Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Síða 56

Faxi - 01.12.1985, Síða 56
Tjónabætur vegna skipa Árið 1941, greiddi Vélbáta- ábyrgðarfélag Keflavíkur, 116,083,67 kr. í tjónabætur. Þar á meðal bætur fyrir þrjá algera skips- tapa: Vélbátana Goðafoss, Öðling og Trausta. Þá voru 30 vélbátar tryggðir hjá félaginu. Á aðalfundi þess, 23, maí 1942, var felld tillaga, um að bátunum væri á ný heimilt að hafa legufæri sín á Keflavík, milli Vatnsness og Brenninýpu. Þrátt fyrir samþykktir félagsins munu einhverjir útgerðarmenn hafa haft báta sína á hinni gömlu legu, allt til 1946. Enda var þá hafnaraðstaða orðin sæmileg innan við Vatnsnes. (Frásögn Magnúsar B. Karlssonar, Keflavfk). (Faxi, maí—júní 1942: Frétt í Flæðarmáli). Maður drukknar Á Þorláksmessudag, 23. des. 1942, drukknaði í Keflavíkurhöfn, Þórður Helgason, sjómaður, í Kefla- vík. Hann var fæddur 10. ágúst 1907, sonur Helga Jenssonar, sjó- manns, og Sigríðar Guðnadóttur, sem bjuggu í Gamla-skólanum. Þórður var albróðir Marteins, sem var skipstjóri á Ægi í hrakningunum fyrr á árinu 1942. (Faxi, okt. 1961, bls. 126: MVJ.: „Minningar frá Keflavík“. Árbók SVFÍ 1942-43, bls. 23). 1943 M.b. Júlíus Björnsson strandar Þann 13. febr. 1943, strandaði v.b. JjúIíus Björnsson GK 125, 22 smálestir, nálægt Hábæ í Vogum. Báturinn brotnaði lítið og losnaði af eigin ramleik. Hann var gerður út frá Keflavík. (Árbók SVFÍ 1942-43, bls. 45). M.b. Ólafur Magnússon í hrakningum Þann 2. mars 1943, er v.b. Ólafur Magnússon GK 520, frá Keflavík, var í róðri, bilaði vél bátsins. Þar eð björgunarskipið Sæbjörg var á leið til Borgarness, urðu nokkrir erfið- leikar á að útvega aðstoðarskip. Loks fór v.b. Keflvíkingur GK 400, bátnum til aðstoðar og dró hann inn til Keflavíkur. (Árbók SVFÍ 1942-43, bls. 45). 1944 Keflvíkingur drukknar með Max Pemperton Þriðjudaginn 11. jan. eða aðfara- nótt miðvikudagsins 12. jan. 1944, fórst togarinn Max Pemperton frá Reykjavík, að talið er skammt und- an Snæfellsnesi. Síðast heyrðist fráskipinu kl. hálf átta á þriðjudags- morguninn 11. janúar. Lónaði það skammt innan við Malarrif og var væntanlegt til Reykjavíkur innan skamms. Skipverjar höfðu verið á veiðum fyrir Vestfjörðum og voru nú á heimleið. Um orsakir slyssins er ókunnugt, en talið var að tundurduf I eða tundurskeyti frá kafbáti, jafnvel breskum, hafi grandað skipinu. einnig komu fram getgátur um að ofhleðsla hefði verið orsakavaldur- inn. En sigling með fullhlaðið skip af fiski, lýsi og veiðarfærum, var oft varasöm á þessari leið, í misjöfnum vetrarveðrum. Max Pemperton var 323 smá- lestir að stærð, smíðaður I Englandi 1917. Hann var því 26 ára gamall, en talinn eitt besta skip íslenska togaraflotans á þeim árum. Á stýris- húsi hans var t.d. sérstök brynvörn, til varnar fyrir loftárásum. Eigandi togarans var Halldór Þorsteinsson, skipstjóri í Reykjavík. Með Maxinum fórust 29 menn, flestir þaulvanir sjómenn. Skip- stjórinn, Pétur Maack, var talinn einn traustasti skipstjóri togaraflot- ans. Þegar slysið varð voru 4 menn í landi af áhöfninni, en lausamenn í stað þeirra. Með skipinu fórust tveir Suðurnesjamenn. Þeir voru: Jón Halldórsson, háseti, Kefla- vík. Ókv. Bl. Hann var fæddur 22. mars 1904. Kristján Halldórsson, háseti, Innri—Njarðvlk. Hann var fæddur 20. mars 1903. Átti þrjú börn. Bróðir Kristjáns, sem var á skipinu, fórst einnig: Mikið var skrifað um slysið í blöð- um og menn voru ekki á eitt sáttir um orsakir þess. (T.d. í sjómanna- blaðinu Víking, mars 1944, bls. 53—55). Víkingur, jan.