavík. Meðal verka sem Valdimar hef- ur unnið á þessum tíma, má nefna innréttingu skrifstofuhúsnæðis Samvinnuferða-Landsýnar í Reykjavík, teikningu barnaskól- ans á Seyðisfirði, skrifstofu Raf- veitna ríkisins á Höfn í Horna- firði, sumardvalarhús í Vík í Mýr- dal og íbúðir fyrir aldraða í Höfn í Hornafirði. Meðal verkefna sem Fjölbrautaskóli Suðurnesja óskar nemendum, kennurum og öðrum Suðurnesjabúum gleíuíegra jóía og far^œíbar d komanbi dri þökkum samstarfið á árinu SKÓLAMEISTARI FAXI 361

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.