Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 62

Faxi - 01.12.1985, Page 62
JÓLAUMFERÐIN Senn líður að jólum og gamla jóla- skapið fer að segja til sín enn einu sinni. Allir sem vettlingi geta valdið fara nú á stjá, ýmist fótgangandi eða á ökutækjum, í leit að jólaglaðningum fyrir sig og sína. Af þessu leiðir að um- ferð eykst til muna, sérstaklega í kringum verslanir og hafa lögreglu- yfirvöld ákveðið að gera breytingar á gangi umferðarinnar í aðalverslunar- kjama Keflavíkurbæjar. (Sjá með- fylgjandi teikningu.) Föstudaginn 6. desember nk. verð- ur einstefnuakstur tekinn upp á Hafn- argötu í noröur frá Vatnsnestorgi að Aðalgötu. Hugmyndin með þessari breytingu er sú að reyna að fjölga bif- reiðastæðum við Hafnargötu, en til þess að það beri tilætlaðan árangur verða menn að athuga að nota rétt það aukna rými sem gefst í bifreiðastæði. Það gera þeir best með því að leggja framendum bifreiöa sinna að gang- stéttarbrún (sjá teikningu). Bifreiða- stæðin verða svotil eingöngu hægra megin á götunni nema þar sem útskot hafa verið tekin úr gangstéttunum vinstra megin, en þar leggja menn á sama hátt og þeir em vanir. Brýnt er fyrir ökumönnum að leggja ekki vinstra megin við gangstéttarbrún, enda eru uppi merki sem banna slíkt. Ef allir em nú samtaka um að leggja bílum sínum á þennan hátt sem lýst hefur verið, ætti bifreiðastæðum að fjölga veralega og jafnframt ætti þessi breyting að auka öryggi gang- andi vegfarenda þar sem þarna verður aðeins ein akrein sem fara þarf yfir. Þessi ijölgun á bifreiðastæðum ætti að draga úr hvimleiðum hringakstri öku- manna sem hafa veriö að leita að bif- reiðastæðum. En þrátt fyrir þessa fjölgun á bif- reiðastæðum þá eru menn hvattir til að nota tvo jafnfljóta í auknum mæli þegar þeir eiga erindi í miðbæjar- kjama Keflavikur. Leggja þá bifreið- um sínum í mjög góð bifreiðastæði sem eru t.d. framan við Félagsbíó og norðan við skrúðgarðinn gegnt ný- byggingu Sparisjóðsins. Lögreglan vill beina eindregnum til- mælum til atvinnurekenda sem era með rekstur sinn við Hafnargötu, að brýna harðlega fyrir starfsfólki sínu að leggja ekki bifreiðum sínum í bif- reiðastæðin við götuna. • LANDSSAMBAND GEGN ÁFENGISBÖLINU Eftirfarandi samþykkt var gerð á stjórnarfundi Landssambandsins gegn áfengisböiinu 4. nóv. 1985. „Stjórn Landssambandsins gegn áfengisbölinu vekur enn á ný athygli á þeim mikla félagslega og heilsufars- lega vanda sem sívaxandi vímuefna- neysla veldur. Rannsóknir sýna að það vímuefni, sem fólk byrjar að neyta, er áfengiö og ryður þaö braut- ina fyrir önnur sterkari efni. Nauð- synlegt er því að draga úr heildar- neyslu áfengis eins og kostur er og beita til þess öllum tiltækum ráðum. Með tilliti til þess lýsir stjórn Lands- sambandsins eindregnum stuðningi við dómsmálaráðherra sem tekið hef- ur upp virkt samstarf við áfengis- varnanefndir en þær eiga lögum sam- kvæmt undir forystu Áfensivamaráðs að vinna að áfengisvömum og beita áhrifum sínum til að draga úr áfengis- neyslu og áfengisböli. Hvetur stjómin ráðherra til áframhaldandi og auk- innar baráttu í þessum efnum og skor- ar á aðra ráðamenn að styðja aðgerðir hans þjóðinni til heilla.“ Aðildarfélög Landssambandsins eru þessi: Ábyrgð hf., tryggingafélag, Áfengis- varnanefnd kvenna, Áfengisvamar- ráö, Álþýðusamband íslands, Banda- lag íslenskra skáta, Bindindisfélag ísl. kennara, Bindindisfélag ökumanna, Bindindisráð kristinna safnaða, Hið íslenska kennarafélag, Hjálpræðis- herinn, Hjúkranarfélag Islands, Hvítabandið, íslenskir ungtemplarar, Iþróttasamband Islands, Kennara- samband Islands, Kristilegt félag ungra kvenna, Kvenfélagasamband íslands, Kvenréttindafélag íslands, Landssamband K.F.U.M., Læknafé- lag Islands, Náttúrulækningafélag Is- lands, Prestafélag íslands, Samband íslenskra kristniboðsfélaga, S.D. Að- ventistar á íslandi, Slysavarnafélag ís- lands, Stórstúka íslands I.O.G.T., Ungmennafélag Islands, Vemd, fé- lagasamtök. Páll V. Daníelsson. Landsins mesta og besta ofnaúrval. VELK0M1M1t,?S'S- LEK> '"■N TIL OFNASMIÐJU SUOURNESJA H/F Smíðum bæði Runtal- ofna og Panel- ofna. Tölvutilboð gefur hagkvæmustu lausnina þér að kostnaðarlausu. Góð greiðslukjör. Þú þarft ekki að spara við þig hitaeiningarnar frá OSS, ofninn gefur góðan hita, án þess að fita. 374 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.