—febr. 1944, bls. 3—6. ,,Max Pemperton ferst“. Víkingur, mars 1944, bls., 57: Athugasemd um slysið. I riti Gunnars M. Magnúss, Virkið í norðri, er frásögn um atburðinn. í árbók SVFÍ 1944, bls. 63, er Jón Halldórsson sagður Ólafsson. Ekki er hægt að svo stöddu að fá hið rétta föðurnafn mannsins. En ef lesendur vissu betur þætti höfundi vænt um að heyra það). Maður drukknar í Kefla- víkurhöfn Aðfaranótt miðvikudagsins, 24. maí 1944, drukknaði í Keflavíkur- höfn, Snorri Sólon Karlsson, er bíll, sem hann ók, fór fram af hafnar- garðinum. Snorri var fæddur í Kefla- vík 24. nóv. 1916, sonur Karls A. Guðmundssonar, sjómanns, og Maríu Magnúsdóttur, Snorri var al- bróðir Friðriks, vélstjóra, sem var á Ægi í hrakningunum1942. Snorri var ókv. og bl. (Faxi, júní 1944: „Hörmulegt slys“. Árbók SVFÍ, bls. 67). Keflvíkingur drukknar í Reykjavík Þann 21. des. 1944, drukknaði f Reykjavíkurhöfn, Magnús Ög- mundsson, vélsmiður frá Keflavík. Um þennan mann hefur höfundur annálsins engar upplýsingar, en þætti vænt um ef lesendur gætu frætt hann um það. (Árbók SVFl' 1944, bls. 63). Aðstoð Sæbjargar við Keflavíkurbáta Þann 13. mars 1944, var v.b. Svanur GK, dreginn til Keflavíkur vegna vélarbilunar. Staddur 16 sjóm. NV af Garðskaga. Þann 22. mars, var m.b. Lagar- foss GK 516, dreginn til Keflavíkur vegna vélarbilunar. Staddur 14 sjóm. NV af Garðskaga. Þann 11. apríl, var Vinur GK 512, dreginn til Keflavíkur vegna vélarbil- unar. Staddur 6 sjóm. VNV af Garð- skaga. Þann 16. maí, var v.b. Geir goða veitt aðstoð til að komast af skeri við klettadranginn Stakk undan Hólmsbergi. Báturinn dreginn á flot. (Árbók SVFÍ 1944, bls. 78-79). 1945 Dreng bjargað frá drukknun Þann 28. sept. 1945, datt 4—5 ára gamall drengur milli báta og bryggju í Keflavík. Drengurinn náði að grípa í landfestar skips, og hékk þar, þar til Gunnlaugur Karlsson, stýrimaður, kippti honum upp á bryggju. Gerðist þetta aðeins á mínútubroti, svo þarna munaði mjóu. Kvika var engin við bryggjuna og veður gott. Það bjargaði. (Faxi, sept. 1945: Frétt í Flæðarmáli). Bjarganir Áttunda mars 1945, hófst leit að v.b. Þristi VE 6, en hann fór í róður frá Hornafirði 5. mars, og var ókom- inn fram. Síðar fréttist, að báturinn hefði bjargast á seglum upp undir Papey. Þarhitti hannv.b. Hólmsberg frá Keflavík, sem aðstoðaði bátinn til lands. Þann 25. apríl, dró m.s. Bragi, Keflvíking GK 400, til lands, en Keflvíkingur var með bilaða vél 4 sjóm. suður af Reykjanesi. Þann 14. sept., fór Ólafur Magn- ússon frá Keflavfk til aðstoðar m.b. Ægi GK 263, sem var vélarvana skammt undan Skagaflös., En strekkingsvindur var af norðan og óttast var að bátinn ræki upp á Flös- ina. Komst Ægir hjálparlaust inn fyrir Skaga en þaðan dró Ól. Magn- ússon hann til Keflavíkur. (Árbók SVFÍ 1945, bls,. 67-69). Aðstoð b.s. Sæbjargar við Keflavíkurbáta: Keflvíkingur GK 400 dreginn til Keflavíkur. Bilað þrýstirör. Staddur 22—23 sjóm. NV af Skaga. Guðný GK 315 dregin til Keflavík- ur. Vélarbilun óþekkt. Stödd NV af Garðskaga. Keflvíkingur GK 400 dreginn til Keflavíkur. Úrbræddarlegur. Stadd- ur út af Garðskaga. Vindur SA 5 til 12 vindstig. Ólafur Magnússon GK 520 dreg- inn til Keflavíkur. Bilaður sveifarás. Staddur 14 sjóm. NV af Skaga. Björn GK 396. Biluð kælivatns- dæla. Vindur N 3. (Aðrar uppl. vant- ar). (Árbók SVFÍ 1945, bls. 70-72. Þar vantar dagsetningar svo ekki er hægt að sjá hvenær á árinu Sæbjörg að- stoðaði bátana). Framhald í næsta blaði Biskup var að segja stráka- hópi í hverju siðferðisþrek væri fólgið og nefndi eftirfarandi dæmi til skýringar: — Tíu drengir sváfu í sama svefnskála. Aðeins einn þeirra kraup við rúmstokkinn sinn og baðst fyrir áður en hann fór að sofa. Það var siðferðisstyrkur. Getið þið nefnt annað dæmi? — Já, gall einn strákanna við, — tíu biskupar sváfu í sama svefnskála. Aðeins einn þeirra háttaði án þess að lesa bænirnar sínar. Var hann ekki svalur? Tveir menn og ein kona urðu strandaglópar á eyðiey. Eftir einn mánuð sagði kon- an: — Nei, nú þoli ég þetta ekki svona lengur. Ég frem sjálfs- morð. Eftir tvo mánuðí sagði annar maðurinn: — Nei, nú þoli ég þetta ekki svona lengur. Nú gröfum við hana. Eftir þrjá mánuði sagði hinn maðurlnn: — Nei, nú þoli ég þetta ekki svona lengur. Nú gröfum við hana upp aftur. Svo að þér viljiö eiga dóttur mína. Hafið þér spurt konuna mína? — Já, en ég vildi nú heldur dóttur yðar. 368 FAXI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.